Fréttablaðið - 07.02.2013, Side 18
7. febrúar 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 18
Seðlabanki Íslands kynnti nýja
hagspá fyrir íslenskt efnahags-
líf í gær samhliða vaxta ákvörðun
peningastefnu nefndar bankans.
Telur bankinn að verulega sé að
hægja á efnahagsbata íslenska
hagkerfisins.
Í yfirlýsingu frá peningastefnu-
nefnd bankans segir að nýlegar
hagtölur bendi til þess að hag-
vöxtur í fyrra hafi verið minni en
áður var talið. Þá hafi horfur um
hagvöxt á þessu ári versnað frá
síðustu hagspá bankans sem birt
var í nóvember.
Þórarinn G. Pétursson, aðal-
hagfræðingur Seðlabankans, sagði
á fundinum í gær að hagvaxtar-
þróun hefði víðast hvar í Evrópu
verið lakari á fjórða ársfjórðungi
síðasta árs en reiknað hefði verið
með. Dregið hefði úr útflutningi
og þá væru heimili og fyrirtæki að
draga úr eyðslu til að búa í haginn
fyrir hægari gang í efnahags-
lífinu.
„Og við sjáum þetta gerast líka
hér. Ytri skilyrðin eru að versna.
Það eru verri horfur um hagvöxt,
það eru verri horfur um alþjóða-
viðskipti. Horfur um bæði álverð
og verð sjávarafurða eru að versna
og þá gerum við ráð fyrir hægari
vexti í útflutningi sjávarafurða
og öðrum vöruútflutningi,“ sagði
Þórarinn.
Í nýju spánni er gert ráð fyrir
að hagvöxtur verði 2,1% á þessu
ári, 3,7% á því næsta og 3,9% árið
2015. Áður gerði bankinn ráð fyrir
2,9% hagvexti á þessu ári en spáin
fyrir næstu ár er lítið breytt.
Í þessu samhengi munar mestu
um að bankinn gerir nú ráð fyrir
því að fjárfesting dragist saman
um 1% í hagkerfinu á þessu ári en
áður var gert ráð fyrir ríflega 5%
vexti. Skýringin á þessu er meðal
annarra sú að áframhaldandi
framkvæmdir við álverið í Helgu-
vík hafa enn frestast og hið sama
gildir um framkvæmdir vegna
orkuöflunar.
Þá er einnig gert ráð fyrir
minni atvinnuvegafjárfestingu
í tengslum við almennt minni
umsvif í hagkerfinu. Hins vegar
hafa horfur um fjárfestingu í
íbúðar húsnæði batnað nokkuð og
það sama gildir um fjárfestingu
hins opinbera.
Seðlabankinn gerir jafnframt
ráð fyrir að einkaneysla vaxi
hægar á árinu en áður var talið.
Gerir bankinn nú ráð fyrir 2,5%
vexti en áður var miðað við 2,9%
vöxt.
Áfram er búist við því að
atvinnuleysi fari jafn og þétt lækk-
andi og er gert ráð fyrir að það
verði 4,8% að meðaltali á þessu ári.
Loks hefur Seðlabankinn breytt
spá sinni um gengi krónunnar
og gerir nú ráð fyrir að gengis-
vísitalan verði í kringum 235 stig á
næstu misserum en áður var spáin
í kringum 225 stig. Þýðir það að
bankinn býst nú við ríflega 4%
veikari krónu á næstu misserum.
magnusl@frettabladid.is
Efnahagshorfur versnað nokkuð
Seðlabankinn kynnti í gær nýja hagspá í tengslum við vaxtaákvörðun peningastefnunefndar bankans. Telur bankinn að horfur um hagvöxt
hafi versnað nokkuð og spáir nú 2,1% hagvexti á árinu í stað 2,9%. Munar mestu um að nú er gert ráð fyrir að fjárfesting minnki á árinu.
