Fréttablaðið - 09.02.2013, Blaðsíða 18
Sigríður Björg
Tómasdóttir
sigridur@frettabladid.is
HELGIN
9. febrúar 2013 LAUGARDAGUR
Vinsælasta samloka í heimi er sú sem
við köllum hamborgara í daglegu
tali. Hún samanstendur af kjöthleifi,
grænmeti, osti og sósum innan í
brauði sem skorið hefur verið í tvennt
þversum. Aðeins þessi einfalda lýsing
hljómar gómsæt.
Hugtakið „hamborgari“ er komið
frá þýsku borginni Hamborg, þaðan
sem margir Þjóðverjar fluttu yfir
Atlantshafið til Bandaríkjanna um
aldamótin á seinni hluta nítjándu
aldar. Í föðurlandinu höfðu þessir
nýju Bandaríkjamenn kynnst vinsælli
steik sem oftast var kölluð „hamborg-
arsteik“ eftir borginni þýsku. Hug-
takið hamborgari hefur verið notað
um samlokuna sem við þekkjum í dag
sem hamborgara síðan 1912.
Við þekkjum einnig fleiri hugtök
yfir hamborgara eins og stuttu útgáf-
una „borgara“, sem notað hefur verið
síðan um 1930 og „ostborgara“ síðan
um 1940.
Enginn hefur hins vegar fært sönn-
ur á hvar hamborgarinn var fyrst
gerður. Nokkrir bandarískir karlar
sögðust hafa fundið hann upp en þeir
eiga allir sameiginlegt að hafa gert
tilkallið um aldamótin 1900. - bþh
Vinsælasta samloka í heimi
Nokkrir Bandaríkjamenn segjast hafa gert fyrsta hamborgarann um aldamótin 1900.
1921 White Castle í Kansas var fyrsta veitingahúsakeðjan
sem setti hamborgarann
á matseðil sinn árið 1921.
1940 Fyrsta McDonald‘s veitinga-húsið í Kaliforníu sérhæfði
sig í að gera hamborgara
hratt og örugglega.
68 milljón
viðskiptavinir
McDonald‘s veitingahúsakeðjan
þjónustar að jafnaði 68 milljón manns
á hverjum degi á rúmlega 34.000
veitingastöðum um allan heim.
Hljómsveitin
Bloodgroup sendi
frá sér sína þriðju
plötu nú í vikunni,
Tracing Echoes. Janus
Rasmussen og Sunna
Þórisdóttir söngvarar
sveitarinnar segja
Evróputúr á döfinni í
apríl.
Janus Rasmussen og Sunna Þórisdóttir taka boði um kaffi fegins hendi þegar þau mæta til fundar við blaðamann Fréttablaðsins að morgni
föstudags. „Við vorum að æfa til
klukkan fimm í nótt í stúdíóinu
okkar, við erum spila á opnunar-
kvöldinu á Volta í kvöld [í gær-
kvöldi],“ upplýsa þau. „Við erum
líka alltaf mjög lengi að finna út úr
því og ákveða hvernig við ætlum
að spila lögin okkar á tónleikum.
Tónlistin okkar er raftónlist og
ekkert augljóst hvernig á að flytja
lögin læf,“ segir Janus. „Við gætum
náttúrulega bara stungið disk í og
mæmað,“ segir Sunna og hlær. „En
við myndum samt aldrei gera það,
það væri hrikalega leiðinlegt.“
Á leið í tónleikaferð
Aðdáendur sveitarinnar fengu að
heyra nokkur af nýju lögunum af
plötunni Tracing Echoes á Air-
waves síðastliðið haust en gefst
færi á að heyra meira á tónleik-
um Bloodgroup á Sónar-tónlistar-
hátíðinni sem haldin verður næstu
helgi og svo verða útgáfutónleikar
í Reykjavík og á Akureyri í mars.
Þá tekur mánaðartónleikaferð um
Evrópu við. „Við tökum rosaleg-
an túr í Evrópu í apríl, það verð-
ur spennandi,“ segir Sunna sem
er orðin ýmsu vön en eftir að hún
gekk til liðs við Bloodgroup tók við
mesta tónleikaár sveitarinnar.
