Fréttablaðið - 07.02.2013, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 07.02.2013, Blaðsíða 54
7. febrúar 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 46 Rætt er um ritskoðun á klámi. Sumir súpa hveljur og segja að vor ráðherra ætli að setja reglu- verk um gamla góða inn-út-inn-út. Aðrir hafa áhyggjur af því hvers landið okkar skuli gjalda, fyrst gjaldeyris höft og nú klámbann. Nú er ekki tíminn til að ofanda. Umræða um klám er af hinu góða. Við erum að vekja hinn sofandi gagnrýnanda sem setur spurning- armerki við hvers konar samskipti við viljum eiga hvert við annað og hvað við viljum kenna börnunum. Auðvitað er klám og klám ekki það sama. Mitt klám kann að mis- bjóða þér og öfugt. Ég er sátt svo lengi sem klámið brýtur ekki lög, er framleitt í umhverfi sem fer vel með leikarana og það sé skýrt að hér séu allir samþykkir og tungu- málið er eftir því. Leikararnir spyrja hver annan blíðlega hvort þetta sé gott og þiggja gjarnan leiðbeiningar frá kynlífsfélaganum um hvað megi betur fara. Enginn geltir skipanir eða svívirðingar eða fær brund í augað, nema það gerist algjörlega óvart. Sumir segja að það megi færa rök fyrir því að klám í sjálfu sér sé ekki slæmt og er háð túlkun hvers og eins. Þá er gjarnan tekið dæmi um aðra hluti sem má misnota og fólki bent á að ekki fari allir illa út úr neyslu á til dæmis sykri eða áfengi. Ég tek undir það, en minni á að hér erum við með hlut, kynlíf, sem fólk er hrætt við, það hvorki þorir né kann að tala um það. Okkur er ekki tamt að tala for- dómalaust um kynlíf. Það er eitt- hvað sem mætti skoða ef umræð- an á að þroskast og skila okkur farsælli niðurstöðu. Við þurfum að bera virðingu fyrir vali hvers og eins, innan löglegra og skynsam- legra marka. Ég held það myndi reynast okkur erfitt að banna klám og er ekki viss um að það sé leiðin sem við viljum fara. Ég vil að við styrkjum einstaklinginn í því að vera skynsamur og gagnrýninn í sinni neyslu. Aukum fræðslu og fordómalausa umræðu. Kennum börnum að virða tilfinningar sínar og annarra. Styrkjum þau í að standa með sjálfum sér og meina það sem þau segja, og segja það sem þau meina. Búum til samfélag sem kýs að sjá kynlíf frá fleiri hliðum en ein- göngu út frá snertingu kynfæra. Göngum jafnvel lengra og bendum á gott klám, eins og frændur okkar Svíar hafa gert og framleitt. Gefum einstaklingum verkfærin til að stýra sínu eigin kynlífi og treysta því að hann sjái fegurðina og húmorinn í því að njóta kyn- lífs með öðrum einstaklingi á jafnréttis grundvelli. Með aukinni fræðslu og sjálfsstyrkingu byggj- um við grunn að sterkum einstak- lingi og vinnum um leið á ótal þjóð- félagsmeinum. KYNLÍF TAKTU ÞÁTT! Sendu Siggu Dögg póst og segðu henni frá vandamáli úr bólinu. Lausnin gæti birst í Fréttablaðinu. kynlif@frettabladid.is „Þetta er vissulega takmarkaður markaður en fólk áttar sig samt ekki á því hvað fyrirburafæð- ingar eru algengar. Rúm 6 pró- sent fæðinga hérlendis eru fyrir- burafæðingar og heil 12 prósent í Bandaríkjunum. Samt eru bara örfáir fataframleiðendur í heim- inum sem sinna þessum hópi,“ segir Berglind Baldursdóttir. Berglind byrjaði í síðustu viku að selja fyrirburafatnað undir merkinu Tamiko, en mikil þörf hefur verið hérlendis, sem og víðar, á fötum í nægilega litlum stærðum til að passa á fyrirbura. Um tvö ár eru síðan Berglind hóf að hanna línuna og er hún búin að verja miklum tíma í öll smáatriði. „Fyrsta hálfa árið fór bara í að lesa mér til. Upphaflega ætlaði ég bara að bæta örlítið við Baby Grappling-barnafatalínuna mína en eftir tveggja daga rannsókn- ir sá ég hversu mikil þörf var á fyrirburafatnaði