Fréttablaðið - 07.02.2013, Síða 44
7. febrúar 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 36MENNING
TÓNLIST ★★★★★
Megumi Masaki ásamt
fleirum
Myrkir músíkdagar
HARPA 3. FEBRÚAR
Í myrkri ljóssins: Ný tækni í
flutningi lifandi tónlistar. Þetta
var yfirskriftin á tónleikum
með píanóleikaranum Megumi
Masaki á Myrkum músíkdögum
á sunnudaginn. Titillinn vísaði til
eins verksins á efnisskránni sem
heyrðist þar í fyrsta sinn opin-
berlega. Það var eftir Kjartan
Ólafsson og var fyrir klarinettu,
píanó og rafhljóð. Catherine Wood
lék á klarinettuna og var þetta
eina atriðið sem hún kom fram
í. Leikur hennar var tilfinninga-
þrunginn og hrífandi.
Tónlistin var líka þéttofin og
margbrotin. Atburðarásin var
hröð, áferðin glansandi eins og
svo margt eftir Kjartan. Undir
lokin róaðist músíkin, varð nánast
rómantísk. Það var fallegt. Þetta
var glæsileg tónsmíð.
Masaki er prýðilegur píanó-
leikari. Ásláttur hennar var mjúk-
ur og hljómfagur, snarpur þegar
við átti, léttur og leikandi.
Annað á tónleikunum kom
sömuleiðis vel út. Touch eftir
Keith Hamel var spennandi að
upplifa. Masaki spilaði ekki bara
á píanóið, heldur sveiflaði einnig
höndunum fyrir ofan hljómborðið.
Myndavél nam þessar hreyfing-
ar og umbreytti þeim í ójarðnesk
hljóð. Og píanótónarnir sjálfir fór
líka inn í tölvukerfið með hjálp
míkrófóna. Þar urðu þeir að alls
konar öðruvísi hljómum.
Listrænt séð var útkoman
nokkuð nýaldarleg, og kannski
eilítið langdregin. Samt var þetta
frábær viðbót það sem píanó-
leikarar hafa hingað til getað gert.
Hinar þrjár tónsmíðarnar
voru allar hluti af vídeóverk-
um. Ferrovia eftir Brent Lee við
myndband eftir Sigi Torinus var
skemmtileg. Á skjánum mátti
sjá lestarferð frá ýmsum sjónar-
hornum. Tónlistin var viðburða-
rík og grípandi. Það var í henni
dökk undiralda sem var mögnuð.
Ekki síðri var Orpheus Dro-
nes eftir T. Patrick Carrabré
við vídeó verk eftir Kevin Ei-ichi
deForest. Þar var sofandi maður
í sófa að dreyma martröð sem var
í senn fyndin og óhugnanleg. Tón-
listin var fremur rokkuð, marg-
brotin og lifandi.
Flottasta verkið á tónleikunum
var Hitchcock Études eftir Nicole
Lizée. Þar var efniviðurinn nokk-
ur örstutt brot úr kvikmyndum
Hitchcocks, bæði tónlist og mynd.
Myndbrotin voru endurtekin
aftur og aftur, og tónlistin unnin
í tölvu. Úr varð eitthvað allt annað
en heyrist í kvikmyndunum.
Við þetta spilaði Masaki
á píanóið af ótrúlegri glæsi-
mennsku. Vídeóverkið og tónlist-
in var líka svo óhugnanleg, frum-
leg og hugvitsamleg að það var
alveg einstakt. Þarna mátti t.d.
sjá Doris Day við píanóið syngja
einn sérhljóða, A, aftur og aftur.
A-ið hafði verið klippt úr setning-
unni Que sera, sera. Það var mar-
traðarkennt. Þarna var þessi eini
sérhljóði kveikjan að alveg nýrri
tónlist. Margt annað á þessum
nótum bar fyrir augu og eyru og
það fór um mann hrollur hvað
eftir annað. Jónas Sen
NIÐURSTAÐA: Mögnuðustu og
mest hugvíkkandi tónleikarnir sem
undirritaður sótti á Myrkum músík-
dögum.
Syngdu A, Doris
Skáldsagan Illska eftir Eirík Örn
Norðdahl og ævisagan Pater Jón
Sveinsson – Nonni eftir Gunnar
F. Guðmundsson hlutu Íslensku
bókmenntaverðlaunin í annars
vegar flokki fagurbókmennta
og hins vegar fræðirita. Forseti
Íslands, Ólafur Ragnars Gríms-
son, afhenti höfundunum verð-
launin við hátíðlega athöfn á
Bessastöðum í gær. Fimm bækur
voru tilnefndar í báðum flokkum
en á endanum stóðu þessar tvær
með pálmann í höndunum.
Bæði Eiríkur og Gunnar
voru að fá sína fyrstu tilnefn-
ingu til Íslensku bókmennta-
verðlaunanna. Eiríkur Örn Norð-
dahl hefur um skeið þótt með
efnilegri rithöfundum landsins
en segja má að hafi skipað sér
í fremstu röð með sinni fjórðu
skáldsögu, Illsku, sem hlaut
mikið lof gagnrýnenda þegar hún
kom út fyrir jól.
