Fréttablaðið - 09.02.2013, Síða 18

Fréttablaðið - 09.02.2013, Síða 18
Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is HELGIN 9. febrúar 2013 LAUGARDAGUR Vinsælasta samloka í heimi er sú sem við köllum hamborgara í daglegu tali. Hún samanstendur af kjöthleifi, grænmeti, osti og sósum innan í brauði sem skorið hefur verið í tvennt þversum. Aðeins þessi einfalda lýsing hljómar gómsæt. Hugtakið „hamborgari“ er komið frá þýsku borginni Hamborg, þaðan sem margir Þjóðverjar fluttu yfir Atlantshafið til Bandaríkjanna um aldamótin á seinni hluta nítjándu aldar. Í föðurlandinu höfðu þessir nýju Bandaríkjamenn kynnst vinsælli steik sem oftast var kölluð „hamborg- arsteik“ eftir borginni þýsku. Hug- takið hamborgari hefur verið notað um samlokuna sem við þekkjum í dag sem hamborgara síðan 1912. Við þekkjum einnig fleiri hugtök yfir hamborgara eins og stuttu útgáf- una „borgara“, sem notað hefur verið síðan um 1930 og „ostborgara“ síðan um 1940. Enginn hefur hins vegar fært sönn- ur á hvar hamborgarinn var fyrst gerður. Nokkrir bandarískir karlar sögðust hafa fundið hann upp en þeir eiga allir sameiginlegt að hafa gert tilkallið um aldamótin 1900. - bþh Vinsælasta samloka í heimi Nokkrir Bandaríkjamenn segjast hafa gert fyrsta hamborgarann um aldamótin 1900. 1921 White Castle í Kansas var fyrsta veitingahúsakeðjan sem setti hamborgarann á matseðil sinn árið 1921. 1940 Fyrsta McDonald‘s veitinga-húsið í Kaliforníu sérhæfði sig í að gera hamborgara hratt og örugglega. 68 milljón viðskiptavinir McDonald‘s veitingahúsakeðjan þjónustar að jafnaði 68 milljón manns á hverjum degi á rúmlega 34.000 veitingastöðum um allan heim. Hljómsveitin Bloodgroup sendi frá sér sína þriðju plötu nú í vikunni, Tracing Echoes. Janus Rasmussen og Sunna Þórisdóttir söngvarar sveitarinnar segja Evróputúr á döfinni í apríl. Janus Rasmussen og Sunna Þórisdóttir taka boði um kaffi fegins hendi þegar þau mæta til fundar við blaðamann Fréttablaðsins að morgni föstudags. „Við vorum að æfa til klukkan fimm í nótt í stúdíóinu okkar, við erum spila á opnunar- kvöldinu á Volta í kvöld [í gær- kvöldi],“ upplýsa þau. „Við erum líka alltaf mjög lengi að finna út úr því og ákveða hvernig við ætlum að spila lögin okkar á tónleikum. Tónlistin okkar er raftónlist og ekkert augljóst hvernig á að flytja lögin læf,“ segir Janus. „Við gætum náttúrulega bara stungið disk í og mæmað,“ segir Sunna og hlær. „En við myndum samt aldrei gera það, það væri hrikalega leiðinlegt.“ Á leið í tónleikaferð Aðdáendur sveitarinnar fengu að heyra nokkur af nýju lögunum af plötunni Tracing Echoes á Air- waves síðastliðið haust en gefst færi á að heyra meira á tónleik- um Bloodgroup á Sónar-tónlistar- hátíðinni sem haldin verður næstu helgi og svo verða útgáfutónleikar í Reykjavík og á Akureyri í mars. Þá tekur mánaðartónleikaferð um Evrópu við. „Við tökum rosaleg- an túr í Evrópu í apríl, það verð- ur spennandi,“ segir Sunna sem er orðin ýmsu vön en eftir að hún gekk til liðs við Bloodgroup tók við mesta tónleikaár sveitarinnar. „Við fórum til nær 30 landa 2011, þar af 15 í mánaðarlangri Evrópuferð. Það var frekar mikið,“ segir hún. „Við stoppuðum varla nema til að taka bensín.