Peningastefnunefnd Seðlabankans tilkynnti í gær að vöxtum bankans
yrði haldið óbreyttum um sinn við reglubundna vaxtaákvörðun sína. Í
máli Más Guðmundssonar seðlabankastjóra á kynningarfundi vegna
ákvörðunar kom fram að horfur um hægari hagvöxt en áður var gert ráð
fyrir drægju úr verðbólguþrýstingi. Hins vegar væri gengi krónunnar nú
veikara en miðað hefði verið við, sem hefði áhrif í hina áttina, og því væru
verðbólguhorfur svipaðar.
Ákvörðun peningastefnunefndarinnar kom ekki á óvart enda höfðu allar
opinberar spár gert ráð fyrir óbreyttum vöxtum. Stýrivextir Seðlabankans
eru eftir sem áður 6% en verðbólga er 4,2% sem er nokkuð yfir 2,5%
verðbólgumarkmiði bankans.
Vöxtum haldið óbreyttum um sinn
HELGUVÍK Seðlabankinn spáir því
nú að fjárfesting í hagkerfinu dragist
saman á árinu. Munar þar verulega um
að bankinn sér ekki fram á áframhald á
framkvæmdum við álverið í Helguvík á
árinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Össur hagnaðist um 38 milljónir
Bandaríkjadala, jafngildi ríflega
4,8 milljarða króna, á árinu 2012.
Til samanburðar var hagnaður
félagsins 35 milljónir árið 2011.
Félagið birti
uppgjör sit t
fyrir árið 2012
í gær.
Í tilkynningu
frá Össuri er
haft eftir Jóni
Sigurðssyni for-
stjóra að árið
hafi gengi mjög
vel á markaðs-
svæðum félagsins í Evrópu, Mið-
Austurlöndum og Afríku. Hins
vegar hafi markaðsaðstæður í
Bandaríkjunum verið erfiðar.
Á árinu 2012 jókst sala Össurar
um 3% sem var í takti við markmið
félagsins um 2 til 3% vöxt. Heildar-
sala nam 399 milljónum Banda-
ríkjadala.
Rekstrarhagnaður fyrir fjár-
magnskostnað, afskriftir og skatta
var 70 milljónir Bandaríkjadala
sem jafngildir 18% af sölu. Á árinu
2011 var sami mælikvarði hins
vegar tæpar 73 milljónir dala.
Eins og áður sagði jókst hagnað-
ur félagsins um 9% á milli ára en
helsta ástæða þess er minni fjár-
magnskostnaður.
Á árinu vann Oscar Pistorius það
afrek að verða fyrsti aflimaði ein-
staklingurinn til þess að keppa á
Ólympíuleikum ófatlaðra. Árang-
ur íþróttamanna á Ólympíuleikum
fatlaðra vakti einnig verðskuldaða
athygli og hefur árangur þeirra nú
þegar breytt viðhorfi almennings
gagnvart fötluðum.
Handbært fé frá rekstri var 18%
af sölu ársins og er lausafjárstaða
félagsins áfram sterk. Mun stjórn
félagsins fyrir vikið leggja til að
hluthöfum verði greiddur út arður
á næsta aðalfundi félagsins. - mþl
Össur birti í gær ársuppgjör fyrir árið 2012:
Hagnaður Össurar
jókst lítillega í fyrra
Össur er fráleitt eina félagið til að skila uppgjöri þessa dagana. Þannig skil-
aði Marel uppgjöri sínu á þriðjudag eins og fjallað var um í Markaðnum
í gær. Virðist uppgjörið hafa valdið fjárfestum nokkrum vonbrigðum því
hlutabréfaverð Marels lækkaði um ríflega 4% í Kauphöllinni í gær en velta
með bréf félagsins var 746 milljónir.
Fram kom í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka í gær að EBIT-fram-
legð félagsins hefði verið 8,56% á árinu 2012. Það er nokkuð undir mark-
miðum stjórnenda félagsins sem gefið hefur verið út að séu 10 til 12%.
Uppgjör Marels olli vonbrigðum
JÓN SIGURÐSSON
OSCAR PISTORIUS
Í uppgjörstilkynn-
ingu sinni fagnar
Össur því að skjól-
stæðingur félagsins,
Oscar Pistorius,
hafi á síðasta ári
orðið fyrsti aflimaði
einstaklingurinn
til þess að keppa
á Ólympíuleikum
ófatlaðra. MYND/GETTY