Fréttablaðið - 09.02.2013, Page 38

Fréttablaðið - 09.02.2013, Page 38
9. febrúar 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 38 Ég var nú ekkert ákveðinn í því hvað ég vildi verða þegar ég fór í inntöku-prófið í Statens Teater-skole í Kaupmanna-höfn enda var ég bara að aðstoða Signýju Páls við atriðið hennar í inntökuprófinu. Það end- aði samt þannig að ég komst inn en ekki hún, en hún varð seinna leikhússtjóri á Akureyri. Ég var ekki lengi í skólanum, var rekinn eftir eitt ár. Þetta var á hippaárun- um og ég þurfti auðvitað að prófa allt sem hægt var að prófa, mætti 50% í skólann og hafði nákvæm- lega engan áhuga á þessu. Ég hafði verið formaður Herranætur í MR og í kringum það stúss fékk ég eig- inlega ógeð á hefðbundinni leiklist. Það var hluti af uppreisn æskuár- anna sem gekk út á það að vera á móti öllum borgaralegum hefðum þannig að ríkisleiklistarskóli til- heyrði auðvitað að vissu leyti óvin- unum. Ég var búinn að fá þrjár viðvaranir en ákvað samt síðasta kvöldið að vera frekar með komm- únunni minni en mæta í skólann. Morguninn eftir var mér sagt að taka dótið mitt, ég gæti svo komið aftur þegar ég væri búinn að taka mig saman í andlitinu. Ég náttúru- lega dansaði út á götu æpandi „Ég er frjáls, ég er frjáls!“ en ég hef oft séð eftir þessu síðan.“ Brottreksturinn mikið áfall Leiklistarferillinn tók samt ekki enda þarna, heldur stofnaði Árni Pétur leiklistarhóp sem hét Kraka og sýndi víða um Danmörku. Í millitíðinni hafði hann þó komið heim og reynt að stofna frjáls- an leikhóp sem hafði aðstöðu á bílaverkstæði í Hveragerði en sá draumur gekk ekki upp og hann hélt til Danmerkur á ný í þeim til- gangi að stunda leiklistarkenn- aranám. Eftir áralanga dvöl í Dan- mörku og öfluga starfsemi með Kröku hélt hann heim til Íslands á ný og hóf nám við Leiklistar- skólann. „Ég sá að það var erfitt að komast inn í bransann hér heima eftir allan þennan tíma úti og tók tvö ár í Leiklistarskólanum sem endur- og framhaldsmenntun. Ég þótti nokkuð gamall þegar ég útskrifaðist, 34 ára, en ég var vel tengdur inn í leiklistarheiminn hér enda höfðu margir af þeim sem voru að reyna að gera nýja hluti komið út og leikið með Kröku um tíma. Ég vann mikið með Gíó, Guð- jóni Pedersen, og fyrsta sýningin sem kom okkur báðum á kortið var Kontrabassinn sem við settum upp í bakhúsi við Kjörgarð.“ Eftir þá sýningu var Árni Pétur fastráðinn við Borgarleikhúsið þar sem hann var þangað til honum var sagt upp árið 2000. Hvernig upplifun var það að vera sparkað úr leikhúsinu? „Það var rosalegt áfall en ég var reynd- ar orðinn mjög latur leikari, var eiginlega búinn að missa áhug- ann. Þótt það sé þægilegt að fá föst laun verður leikari að fá að minnsta kosti eitt hlutverk á ári sem hann svitnar yfir og hugsar: ég get þetta aldrei. Það er alveg nauðsynleg ögrun. Þetta gerðist ekki hjá mér síðustu árin í Borgar- leikhúsinu þannig að ég var bara kominn með inniskóna inn í bún- ingsherbergi. Eftir á að hyggja var þetta rosalega gott fyrir mig en ég tók þetta mjög nærri mér, upplifði mikla höfnun. Brottrekstur leik- ara er alltaf erfiður, hann missir ekki bara vinnuna heldur virð- ingu og félagsleg tengsl og svo er þetta blásið upp í blöðunum þannig að ég hrundi eiginlega alveg. Ég bjó einn, var nýskilinn og bara lamaðist hálfpartinn. Það sem hélt mér gangandi var hugsunin um að passa að ónæmiskerfið hryndi ekki. Ég byrjaði að taka vítamín, fór í líkamsrækt, fór að skoða and- leg málefni og almennt að vinna með sjálfan mig. Ég er búddisti og þar er talað um að helvíti hafi bæði jákvæða og neikvæða hlið því þegar þú ert kominn á botninn spyrnirðu þér upp. Þú getur auð- vitað valið að liggja á botninum og marinerast en það er ekki minn stíll. Smátt og smátt fékk ég lífs- viljann aftur og byrjaði að vinna með frjálsum leikhópum sem end- aði með því að ég fór að leika með Vesturporti í Rómeó og Júlíu. Það var stórkostlegt ævintýri, maður var að vinna í London marga mán- uði á ári og á endalausum ferða- lögum. Svo hefur þetta bara hlaðið utan á sig og ég hef eiginlega aldrei haft meira að gera.