Fréttablaðið - 02.03.2013, Page 2

Fréttablaðið - 02.03.2013, Page 2
2. mars 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 2FRÉTTIR 2➜10 SKOÐUN 12➜18 HELGIN 22➜54 SPORT 80 MENNING 64➜86 Pétur Einarsson var rekinn úr starfi sínu hjá Straumi eftir að honum var meinað að stýra fjármálafyrirtækjum í Bretlandi vegna skattamisferlis. Í tilkynningu frá Straumi sagði þó að umfjöllun fjölmiðla um málið væri ástæða starfslokanna. Björk Eiðsdóttir hætti skyndilega sem rit- stjóri Séðs og heyrðs í vikunni og hefur ekkert viljað segja um ástæðuna. Nýr ritstjóri mundi gera vel í að komast til botns í málinu og slá fréttinni svo upp á forsíðu næsta heftis. Ljósmyndarinn Ingólfur Júlíusson heyr um þessar mundir harða baráttu við hvítblæði. Á fimmtudagskvöld voru haldnir tónleikar til styrktar honum þar sem fram komu fjölmargir þekktir músíkantar. Ingólfur lét veikindin ekki halda sér frá sviðinu og greip í gítarinn með Q4U. Magnús Níelsson hjá Gæðakokkum í Borgar- nesi varð uppvís að því að selja nautabökur án kjöts. Hann var steinhissa á rannsóknar- niðurstöðunum og sagði málið óskiljanlegt með öllu. FIMM Í FRÉTTUM STARFSLOK OG NÝR ÍSLENDINGUR BÁÐUM ENDUM LOKAÐ 12 Þorsteinn Pálsson um stjórnmál. SPURNINGIN UM KRÓNUNA 16 Þórarinn G. Pétursson um hagstjórn og myntkerfi . EVRÓPULEIÐIN, NORÐURSLÓÐIR OG ASÍUGÁTTIN 18 Össur Skarphéðinsson um utanríkismál. TÖLVUÓGNIR Í BRENNIDEPLI 32 Tölvuhakkarar færa sig sífellt ofar á skaft ið á öllum sviðum. DYNGJAN OPNAÐI NÝJA VÍDD 34 Aldís Höskuldsdóttir, sem dvaldi á áfangaheimilinu Dyngju fyrir aldarfj órðungi, hjálpar nú sjálf konum sem þangað leita eft ir áfengismeðferð. GULLÆÐI Á ÍSLANDI 36 Saga gullleitar á Íslandi er litríkari og með meiri ólíkindum en margan grunar. MEÐ MARGA KJUÐA Á LOFTI 42 Bóksalinn, trymbillinn, tónleikahaldarinn, útvarpsmaðurinn, eiginmaðurinn og faðirinn Kristján Freyr Halldórsson hefur í mörg horn að líta. Í FÓTSPOR MEISTARANS 46 Alexander Wang fatahönnuður kynnti fyrstu línu sína fyrir Balenciaga á dögunum. FYRSTI LÆKNIRINN 48 Hrafn Sveinbjarnarson á Eyri við Arnarfj örð var einn kunnasti læknir Íslendingasagnanna. Hann var maður sátta en hans biðu þó þau örlög að verða veginn fyrir réttum 800 árum. ÍSLAND ER SÉNÍLAUST 64 Hallgrímur Helgason minnist Þorvaldar Þorsteinssonar sem féll frá á dögunum. VEISLA FYRIR BÖRNIN 70 Uppskrift ir að nokkrum góðum afmæliskökum. VOR Í LOFTI 72 Tímaritið Nýtt líf blés til allsherjar vorfagnaðar í Hafnarhúsinu. HÁTÍÐ Á HEIÐINNI 86 Viðræður standa yfi r um að halda tónlistarhátíðina All Tomorrow‘s Parties á svæði varnarliðsins á Miðnesheiði. AÐEINS Í DAG! kíktu inn á www.pfaff.is Pfaff // Grensásvegi 13 // Sími 414 0400 Opið í dag kl. 11-16. VERÐ ÁÐUR 10.900,- NÚ 6.900,- 37% VERÐ ÁÐUR 14.900,- NÚ 9.900,- BRAUN RAKVÉL 190 BRAUN RAKVÉL CRUZER5 33% TILVALINGJÖF! ➜ Íslenska kvennalandsliðið í handbolta gæti senn eignast nýjan markvörð, því að Florentina Stanciu, rúmenska landsliðskonan á mála hjá ÍBV, er á meðal þeirra sem allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis leggur til að fái ríkisborgararétt. LÖGREGLUMÁL „Þetta var alveg með ólíkindum,“ segir Kári Gunnlaugsson yfirtollvörður um íslenskan ellilífeyrisþega sem var gripinn