Fréttablaðið - 09.02.2013, Page 28
9. febrúar 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 28
Frá því í leikskóla hef ég verið voða upptekinn að því að verða leikari eða söngvari. Sem krakki horfði ég mikið á mynd-ir með Elvis Presley og
söng lögin hans svo á leikskólanum
á mjög bjagaðri ensku. Það eru til
skemmtileg fjölskyldumyndbönd
frá minni barnæsku þar sem ég
syng til dæmis Amonsjúka, sem
átti að vera All Suit Up, og reyndi
að kenna foreldrum mínum að
hreyfa sig eins og Elvis,“ segir
Eyþór Ingi og hlær.
Fjölskyldufaðirinn Eyþór Ingi
Gunnlaugsson er fæddur á Dal-
vík árið 1989. Hann ólst þar upp
en býr nú í Kópavoginum og er
í fullri dagvinnu sem pabbi. Á
kvöldin klæðir hann sig svo oftar
en ekki í rokkgallann og skemmtir
fólki með frábærri söngröddinni.
„Ég hef verið að koma fram frá
því ég var smá pjakkur, þá ann-
aðhvort með harmonikkuna eða
sem Ladda-eftirherma og ég hef
alltaf fengið mikinn stuðning.
Afi er duglegur að rifja það upp
þegar ég var með honum í hest-
húsinu og karlarnir í kring komu
í kaffi. Þá vippaði ég mér upp á
einn heybaggann og söng fyrir þá.
Mamma og pabbi leyfðu mér líka
oft að skemmta þeim sem komu í
heimsókn. Svo var ég algjör lím-
heili þegar ég var yngri og þuldi
til dæmis upp heilu þættina af
Heilsubælinu fyrir gesti og gang-
andi,“ rifjar hann upp.
Feimni hrjáði hann því ekki á
sínum yngri árum en hann segir
hana hafa ágerst með árunum.
„Það er alltaf ákveðið óöryggi í
mér. Ég er stundum á barmi þess
að kasta upp úr stressi áður en ég
kem fram en það lagast yfirleitt
um leið og ég kem á sviðið því þar
líður mér svo vel.“
Eyþór hélt til Akureyrar árið
2006, hóf nám í VMA og sigraði
Söngkeppni framhaldsskólanna
fyrir hönd skólans árið 2007. „Ég
lullaðist í gegnum eina önn, tók
þátt í keppninni og hætti svo eig-
inlega strax eftir hana,“ segir
Eyþór sem að eigin sögn hefur
aldrei verið mikill námsmaður,
enda með bullandi athyglisbrest
og mikla lesblindu. „Ég hef samt
gert tvær misheppnaðar tilraunir
til að læra tónlist,“ segir hann og
rifjar upp fyrri tilraunina.
„Afi minn er mikill músíkant og
getur gripið í flest hljóðfæri, þrátt
fyrir að hafa aldrei lært á eitt ein-
asta. Hann var alltaf tuðandi yfir
því að geta ekki lesið nótur svo
ég ákvað að læra á harmonikku
svo ég gæti kennt honum það. Það
gekk ekki alveg sem skyldi því ég
fylgdist aldrei með nótunum held-
ur spilaði bara eftir eyranu,“ segir
hann hlæjandi.
„Það er klárt mál að ég hef
tóneyrað frá afa. Mömmu finnst
reyndar voðalega gaman að syngja
og pabbi getur blístrað heilu lögin
eins og verið sé að spila þau á
flautu, sem ég skil ekki því sjálf-
ur get ég ekki blístrað. Ég hef samt
aldrei heyrt pabba syngja en lang-
ar mikið til þess.“
Þrátt fyrir að vera ekkert lærð-
ur í tónlist syngur Eyþór eins og
fagmaður og spilar á bæði gítar
og píanó. Kunnáttuna segir hann
hafa komið með reynslunni. „Ég er
rosalega meðvitaður um það sem
ég geri og hef áttað mig á hlutun-
um smám saman,“ segir hann.
Syngur stelpurnar í svefn
Eyþór hefur verið í sambúð með
Soffíu Ósk Guðmundsdóttur í tæp
þrjú ár, en þau kynntust árið 2008.
„Við hittumst fyrst kvöldið sem
ég vann Bandið hans Bubba en þá
óskaði hún mér bara til hamingju
og var svo horfin. Fyrir tilviljun
rakst ég svo á hana aftur stuttu
seinna og þaðan leiddi eitt af
öðru,“ segir hann glottandi en þau
eiga nú dótturina Elvu Marín sem
er rúmlega eins árs. Þar fyrir utan
á Soffía, sem er sjö árum eldri en
Eyþór, dæturnar Báru Katrínu og
Kristínu Emmu úr fyrra sambandi
og búa þær hjá þeim.