“ Seinni blómgunin Er það ekki óvenjulegt að vera að blómstra sem leikari rúmlega sextugur? „Nei, eiginlega ekki. Ég bjóst samt reyndar við að þetta myndi gerast seinna. Í Noh-leik- húsinu japanska er talað um seinni blómgun en hún á sér yfirleitt ekki stað fyrr en skömmu áður en dauð- inn sækir þig. Fyrri blómgunin er auðvitað þegar þú ert ungur og fagur leikari eins og ég var einu sinni, standandi fremst á sviðinu með bláu augun fljótandi í tárum. Svo kemur tímabilið þegar þú eld- ist og upplifir það að alveg sama hvað þú gerir á sviðinu þá fylgja augu áhorfenda unga hæfileika- lausa stráknum við hliðina á þér. Þú sérð að áhorfendur vilja horfa á æskuna, eins og fólk vill horfa á lömb eða folöld, það er kraftur æskunnar sem er mest spennandi. Fertugi leikarinn verður bara að taka því og halda áfram að vinna. Þá nær hann því sem kallast seinni blómgun eins og við sjáum oft hjá eldri leikurum sem allt í einu springa út. Þetta er að gerast hjá mér núna einfaldlega vegna þess að það er skortur á leikurum á mínum aldri. Ég held líka að unga fólkið hugsi til mín þegar það vant- ar eldri mann í sýningar því ég hef alltaf sagt já þegar ungir leik- stjórar hringja í mig og biðja mig að vera með í einhverju spennandi. Oftast er það í litlum verkefnum sem ekkert er borgað fyrir en það skilar sér seinna. Þegar Gísli Örn hringdi í mig og bað mig að vera með í Rómeó og Júlíu átti hann ekki von á að þetta yrðu nema tíu sýningar sem myndu ekki skila Vill dansa nakinn áttræður Árni Pétur Guðjónsson segist vera á seinna blómgunartímabilinu sem leikari enda sjaldan verið meira áberandi í íslenskri leiklist. Leikur aðalhlutverk í sjónvarpsþáttunum Hæ Gosa og eitt aðalhlutverka í Segðu mér satt sem frum- sýnt var í Kúlunni í fyrrakvöld. BLÓMGAST Árni Pétur segist verða spenntari fyrir sjálfum sér sem leikara með árunum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Ég er algjörlega heillaðar af því sem kallað er „dysfunctional“ fjölskyldur. Held þær séu það flestar reyndar. Segðu mér satt fjallar um eina slíka, baráttuna um athygli hinna fjölskyldu- meðlimanna, öll hlutverkin sem við leikum innan fjölskyldunnar, allar sögurnar sem eru aldrei sagðar, lygina. Þetta eru allt hlutir sem við erum öll alltaf að fást við og mér finnst það spennandi. Á ungdómsárum mínum var bókin Sanity, Madness and the Family eftir R.D. Laing mikið lesin og við höfðum róttækar hugmyndir um að breyta þessu staðnaða fjölskylduformi. Reyndum það með kommúnunum en einhvern veginn komum við alltaf aftur að þessu hefðbundna fjölskyldu- formi, sennilega af því að það er það sem við búum við á mótunarárunum.“ Baráttan í fjölskyldunni FJÖLSKYLDAN Árni í hlutverki sínu í Segðu mér satt ásamt Ragnheiði Steindórsdóttur sem leikur konu hans og Sveini Ólafi Gunnarssyni sem leikur son þeirra. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA neinum launum en sýningarnar urðu 450.“ Dansa nakinn á áttræðisafmælinu Þú ert mjög duglegur að taka þátt í framsæknum sýningum með ungu fólki, er aldrei óþægilegt að vera „gamli maðurinn“ í hópnum? „Þegar ég var að vinna með Vest- urporti í London voru öll hin þrjá- tíu árum yngri en ég. Það var helst þegar pabbi þeirra og mamma komu í heimsókn sem ég gat rætt við fólk á mínum aldri. Það er mjög algengt að ég sé langelstur í leik- hópnum, sem er fínt, gaman og ögrandi en stundum erfitt. Þess vegna er svo gaman að vinna með Ragnheiði Steindórs núna í Segðu mér satt. Við höfum ekki leikið saman síðan í Lýsiströtu á Herra- nótt árið 1970. Það er annars konar ögrun. En ég verð bara spenntari fyrir sjálfum mér sem leikara eftir því sem ég eldist. Draumur minn er að vera með gott leikhús um átt- rætt. Jafnvel fara til Japans og læra butoh og gerast butoh-dansari í ellinni. Ég hef alltaf verið heill- aður af dansi. Þegar ég var krakki var ég sídansandi og langaði óskaplega að læra ballett. Þegar ég var fimm, sex ára töluðu pabbi og mamma við mann sem seinna varð áhrifamaður í íslensku leik- húsi og spurðu í hvaða ballettskóla væri best að senda strákinn. Við- komandi svaraði um hæl að það mættu þau alls ekki gera því þá yrði drengurinn sódómískur. Ég held því fram að þessi maður hafi eyðilagt glæsilegan feril minn sem ballettdansara.“ En hvaða hlutverk ætlarðu að leika í leikhúsinu þínu þarna um áttrætt? „Lér konungur er algjört möst, ég verð að taka hann. Og Lafði Macbeth. Svo hugsa ég að þetta verði bara alls konar dans- sýningar. Hef sagt frá því áður að draumurinn er að dansa nakinn á ákveðnum akri á Spáni á áttræðis- afmælinu. Ég býst við að ég verði að standa við það.“ Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.