Fréttablaðið - 09.02.2013, Síða 44

Fréttablaðið - 09.02.2013, Síða 44
FÓLK| LÍFSGLÖÐ Oddný segir lærdómsríkt og krefjandi að vera borgarfulltrúi en að vinnan og samstarfsfólkið sé ávallt skemmtilegt. MYND/GVA HELGIN Enginn er góður í öllu. Ég er engin ofurkona en held stundum að ég geti orðið það. Ég las nýlega uppörvandi speki um að engin gæti orðið full- komin móðir en að til væru milljón leiðir í áttina að því að verða góð móðir. Ég hef vissulega yndi af því að hugsa um börnin en er glötuð húsmóðir. Ég horfi í undrun á kon- ur sem eru hugdjarfar í eldhúsinu, búa til exótískt hummus og sitja við hannyrðir að auki. Ég reyni það ekki einu sinni en hef ekki heldur minnimáttarkennd yfir því. Ég kemst klakklaust frá eldamennsku en hef þó meira gaman af því að vera boðið í mat og er skemmti- legur gestur sem getur haldið uppi stuðinu og auk þess spilað á píanó á móti,“ segir Oddný kát og skýjum ofar á leið þvert yfir Ísland. „Helgin er óvenjuleg því borgar- stjórn í heild sinni, með manni og mús, flýgur nú í fyrsta sinn til fundar við bæjarstjórn Akureyrar. Það er skemmtileg nýlunda og ég hlakka mikið til því Akureyri er uppáhaldsstaðurinn minn fyrir utan Reykjavík,“ segir Oddný sem líkast til tekur sundsprett og kíkir á Bautann og Bláu könnuna eins og hún gerir alltaf nyrðra. DAGLEGUR SÖKNUÐUR „Ég er með Reykjavík á heilanum. Ég hef verið skotin í henni síðan ég komst til vits og ára, skrifað um hana bók og verið á kafi í tón- listarsenunni sem er svo merkileg í Reykjavík. Ég hef því staðið í sam- félagslegri baráttu fyrir Reykja- vík síðan ég var stelpa,“ útskýrir Oddný sem er píanókennari að mennt en sá fljótt að píanókennsla yrði ekki farsæl blanda með fullu starfi í borgarstjórn. „Ég sakna þess á hverjum degi að vera píanókennari og tel ekkert starf jafnast á við kennarastarfið. Í því er maður svo lánsamur eiga daglegt samneyti við yndisleg börn og unglinga, sjá þau taka framför- um, finna traust þeirra og spjalla um heima og geima. Sú endurgjöf er óheyrilega dýrmætur fylgifiskur kennarastarfsins sem fá störf kom- ast í hálfkvisti við.” Oddný segir pólitík hafa orðið hlutskipti sitt eftir að hún þýddi bókina Móðir í hjáverkum 2005. „Bókin fjallar um veruleika kvenna sem stunda krefjandi starf samhliða uppeldi lítilla barna. Ég var þá sjálf á bólakafi í uppeldi smábarna en fór víða í tengslum við bókina og uppgötvaði eftir- spurn eftir rödd minni,“ segir Oddný sem verið hefur með kennd- ir til stjórnmála alla tíð. „Ég var mjög virkur unglingur í minni félagsmiðstöð og hvött til mótunar og þróunar unglingalýð- ræðis í hverfinu. Þá voru foreldrar mínir og margir kennarar góðar fyrirmyndir og fljótt blundaði í mér að gefa til baka það sem mér var gefið. Skrefið við að fara í próf- kjör og á endanum í borgarstjórn var því ekki svo súrrealískt og mér þótti spennandi að komast hinum megin við borðið og hafa áhrif á uppvöxt í borginni.“ VILL HJARTSLÁTT LÍFSINS Oddný er uppalin í Árbæ sem hún hefur enn sterkar taugar til. „Síðan ég byrjaði í menntaskóla hef ég þó búið í 101 og alltaf liðið vel. Þar kann ég vel við fjölbreyti- leika mannlífsins og að börnin gangi í skóla sem einkennist af margbreytileika og eykur þeim víðsýni. Ég er svo sérvitur að vilja helst ekki nota bíl og þar hentar miðbærinn vel. Mér finnst líka gott að búa í miklu nábýli við nágranna mína á meðan öðrum finnst gott að búa í einbýli með háu limgerði og stórum skjólveggjum í kring. Ég vil finna hjartslátt lífsins í kringum mig, geta spilað á píanó og fengið vinkonurnar heim til að sitja fram eftir því það er hluti af því að vera til.