Eyþór tekur föðurhlutverkið
mjög alvarlega og segist oft syngja
stelpurnar í svefn. „Það hent-
ar mér augljóslega mun betur en
að lesa fyrir þær,“ segir hann og
hlær. Hann segir fjölskyldumann-
inn Eyþór og rokkarann Eyþór
vera mjög nána. „Nú til dags snýst
rokkið svo mikið um það að vera
heiðarlegur og samkvæmur sjálf-
um sér. Rokkarar þurfa ekki leng-
ur að ganga um í leðurbuxum, vera
uppdópaðir og líma húsgögnin sín
á hvolf, það er bara liðin tíð,“ segir
hann.
„Starstruck“ að hitta Ladda
Eyþór kom fyrst fyrir augu
almennings þegar hann tók þátt í
raunveruleikaþáttunum Bandinu
hans Bubba árið 2008. Skemmst
er að minnast þess í einum þættin-
um þegar Bubbi bað Eyþór Inga að
gera sér þann eina greiða að taka
aldrei þátt í Eurovision. Eyþór
hlær við þegar þetta er rifjað
upp. „Hann átti svo sjálfur lag í
keppninni eftir þetta svo hann er
örugglega ekkert of reiður. Hann
er í það minnsta ekki enn búinn
að hringja og skamma mig,“ segir
hann hlæjandi. Eyþór var í fyrstu
áhugalítill um að vera með í þátt-
unum en lét sannfærast af Bubba.
Hann sér ekki eftir því í dag því
þeir voru mikill stökkpallur.
Í framhaldi af þáttunum fékk
Eyþór alls kyns tilboð og segir
stærstu stund ferilsins hafa komið
árið 2011 þegar honum bauðst
að vinna með átrúnaðargoðinu,
Ladda. „Þegar ég las með Ladda
inn á teiknimyndina Lorex rætt-
ist einn af þessum æskudraum-
um sem maður bjóst aldrei við að
myndu rætast. Laddi er hetjan mín
og ég hef aldrei orðið eins „star-
struck“ og þegar ég hitti hann.
Hann er algjör sérfræðingur,“
segir hann. Draumurinn full-
komnaðist svo þegar þeir stóðu
saman á sviði í Vesalingunum það
sama ár.
Eurovision aldrei á planinu
„Ég horfði alltaf á Eurovision sem
pjakkur og á mín uppáhaldslög
eins og hver annar,“ segir Eyþór
og nefnir þar sem dæmi norska
framlagið In My Dreams sem Wig
Wam keppti með 2005 og sænska
sigurvegarann frá því í fyrra,
Loreen. Í mestu uppáhaldi hjá
honum er þó lagið My Star sem
Lettarnir í BrainStorm fluttu í
keppninni árið 2000. „Það var
alveg brilliant. Söngvarinn leit út
alveg eins og ungur Mick Jagger
og var ægilega spastískur,“ segir
hann.
Eyþór segist aldrei haft neitt á
móti Eurovision þrátt fyrir áhuga-
leysi á þátttöku hingað til. „Þetta
var aldrei á planinu en ég er
ofboðslega þakklátur fyrir þetta
tækifæri. Þetta er strax orðið
mikið ævintýri og ég efast ekki um
að ég eigi eftir að búa að þessari
reynslu til æviloka,“ segir hann.
Þrátt fyrir að vera sjálfur blaut-
ur á bak við eyrun þegar kemur að
keppninni er hann undir leiðsögn
tveggja reyndustu Eurovision-
kappa okkar Íslendinga, Örlygs
Smára og Péturs Arnar. Það hlýtur
að vera mikill styrkur? „Já, heldur
betur. Þeir þekkja allt sem varð-
ar keppnina, sem er frábært. Svo
skemmir ekki fyrir hvað þeir eru
skemmtilegir líka,“ segir Eyþór.
Að vanda hefur mikil umræða
spunnist um lagið Ég á líf eftir að
það sigraði Söngvakeppnina um
síðustu helgi. Eyþór hefur ekki
farið varhluta af þeirri umræðu
en segir þátttökuna samt sem áður
hafa verið þess virði. „Þegar öllu
er á botninn hvolft erum við sáttir
við það sem við erum að gera. Ég
hafði alveg búið mig undir einhver
leiðindi en það kemur manni samt
alltaf á óvart hvað sumir eru fljótir
að stökkva til og lyfta kyndlinum
á loft út af fárán legustu hlutum.
Við einbeitum okkur að jákvæðu
viðbrögðunum sem hafa verið svo
langtum fleiri en þau neikvæðu.
