Fréttablaðið - 02.03.2013, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 02.03.2013, Blaðsíða 30
2. mars 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 30 Brynja Þorgeirsdóttir sjónvarpskona og nemi í bókmenntafræði Órar, súpur og ljóðakonfekt Bjargráðin í bókunum Hinn árlegi bókamarkaður Félags bókaútgefenda stendur nú yfir í Perlunni. Fréttablaðið senda fjóra valinkunna einstaklinga á markaðinn með það fyrir augum að velja sér bækur sem þeir myndu velja sér til að komast af á eyðieyju. AFL HUGANS, EKKERT LEYNDAR- MÁL Irma Lauridsen Ég huga mikið að andlegu hliðinni og það er kjörið tækifæri að rækta hana þegar maður er strandaglópur á eyðieyju. Svo ég tali nú ekki um hversu mikilvægt það er nú að halda sönsum. MÁTTURINN Í NÚINU Eckhart Tolle Það er alltaf mikilvægt að geta lifað í núinu og notið lifandi stundar. Að vera einn á eyðieyju væri án efa krefjandi en samt á sama tíma mögnuð upplifun. Þess vegna er enn mikilvægara að geta notið þess. MÁTTUR ATHYGLINNAR Guðni Gunnarsson Þessi kæmi sér án efa vel til að aðlaga sig að nýju lífi. Máttur viljans hitti beint í mark hjá mér og ég bíð spennt eftir því að lesa þessa. HÚSIÐ Stefán Máni Ég myndi þó ekki bara vilja huga að andlegu hliðinni, maður þarf að skemmta sér líka. Ég er búin að lesa flestar bækurnar hans Stefáns Mána og verið límd við hverja einustu þeirra. Húsið á ég eftir og ef ég þekki Stefán Mána rétt þá myndi mér ekki leiðast á meðan ég hef þessa. ICELAND, A FIERY SOUL BENEATH AN ICY SURFACE Síðast en ekki síst myndi ég alveg örugglega fá heimþrá á endanum. Þá kemur sér ansi vel að hafa svona fal- legar myndir að heiman við höndina. ÓRAPLÁGAN Slavoj Žižek Fátt hressir eins og hinn brjálaði, mótsagnakenndi og frjói rokkstjörnuheimspekingur Žižek. Óraplágan er grundvallarrit til að hugsa um fánýti mannsam- félagsins meðan maður situr aleinn á eyðieyju. SÚPUR ALLT ÁRIÐ Sigurveig Káradóttir Til að gera hollar og góðar súpur úr því sem ég finn á eyjunni. HAPP HAPP HÚRRA Eitthvað verður maður að borða á eynni. Líst ótrúlega vel á þessa matreiðslubók, hollir og góðir réttir þar sem grænmeti, ávextir, hnetur og fræ eru í öndvegi, en líka kjöt. EINU SINNI SÖGUR Kristín Ómarsdóttir Alltaf þótt vænt um þessa spriklandi og blátt áfram bók Kristínar, því hún hafði nokkuð mikil áhrif á mig sem ungling en ég hef aldrei átt hana. Nú fékk ég tækifærið og tek hana með mér á eyjuna til að komast í tengsl við frumsjálfið. LJÓÐASAFN Stefán Hörður Grímsson Heppin ég. Þessi geymir öll ljóð Stefáns sem eru prentuð í útgefnum ljóðabókum hans. Hægt að lesa aftur og aftur. Gaman verður að liggja undir kókospálma á eyjunni minni, borða ljúffenga súpu úr súpubókinni og pæla í gamla. TUNGLIÐ BRAUST INN Í HÚSIÐ ljóðaþýðing- ar/Gyrðir Elíasson Fyrir fallega drauma á eyðieyjunni. Þetta er sérstakt konfekt til að lesa áður en maður hallar sér undir stjörnunum og dreymir eitthvað út frá textanum. Snilldarþýðingar Gyrðis á ljóðum eftir 36 skáld, allt frá Kína á 4. öld til Bandaríkja nútímans. ENGILL, PÍPUHATTUR OG JARÐARBER Sjón Átti alltaf eftir að lesa þessa litlu bók hans Sjóns. Það er alltaf ævintýri að stíga inn í yndislega furðu- heima hans. Allt er opið og maður veit aldrei hvað gerist. Svo þessi verður tekin upp þegar ég vil flýja inn í annan heim á eyðieyjunni. SKRIFAÐ VIÐ NÚLLPUNKT Roland Barthes Til að halda í róttæknina. Fyrsta bók franska (bókmennta)fræðingsins sem síðar sagði höfundinn dauðan, strax þarna kominn í mótþróa; róttækur, sniðugur og feikivel skrifandi. MORGUNVERÐUR Á TIFFANY‘S Truman Capote Audrey Hepburn er framan á kápunni. Það seldi þetta. Ég var að sjá fyrir mér að ef ég yrði vitstola á eyjunni gæti ég átt í sama sambandi við Audrey og Tom Hanks átti við blakboltann Wilson í myndinni Cast Away. FRÖNSK SVÍTA Irène Némirovsky Þetta voru svona