“ EINSTÆÐ EN EKKI Á LAUSU Oddný er einstæð tveggja barna móðir. „Ég er einstæð en ekki á lausu. Kærastinn er doktor í jarð- eðlisfræði við háskóla í fjarlægu landi og auðvitað vona ég að hann sé á heimleið. Við erum geysilega nútímalegt par sem hittist stundum á Íslandi og stundum í útlöndum,“ segir Oddný sem skiptir jafnt for- ræði og umgengni barnanna við barnsföður sinn. „Þegar ég er barnlaus hitti ég vinkonur og fer á kaffihús en ég er mikil félagsvera og þarf stundum að minna mig á að það sé í góðu lagi líka að vera heima og gera ekki neitt,“ segir Oddný. „Það er gaman að vera ég og glasið alltaf hálffullt. Mér finnst gaman að vera á fartinni en heima er líka mikil eftirspurn eftir klass- ískum kósíheitum um helgar; að vera í náttfötunum, elda lasanja, poppa og horfa á góða mynd. Það er fastur liður og auðvitað allra bestu stundirnar enda börnin minn uppáhaldsfélagsskapur.“ Þegar Oddný kemur heim bíða börnin og dagskrá Vetrarhátíðar. „Við börnin erum miklir spila- nördar og spilum nú gjarnan gamla Matador með Víðimel, Loftleiðum og Almennum tryggingum. Við end- um því örugglega í Ráðhúsinu þar sem Spilavinir verða með skemmti- lega dagskrá. Að þessu sinni mæla þeir með spilum þar sem lygi, blekkingar og svindl ráða ríkjum og það hljómar vel. Við sonur minn getum verið bíræfnir svindlarar og ætlum að fá útrás fyrir það allt saman.“ ■ thordis@365.is SKOTIN Í REYKJAVÍK HÁLFFULLT GLAS Oddnýju Sturludóttur borgarfulltrúa þykir gaman að vera á fartinni um helgar en er á sama tíma krafin um lasanja og kósíheit heima. ÁSTFANGIN „Ég er einstæð en ekki á lausu. Kærastinn er doktor í jarðeðlisfræði við háskóla í fjarlægu landi.“ Leiðbeinandi Jón Guðmundsson garðyrkjufræðingur Staðsetning námskeiða Á höfuðborgarsvæðinu verða námskeiðin haldin í sal á þriðju hæð hjá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands, íþróttamiðstöðinni í Laugardal, Hús 2, Engjavegi 6. Fossheið i 1 800 Se l foss S ími 578 4800 Hin sívinsælu ræktunarnámskeið okkar eru hafin Skráning Skráning og nánari upplýsingar eru í síma 578 4800, á heimasíðu okkar www.rit.is og á netfang rit@rit.is Námskeið verða einnig haldin víða um land, fylgist með á Facebook eða heimasíðum okkar, www.rit.is og www.groandinn.is Ræktun ávaxtatrjáa, 2 kvöld Mánud. 11. og 18. feb. kl. 19:30 - 22:00 Verð kr. 12.800.- Ræktun berjarunna Mánud. 11. feb. kl. 17:00 - 19:00 Verð kr. 4.500.- Matjurtaræktun, tvö kvöld Fimmtud. 14. og 21. feb kl. 19:30 - 22:00 Verð kr. 12.800.- Kryddjurtaræktun Fimmtud. 14. feb. kl. 17:00 - 19:00. Verð kr. 4.500.- Leiðbeinendur Auður I Ottesen garðyrkjufræðingur Jón Guðmundsson garðyrkjufræðingur Staðsetning námskeiða Á höfuðborgarsvæðinu verða námskeiðin haldin í sal á þriðju hæð hjá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands, íþróttamiðstöðinni í Laugardal, Hús 2, Engjavegi 6. Fossheið i 1 800 Se l foss S ími 578 4800 Hin sívinsælu ræktunarnámskeið okkar eru hafin Skráning Skráning og nánari upplýsingar eru í síma 578 4800, á heimasíðu okkar www.rit.is og á netfang rit@rit.is Námskeið verða einnig haldin víða um land, fylgist með á Facebook eða heimasíðum okkar, www.rit.is og www.groandinn.is Póstdreifing | Suðurhraun 1 | 210 Garðabær | Sími 585 8300 | www.postdreifing.is 365 miðlar treysta okkur fyrir öruggri dreifingu á Fréttablaðinu Við flytjum þér góðar fréttir FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug- lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs- ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473 Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.