Það er fjöldi fólks sem tengir við
lagið og það er það sem skiptir
okkur máli,“ segir hann.
Skila á lokaútgáfu fyrir keppnina
í Malmö um miðjan mars. Eyþór
segir ekki vera búið að taka neinar
ákvarðanir um breytingar en hann
geti þó staðfest að hárið verði ekki
klippt. „Allt annað er opið,“ segir
hann og hlær.
Það eru því spennandi tímar
fram undan hjá þessum unga og
hæfileikaríka manni sem lofar því
þó að hann sé hvergi nærri hættur.
„Ég er langt í frá búinn að toppa í
lífinu, ég er rétt að byrja.“
Faðirinn og rokkarinn nánir vinir
Eyþór Ingi Gunnlaugsson söng sig inn í hjörtu landsmanna þegar hann fl utti lagið Ég á líf í Söngvakeppninni og sigraði með yfi r-
burðum. Eyþór Ingi sem hefur troðið upp síðan hann var lítill pjakkur segist hafa gert tvær misheppnaðar tilraunir til að læra tónlist.
MIKILL FJÖLSKYLDUMAÐUR Eyþór og
Soffía Ósk kynntust árið 2008 og hafa
verið í sambúð í tæp þrjú ár. Þau eiga
saman eina eins árs dóttur, Elvu Marín,
auk þess sem Soffía á tvær dætur úr
fyrra sambandi, Báru Katrínu 9 ára og
Kristínu Emmu 6 ára. Þær fagna hér
á sviðinu með parinu eftir að Eyþór
sigraði söngvakeppnina síðastliðinn
laugardag. MYND/VALGEIR MAGNÚSSON
HEFUR TÓNEYRAÐ FRÁ AFA SÍNUM Eyþór Ingi hefur aldrei verið mikill námsmaður. Hann hefur gert tvær misheppnaðar
tilraunir til að leggja stund á nám í tónlist en hefur að mestu kennt sér sjálfur. Tóneyrað segist hann hafa frá afa sínum sem
hefur aldrei lært á neitt hljóðfæri en getur þó gripið í þau flest. FRÉTTABLAÐIÐ/VILLI
2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013
Tók þátt í uppfærslu á Óliver
Twist með Leikfélagi Akur-
eyrar
Lék Jesú í upp-
færslu VMA og
MA á Jesus Christ
Superstar
Sigraði í Söng-
keppni framhalds-
skólanna fyrir hönd
VMA með lagið
Framtíð biður
Sigraði í raunveru-
leikaþáttunum
Bandið hans Bubba
Lék Riff
Raff í
uppfærslu
Leikfélags
Akureyrar
á Rocky
Horror
Gekk til liðs við hljómsveitina
Todmobile
Lék Berger
í uppfærslu
Silfurtungls-
ins á Hárinu
Lék Maríus
í uppfærslu
Þjóðleik-
hússins á
Vesalingunum
Sigraði Söngva-
keppnina og keppir
fyrir Íslands hönd í
Eurovision
Tinna Rós
Steinsdóttir
tinnaros@frettabladid.is
Söngvarinn og Eurovision-farinn Friðrik Ómar
Hjörleifsson er Dalvíkingur, rétt eins og Eyþór. Hann
útskrifaðist úr grunnskólanum á Dalvík og fór þá
beint að kenna tónmennt í skólanum. „Hann var
bara 16 ára þegar hann byrjaði að kenna mér tón-
mennt og ég man alltaf eftir atviki þar sem hann
lét okkur teikna myndir í frjálsum tíma. Ég teiknaði
mynd af honum á sviði og skrifaði þar fyrir ofan
Friðrik Ómar í Eurovision eftir nokkur ár. Ég man
að hann tók við myndinni og hló. Ég veit ekki hvað
það var en ég gerði bara alltaf ráð fyrir því að hann
myndi taka þátt í þessari keppni,“ segir Eyþór sem
hefur ekki verið eldri en 10 ára þegar atvikið átti sér
stað.
Þeir eru góðir vinir í dag og það var til að mynda
hugmynd Friðriks Ómars að Eyþór myndi skipta
um jakka áður en hann steig á svið í einvíginu í
Söngvakeppninni um síðustu helgi. Þeir komu fram
saman á Freddie Mercury-heiðurstónleikunum í
fyrra auk þess sem hljómsveitin Dalvík All-Star
hefur tvisvar komið fram, en hún samanstendur af
Eyþóri Inga, Friðriki Ómari, Matta Matt og Begga
Kára. „Friðrik er einn skemmtilegasti trommari
sem ég hef nokkru sinni spilað með,“ segir Eyþór.
Vissi að Friðrik Ómar færi í Eurovision
HELSTU SKREF Í FERLI EYÞÓRS