„Það er hætt við að maður fari
að verða merkilegur með sig og
telji sig eiga eitthvað skilið,“ sagði
Eiríkur þegar Fréttablaðið náði
af honum tali. „En að öllu gamni
slepptu er ég mjög kátur yfir
þessu og brosi í gegnum tárin,
eins og stundum er sagt við svona
tilefni.“ Hann segist ekki hafa átt
von á þeirri miklu velgengni sem
Illska hefur notið. „En ég þótt-
ist snemma vita að hún myndi
ná lengra en fyrri bækurnar,
þetta er bara þannig bók; fjallar
um helförina og fólk virðist fíla
hana.“
Um áhrif verðlaunanna reiknar
Eiríkur með að þau hjálpi til að
selja réttinn að henni erlendis og
þar fram eftir götunum. „Að öðru
leyti veit ég ekki hvaða máli þetta
skiptir, það á eftir að koma í ljós.“
Gunnar F. Guðmundsson sagn-
fræðingur hafði unnið að ævisögu
Jóns Sveinssonar síðan snemma
árs 2006 og byggði verkið á heim-
ildum sem Haraldur Hannesson,
vinur Jóns, hafði safnað mörg-
um áratugum áður og búið um.
Gunnar segir verðlaunin koma
sér ánægjulega á óvart.
„Maður leggur ekki upp með
að fá verðlaun,“ segir hann. „En
bókin var lengi í undirbúningi
og vinnslu og á köflum tók hún
á. Það má segja að það að hljóta
Íslensku bókmenntaverðlaunin
séu mikilsverð umbun.“
Þriggja manna lokadómnefnd,
valdi verkin úr hópi tíu bóka sem
tilnefndar voru til Íslensku bók-
menntaverðlaunanna 1. desember
síðastliðinn. Hana skipuðu Viðar
Eggertsson leikhússtjóri, Hrefna
Haraldsdóttir bókmennta-
fræðingi og Stefanía Óskarsdóttir
stjórnmálafræðingur, sem jafn-
framt var formaður.
Íslensku bókmenntaverðlaunin
nema einni milljón króna í hvorum
flokki. Auk þess voru verðlauna-
höfum afhent skrautrituð verð-
launaskjöl og verðlauna gripir,
hannaðir af Jóni Snorra Sigurðs-
syni á gullsmíðaverkstæði Jens –
opin bók á granít stöpli með nafni
verðlaunahöfundar og bókar hans.
bergsteinn@frettabladid.is
Illska og Nonni hlutu
bókmenntaverðlaunin
Illska eft ir Eirík Örn Norðdahl og Pater Jón Sveinsson eft ir Gunnar F. Guðmunds-
son hlutu Íslensku bókmenntaverðlaunin, sem afh ent voru á Bessastöðum í gær.
VERÐLAUNAHAFAR Forseti Íslands afhenti Gunnari F. Guðmundssyni og Eiríki Erni Norðdahl Íslensku bókmenntaverðlaunin
við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda
Association of Icelandic Film Producers
SÍK – Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda
auglýsir eftir umsóknum um greiðslur úr IHM sjóði félagsins.
Rétt til umsókna úr sjóðnum eiga sjálfstæðir
kvikmyndaframleiðendur sem framleitt hafa kvikmyndir sem
sýndar hafa verið í sjónvarpi á árinu 2011.
Umsóknir berist fyrir 14. febrúar til:
SÍK – Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda.
Hverfisgötu 54 P.O. Box 5367, 125 Reykjavík
eða með tölvupósti á sik@producers.is
Nánari upplýsingar, reglur og umsóknareyðublöð eru
á vefsíðu SÍK – www.producers.is
Greiðslur úr
IHM sjóði SÍK
Þessar voru tilnefndar
Tíu höfundar voru tilnefndir til Íslensku bókmenntaverðlaunanna, fimm
í flokki fagurbókmennta og jafnmargir í flokki fagurbókmennta og bóka
almenns efnis.
Fagurbókmenntir
Eiríkur Örn Norðdahl– Illska
Auður Ava Ólafsdóttir– Undantekningin
Gyrðir Elíasson– Suðurglugginn
Sigurjón Magnússon– Endimörk heimsins
Kristín Ómarsdóttir– Milla
Fræðirit og bækur almenns efnis
Gunnar F. Guðmundsson: Pater Jón Sveinsson
– Nonni
Einar Már Jónsson: Örlagaborgin. Brotabrot úr
afrekasögu frjálshyggjunnar. Fyrri hluti
Gunnar Þór Bjarnason: Upp með fánann.
Baráttan um
uppkastið 1908 og sjálfstæðisbarátta Íslendinga
Jón Ólafsson: Appelsínur frá Abkasíu.
Vera Hertzsch,
Halldór Laxness og hreinsanirnar miklu
Steinunn Kristjánsdóttir: Sagan af klaustrinu
á Skriðu