„Við fórum
til nær 30 landa 2011, þar af 15 í
mánaðarlangri Evrópuferð. Það
var frekar mikið,“ segir hún. „Við
stoppuðum varla nema til að taka
bensín.“ Var þetta mikið djamm eða
bara puð? „Við vorum nokkuð öflug
í því svona fyrri hluta tónleikaferð-
arinnar 2011 en svo sáum við bara
að þetta gekk ekki. Maður hefur
ekkert úthald í að djamma og spila
í margar vikur,“ segir Janus.
Unnu plötuna hratt
Hvar er svo skemmtilegast að
spila? „Pólland er í miklu upp-
áhaldi hjá okkur. Við höfum spil-
að víða þar, en þegar við gerðum
það fyrst árið 2011 komumst við að
því að þar áttum við stóran
aðdáendahóp. Það kunnu allir lögin
og við fengum ótrúlega góð við-
brögð og þakkir fyrir tónleikana,“
segir Sunna. Eftir langa tónleika-
hrinu sem teygði sig yfir á árið
2012 tóku liðsmenn þá ákvörðun að
setja saman nýja plötu. „Við unnum
hana frekar hratt þegar við tókum
okkur til, byrjuðum í maí og klár-
uðum hana í haust.“ Þau segja lögin
unnin í mikilli samvinnu hljóm-
sveitarmeðlima en hana skipa auk
Janusar og Sunnu þeir Hallur og
Ragnar Láki Jónssynir sem stofn-
uðu sveitina með Janusi og systur
sinni Lilju.
Hætti í skóla fyrir Bloodgroup
Sunna var svo kölluð til árið 2011
en þá var hún í MH og söngnámi í
FÍH. „Þeir hringdu í mig og buðu
að prófa að syngja með sér. Ég
lærði þrjú lög fyrir æfingu dag-
inn eftir og það gekk mjög vel. Ég
hafði einmitt verið að hugsa um
það hversu mikið mig langaði til
að breyta til og stökk á þetta tæki-
færi, hætti í skólanum og fór í tón-
leikaferðalag.“
Sunna var átján þegar þetta
var og ákvörðunin mætti fullum
skilningi foreldra hennar. „Pabbi,
Þórir Baldursson, hætti í skóla til
að sinna tónlistinni þannig að hann
skildi þetta vel.“ Einu vandræðin
sem ungur aldur hefur skapað
henni er snúin staða á tónleikaferð
í Bandaríkjunum.
„Þegar við vorum að spila í LA
þá mátti ég ekki vera með strák-
unum í sándtékkinu og svo þegar
við vorum að spila var mér fylgt
inn bara rétt í þann mund sem
tónleikarnir voru að byrja og svo
send út strax að þeim loknum,“
rifjar Sunna upp en 21 árs aldurs-
takmark er á vínveitingastaði í
Bandaríkjunum.
Janus, sem er 25 ára, flutti til
Íslands frá Færeyjum sautján ára
gamall, en hann ákvað ungur að
verða tónlistarmaður. „Ég lærði
smá á gítar en fannst það ekki
gaman, ég vildi bara vera í rokk-
inu,“ segir Janus sem vinnur í dag
sem pródúsent meðfram eigin tón-
listarsköpun.
Allir sungu með í Póllandi
SÖNGVARAR BLOODGROUP Janus og Sunna og félagar þeirra í Bloodgroup ætla að fylgja nýútkominni plötu úr hlaði með tónleikum hér á landi og erlendis.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Þorgrímur Þráinsson, rithöfundur
Boð og bókarskrif
Ég fer í matarboð hjá tengdaforeldrum
mínum í kvöld en ætla síðan í hóf hjá KSÍ
á morgun. Þess á milli ætla ég að horfa á
Eggert spila fótbolta og skrifa bók.
Vilborg Arna,
Gissurardóttir, pólfari
Á Kærleikunum
Ég fer í mat hjá foreldrum
mínum og svo ætla ég að
taka þátt í Kærleikunum á
morgun en þeir eru hluti af
Vetrarhátíðinni.
Egill Einarsson, einka-
þjálfari
Heldur heilsuhelgi
Ég er byrjaður að skera
niður fyrir sumarið og nú er
heilsuhelgi hjá mér þar sem
ég borða bara nautalund,
eggjahvítur og kjúkling.
Auður Ingibjörg Konráðs-
dóttir, heilsukokkur
Í afmæli til mömmu
Ég ætla að heimsækja
móður mína, sem á afmæli á
morgun, á Hvolsvöll. Annars
er ég að þróa uppskriftir fyrir
næstu bók.