svo ég ákvað að einbeita mér að honum. Áður en ég fór af stað í hönnunina hitti ég nokkra foreldra fyrirbura og fór á nýburagjörgæsluna til að fá álit þeirra sem þekktu til á því hvernig fötin þyrftu að vera,“ segir Berglind. „Ég er oft spurð að því hvort ég eigi fyrirbura sjálf og hafi þess vegna leiðst út í þetta, en það er ekki málið. Ég datt bara alveg óvart inn í þennan heim,“ bætir hún við, en í gegnum hönnun línunnar hefur Berglind meðal annars leiðst inn í styrktarfélagið Líf, sem er til handa langveikum börnum, og situr þar í fjáröflunarnefnd. Fyrirburar þurfa oftar en ekki að vera tengdir við vélar fyrstu daga lífs síns og taka allar flíkur Tamiko-línunnar mið af því. Lítið gat er á hlið þeirra fyrir snúrurnar sem börnin þurfa oft að vera tengd við og auk þess er allur fatnaðurinn mjög opnan- legur. Notuð er þynnri bómull en í venjuleg barnaföt og mikið er lagt upp úr því að hafa fötin sem þægilegust fyrir börnin. „Allar myndir á flíkunum eru prentað- ar á með mjúku prenti svo þær þola mikinn þvott og eru ekki með þessu harða og óþægilega bak spjaldi sem er oft á barna- fötum,“ segir Berglind en allar myndirnar eru sérteiknaðar fyrir hana með það fyrir augum að þær endurspegli ást, kærleika og hlýju. Fötin koma í stærðum 38, 44 og 50 og er til sölu í Móður- ást í Kópavogi og á Amazon í Bretlandi en reiknað er með að þau komi inn á ameríska Amazon síðar í mánuðinum. tinnaros@frettabladid.is Hannar og framleiðir minnstu föt landsins Berglind Baldursdóttir hefur varið tveimur árum í að hanna fyrirburafatnað sem er nú kominn í verslanir. PÍNULÍTIL FÖT Tamiko-fyrirburafötin eru í stærðum 38, 44 og 50 og sérhönnuð fyrir pínulítil börn sem þurfa að verja fyrstu dögum lífs síns tengd við vélar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Flestir notendur Facebook-sam- skiptavefsins taka sér endrum og eins pásur frá því að heim- sækja síðuna, ef marka má nýja rannsókn hinnar bandarísku Pew-félagsfræðirannsóknar- stöðvar. Um það bil tveir þriðju Banda- ríkjamanna á fullorðinsaldri nota Facebook reglulega. Niður- stöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að 61% þeirra hefur tekið sér pásur frá síðunni í lengri eða skemmri tíma, þær lengstu í nokkrar vikur. Algengustu ástæður hvíldar- innar voru tímaskortur, áhuga- leysi á síðunni og sú tilfinning að Facebook væri mikill tíma- þjófur. Um fjögur prósent þátt- takenda í rannsókninni höfðu áhyggjur af því að einkalíf þeirra væri í hættu sem skráðir Facebook-notendur. Flestir taka sér Facebook-pásu FACEBOOK Tímaskortur er ein ástæðna fyrir Facebook-pásum. Berglind setti fyrirburalínuna á markað undir heitinu Tamiko. Nafnið er japanskt stúlkunafn og merkir fallegasta barnið. „Ég vaknaði einn daginn og ákvað að nafnið á línunni ætti að byrja á Ta. Þaðan lagðist ég í Google- vinnu og endaði á japanskri barnanafnasíðu. Þar fann ég nöfnin Tamara og Tamiko og fannst þau bæði ótrúlega falleg. Ég valdi svo það síðara út af merkingunni,“ segir Berglind. Tamiko japanskt stúlkunafn Sjálfstyrking gegn klámi Sigga Dögg veltir fyrir sér öðrum úrræðum en því að banna klám og segir umræðu um klám af hinu góða. ÞJÓÐFÉLAGSLEGT MEIN? Sigga Dögg veltir fyrir sér öðrum úrræðum en því að banna klám. NORDICPHOTOS/GETTY GUNNAR NELSON 16. febrúar Fáðu þér áskrift | 512 5100 | stod2.is | Verslanir Vodafone Verslanir og þjónustuver Símans 800 7000 BARDAGI ÁRSINS! Taugarnar verða þandar á Wembley Arena 16. febrúar þegar Gunnar Nelson mætir hinum þrautreynda bardagamanni Jorge Santiago í UFC. Misstu ekki af bardaga ársins á Stöð 2 Sport.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.