“ Var þetta mikið djamm eða bara puð? „Við vorum nokkuð öflug í því svona fyrri hluta tónleikaferð- arinnar 2011 en svo sáum við bara að þetta gekk ekki. Maður hefur ekkert úthald í að djamma og spila í margar vikur,“ segir Janus. Unnu plötuna hratt Hvar er svo skemmtilegast að spila? „Pólland er í miklu upp- áhaldi hjá okkur. Við höfum spil- að víða þar, en þegar við gerðum það fyrst árið 2011 komumst við að því að þar áttum við stóran aðdáendahóp. Það kunnu allir lögin og við fengum ótrúlega góð við- brögð og þakkir fyrir tónleikana,“ segir Sunna. Eftir langa tónleika- hrinu sem teygði sig yfir á árið 2012 tóku liðsmenn þá ákvörðun að setja saman nýja plötu. „Við unnum hana frekar hratt þegar við tókum okkur til, byrjuðum í maí og klár- uðum hana í haust.“ Þau segja lögin unnin í mikilli samvinnu hljóm- sveitarmeðlima en hana skipa auk Janusar og Sunnu þeir Hallur og Ragnar Láki Jónssynir sem stofn- uðu sveitina með Janusi og systur sinni Lilju. Hætti í skóla fyrir Bloodgroup Sunna var svo kölluð til árið 2011 en þá var hún í MH og söngnámi í FÍH. „Þeir hringdu í mig og buðu að prófa að syngja með sér. Ég lærði þrjú lög fyrir æfingu dag- inn eftir og það gekk mjög vel. Ég hafði einmitt verið að hugsa um það hversu mikið mig langaði til að breyta til og stökk á þetta tæki- færi, hætti í skólanum og fór í tón- leikaferðalag.“ Sunna var átján þegar þetta var og ákvörðunin mætti fullum skilningi foreldra hennar. „Pabbi, Þórir Baldursson, hætti í skóla til að sinna tónlistinni þannig að hann skildi þetta vel.“ Einu vandræðin sem ungur aldur hefur skapað henni er snúin staða á tónleikaferð í Bandaríkjunum. „Þegar við vorum að spila í LA þá mátti ég ekki vera með strák- unum í sándtékkinu og svo þegar við vorum að spila var mér fylgt inn bara rétt í þann mund sem tónleikarnir voru að byrja og svo send út strax að þeim loknum,“ rifjar Sunna upp en 21 árs aldurs- takmark er á vínveitingastaði í Bandaríkjunum. Janus, sem er 25 ára, flutti til Íslands frá Færeyjum sautján ára gamall, en hann ákvað ungur að verða tónlistarmaður. „Ég lærði smá á gítar en fannst það ekki gaman, ég vildi bara vera í rokk- inu,“ segir Janus sem vinnur í dag sem pródúsent meðfram eigin tón- listarsköpun. Allir sungu með í Póllandi SÖNGVARAR BLOODGROUP Janus og Sunna og félagar þeirra í Bloodgroup ætla að fylgja nýútkominni plötu úr hlaði með tónleikum hér á landi og erlendis. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Þorgrímur Þráinsson, rithöfundur Boð og bókarskrif Ég fer í matarboð hjá tengdaforeldrum mínum í kvöld en ætla síðan í hóf hjá KSÍ á morgun. Þess á milli ætla ég að horfa á Eggert spila fótbolta og skrifa bók. Vilborg Arna, Gissurardóttir, pólfari Á Kærleikunum Ég fer í mat hjá foreldrum mínum og svo ætla ég að taka þátt í Kærleikunum á morgun en þeir eru hluti af Vetrarhátíðinni. Egill Einarsson, einka- þjálfari Heldur heilsuhelgi Ég er byrjaður að skera niður fyrir sumarið og nú er heilsuhelgi hjá mér þar sem ég borða bara nautalund, eggjahvítur og kjúkling. Auður Ingibjörg Konráðs- dóttir, heilsukokkur Í afmæli til mömmu Ég ætla að heimsækja móður mína, sem á afmæli á morgun, á Hvolsvöll. Annars er ég að þróa uppskriftir fyrir næstu bók.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.