í tollinum í Leifsstöð seinni partinn á sunnudag með um sjötíu þúsund skammta af sterum í farangrinum. Kári segist hreinlega ekki muna eftir öðru eins. „Ég held að við höfum aldrei tekið svona mikið í einu áður,“ segir hann um sterasmyglið. Maðurinn, sem er 68 ára – fæddur árið 1945 – var með tvær töskur meðferðis, eina stóreflis ferðatösku og svokallaða flugfreyjutösku sem hann hafði í handfarangri. Í hvorugri töskunni var hins vegar arða af hefðbundnum far- angri, heldur voru þær báðar sneisafullar af ólöglegum lyfjum. Efnin voru af ýmsu tagi og á ýmsu formi – töflur, ampúl- ur, lyfjahylki og auk þess spraut- unálar. Maðurinn var að koma alla leið frá Taílandi, þar sem hann dvelur þorrann úr árinu. Hann er hins vegar ekki með lögheim- ili þar ytra og þarf því ferðast úr landinu reglulega til að fá endur- nýjað landvistarleyfi. Þau ferðalög nýtir hann í heimsóknir hingað til lands. Í kjölfar þess að maðurinn var handtekinn á sunnudag gerði lög- reglan á Suðurnesjum húsleit á heimili hans hér í borginni og fann þar umtalsvert magn af ólöglegum lyfjum til viðbótar, aðallega stinn- ingarlyfjum. Þá segir auk þess í tilkynningu frá tollinum að maðurinn hafi áður gerst brotlegur við lög. Hann hafi nýlega reynt að smygla til lands- ins 800 töflum af stinningarlyfinu Kamagra. Einn skammtur af Kamagra mun kosta þrjú til fimm þúsund krónur á svörtum markaði. Það má því ljóst vera að hefði smygl- ið heppnast hefði maðurinn getað haft vel upp úr sölunni. Það þykir einmitt ljóst að efnin hafi meira og minna verið ætluð til sölu, enda um gríðarmikið magn að ræða, auk þess sem það var orðað svo við blaðamann að það væri ekki beint að sjá á manninum að hann hefði neytt mikilla stera. stigur@frettabladid.is Klyfjaður af sterum og stinningarlyfjum Tollverðir ráku upp stór augu þegar þeir opnuðu töskur ellilífeyrisþega sem kom til landsins frá Taílandi með ekkert í farangrinum annað en stera og stinningarlyf. Var með sjötíu þúsund steraskammta. Yfirtollvörðurinn man ekki eftir öðru eins. MEÐ ÓLÍKINDUM Lyfin dekkuðu heilt borð eftir að þau höfðu verið tekin upp úr töskunum. Kári Gunnlaugsson og kollegar hans voru forviða á magninu. MYND/TOLLURINN KÁRI GUNN- LAUGSSON MYND/SKESSUHORN KRAKKASÍÐA 52 KROSSGÁTA 54 Á STÆRSTA SVIÐINU Í LAS VEGAS 80 Gunnar Nelson mun berjast við hinn 37 ára gamla Mike Pyle í UFC í Las Vegas í Bandaríkjunum í lok maí en þetta er stærsta svið UFC-bardagaheimsins. Í UNDANÚRSLIT Á EM Í FRJÁLSUM 80 Aníta Hinriksdóttir komst í gær í undanúrslit á EM í frjálsum en þjálfarinn hennar segir hana geta hlaupið hraðar í dag. Samferða á Samfés EFTIRVÆNTING Gleðin skein úr andlitum tíundu bekkinga í grunnskólum landsins þegar þeir streymdu þúsundum saman í þéttsetnum rútum að Laugardalshöll þar sem hið árlega Samfestingsball var haldið í gær. Fjörið í Höllinni heldur áfram í dag með söngkeppni Samfés. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN HÖRÐ ÁTÖK UM NIÐURSKURÐ Á BANDARÍKJAÞINGI. 4 MISTÓKST AÐ MÓTA STEFNU UM LAGNINGU RAFLÍNA. 8 FLESTIR VILJA SIGMUND DAVÍÐ Í STJÓRNARRÁÐIÐ. 10 „Goldman er líka með puttana í þessu.“ 6 Úr skjali um sölu á Íslandsbanka og Arion banka.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.