flugvallarkaup. Ég hugsaði „já, var þetta ekki eitthvað“. En heimsblaðið Observer stimplaði þetta sem meistaraverk á kápunni, þannig að ég tók þetta. RITSAFN THORS VILHJÁLMSSONAR Ég hef því miður enn ekkert lesið eftir Thor Vilhjálmsson. En að láta Grámos- ann glóa beint ofan í sálartetrið undir kókoshnetutré hljómar virkilega vel. ÆVISAGA STEVE JOBS Walter Isacs Steve Jobs átti auðæfi sem voru metin á 10 milljarða dollara, en samt gekk hann um í svörtum rúllukragabol. Þetta er mjög áhugaverður maður. Ég vil vita meira. BORGIN HLÓ Matthías Jóhannessen Á eyðieyjunni er gott að hafa ljóðabók. Ljóð getur maður lesið aftur og aftur. Matthías er ekki knappur eins og rígundinn krepsokkur, líkt og margir hinna módernistana, heldur lætur gamminn geisa með auðugu mynd- máli. SKÝRSLA RANNSÓKNARNEFNDAR ALÞINGIS ÖLL BINDIN Ég hef ekki enn haft þessa 2-3 mánuði á lausu sem þarf til að sökkva mér ofan í skýrslu rannsóknarnefndar. Þetta er klárlega besta „value for money“ á bókamarkaðnum og mjög drjúgt á eyjunni. Svo er alveg ljóst að það verður grillað öll kvöld enda nægan eldivið að finna í þessu. Jóhann Alfreð Kristinsson félagi í Mið-Ísland Rannsóknarskýrslan á grillið PENINGARNIR SIGRA HEIMINN Niall Ferguson Höfundurinn er prófessor í Oxford og Harvard og feikisnjall náungi. Hann er eini fræðimaðurinn sem ég heyrði spá fyrir um fjármálakreppuna. Hann gerði það sumarið 2007, þegar hann kom til Íslands á vegum Kaupþings og ég ræddi við hann. Þessi bók skýrir hinn dularfulla heim peninga og verðbréfa betur en nokkur önnur sem ég þekki. ÆVINTÝRAEYJAN Ármann Þorvaldsson Bókin er um bankahrunið eftir einn þátttakandann, sem var forstjóri Singer & Friedlander, banka Kaup- þings í Bretlandi. Þetta er hreinskilnislegt uppgjör hans við hrunið og mjög skemmtilegt aflestrar, skrifað af fjöri og fyndni. Ármann lifði ævintýralegu lífi úti í Lundúnum en var dálítill prakkari inn við beinið, eins og kemur fram í bókinni. HVERS VEGNA FITNUM VIÐ? Gary Taubes Taubes er bandarískur vísindablaðamaður og fjallar um vanda sem menn þurftu almennt aðeins að glíma við eftir að aldurinn færðist yfir þá hér áður fyrr. Nú er offita hins vegar líka orðin úrlausnarefni ungs fólks. Ég myndi að vísu ekki gefa þessa bók, því að hætt yrði við að viðtakandinn móðgaðist, en boðskapur Taubes er skýr: Við fitnum af því að matur okkar er of ríkur af kolvetni. Í rauninni stöndum við á Vesturlöndum frammi fyrir tveimur málum, sem við ráðum illa við: offitu og elli. UNDIRSTAÐAN Ayn Rand Þetta er skáldsaga sem hefur selst í átta milljónum eintaka um allan heim og breytt lífi margra. Rand skrifar um sjálfstæða og hugrakka konu, sem lætur ekki segja sér fyrir verkum og skammast sín ekki fyrir að elska sjálfa sig. Hún á hvorki meira né minna en þrjá ástmenn og valið á milli þeirra verður erfitt. Um leið blandast inn í þetta stjórnmál og efnahagsmál, en samt án þess að lesandanum leiðist eitt andartak. Þessi bók er beisk á bragðið, en samt góð á bragðið. ELDAÐ AF LÍFI OG SÁL Rósa Guðbjartsdóttir Ég er auðvitað dálítið hlutdrægur hérna, því að Rósa er gamall nemandi minn og góð vinkona. En þetta er mjög nytsamleg bók sem ég myndi hiklaust gefa vinum mínum og vinkonum. Þótt ég kunni sjálfur ekki mikið fyrir mér í matargerð þykist ég vita hvað sé góður matur. Og ein leið að honum er í gegnum bók Rósu. STASILAND Anna Funder Frábær bók, eins og vinsældir hennar á Íslandi sýna. Sjálfur kynntist ég nokkuð Önnu Funder, þegar hún kom hingað haustið 2012, og hún er heillandi einstaklingur. Þetta er bók um daglegt líf í Austur- Þýskalandi á dögum kommúnismans. Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor í stjórnmálafræði Peningar,njósnir, matur og offita Ásdís Hjálmsdóttir spjótkastari Leggur rækt við sálarlífið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.