Fréttablaðið - 07.02.2013, Blaðsíða 29
NÝTT ANDLIT CHANEL
Brasilíska fyrirsætan Gisele Bündchen er nýtt
andlit Chanel-snyrtivara. Bündchen á að baki
farsælan feril sem ofurfyrirsæta en hún er 32 ára.
Meðal frægra hönnuða sem hún hefur starfað fyrir
eru Versace og snyrtivörufyrirtækið Max Factor. Þá
hefur hún verið andlit verslanakeðjunnar H&M.
Ég átti bara stutta litríka kjóla, stutt-buxur og bikiní,“ segir Þórunn Ívarsdóttir, fatahönnuður og tísku-
bloggari, hlæjandi. Hún er nýflutt heim
frá Bandaríkjunum þar sem hún bjó
meðal annars í sólinni í LA. „Uppáhalds-
flíkin mín í dag er þykk kápa sem ég
keypti úti, nú kemur hún sér vel,“ segir
hún.
Í Los Angeles var Þórunn meðal
annars nemi hjá tískumerkjunum Nasty
Gal og Glamhouse og segir það hafa
verið dýrmætan skóla og skemmtilega
lífsreynslu. „Þetta var rosalega gaman.
Ég vann bæði með hönnuðunum og
framleiðendum og fór með hönnuð-
unum á fundi með viðskiptavinum.
Glamhouse hannar fyrir stjörnur eins
og Kim Kardashian og Nichole Richie
og ég vann einmitt við skartgripalínur
fyrir þær,“ segir Þórunn og viðurkennir
að sakna sólarinnar í LA. Hún saknar þó
ekki glamúrsins.
„Lífið úti í LA er mikið djamm og partý
í kringum fræga fólkið. Ég fann mig aldrei
í því. Ég var bara dugleg stelpa heima
að læra. En ég elskaði borgina og hef
búið í New York og LA, Washington DC
og Chicago, sem var æðislegt. En það er
gott að vera komin heim. Nú bý ég bara
heima hjá mömmu og pabba í gamla
herberginu mínu og það bíða mín ellefu
kassar af fötum sem ég get ekki tekið
upp úr,“ segir hún og giskar á að hún eigi
milli 60 og 70 kjóla. „Það eru þeir sem
eru í gangi núna. Svo á ég mikið sem ég
hef aldrei farið í, kjóla sem bíða bara
eftir rétta partíinu,“ segir hún og hlær.
Þórunn heldur úti tískublogginu
double-pizzazz.com og segist hálfgerður
fulltrúi úthverfaskvísunnar. Hún setur
inn færslur minnst þrisvar í viku og er að
leita sér að íslenskum samstarfsaðilum.
„Úti eru tískubloggin svo þekkt menn-
ing að þar er bloggurum boðið á við-
burði og þeim sendir hlutir til að fjalla
um og fleira en hér heima er þetta ekki
eins. En það eru alltaf að stoppa mig
stelpur úti á götu sem lesa bloggið mitt
sem er æðislega gaman. En ég er ekki
þessi miðbæjartýpa, frekar fulltrúi út-
hverfaskvísanna,“ segir hún hlæjandi.
„En ég reyni að höfða til allra.“
■ heida@365.is
ÞREYTT Á GLAMÚRNUM
TÍSKA Þórunn Ívarsdóttir fatahönnuður heldur úti tískublogginu double-
pizzazz.com. Hún er nýflutt heim frá Bandaríkjunum þar sem hún vann meðal
annars fyrir Nasty Gal og Glamhouse. Kuldinn kallar á nýtt í fataskápinn.
SAKNAR SÓLAR-
INNAR Þórunn Ívars-
dóttir fatahönnuður og
tískubloggari saknar
ekki glamúrlífsins í LA
þar sem hún bjó í tvö
ár. Hún saknar þó sólar-
innar enda á hún fullan
fataskáp af stuttbuxum
og litríkum kjólum.
MYND/ANTON
KÍKTU Á
BLOGGIÐ
www.double-
pizzazz.com/ og
líka á Facebook.
Laugavegi 178 - Sími: 551 3366
Þú mætir - við mælum og aðstoðum
www.misty.is
Opið frá 10-14 virka daga.
NÝJIR GLÆSILEGIR
AÐHALDSUNDIRKJÓLAR
BRÚÐKAUPSGJAFIR
Laugaveg i 178 - S ím i : 568 9955
www.tk.is
- mikið af frábærum boðumtil