Fréttablaðið - 02.03.2013, Side 47

Fréttablaðið - 02.03.2013, Side 47
 | FÓLK | 3HELGIN Brit-fóðrið hefur notið mikilla vinsælda síðan það kom á markað á Íslandi fyrir ári, enda er Brit gæðafóður á mjög góðu verði fyrir bæði hunda og ketti,“ segir Magnús Gylfa- son, eigandi Vörusels ehf., umboðsaðila Brit á Íslandi. „Brit-fóðrið inniheldur öll nauðsynleg bæti- efni sem hundar og kettir þurfa til að þrífast vel. Kjötinnihald er meðal annars hátt eða um 40 til 45 prósent, en fóðrið hefur þótt mjög ódýrt miðað við gæði og innihald,“ útskýrir Magnús og segir gott úrval Brit-línunnar auðvelda gæludýra- eigendum að finna fóður sem hentar. „Reynslan af Brit hefur verið mjög góð og er fólk almennt sammála um að feldur dýranna sé mýkri og fal- legri, dýrin þrífist og borði matinn vel og hægðir dýranna séu þéttar og góðar.“ CARNILOVE – NÝJUNG FRÁ BRIT Nýtt fóður kom nýlega á markaðinn frá Brit sem heitir Carnilove en nafnið vísar til þess að hundar elski kjöt. Carnilove er hágæða fóður með miklu kjötinnihaldi og engri kornvöru. Tegundirnar eru tvær, annars vegar fóður með 70 prósentum af kjúklingakjöti og hins vegar með 65 prósentum af laxi og hvítfiski. „Hundar eru kjötætur í eðli sínu og með Carni- love-fóðrinu er sótt til náttúrulegrar fæðuöflunar hunda sem samanstendur af 70 prósentum af kjöti og 30 prósentum af ávöxtum og grænmeti,“ segir Magnús. „Kornvörur eru ekki náttúruleg fæða fyrir hunda en í Carnilove er ekkert kornmeti svo sem hrísgrjón eða maís, eins og annars er að finna í flestöllu fóðri. Með Carnilove fær hundurinn auðmeltanleg prótein sem innihalda nauðsynlegar amínó sýrur til að næra vöðva líkamans. Náttúruleg bætiefni koma til dæmis úr vínberjum, trönu- berjum og granateplum sem stuðla að náttúrulegri andoxun líkamans og styrkja ónæmiskerfið.“ HUNDAR ELSKA KJÖT BRIT Á ÍSLANDI KYNNIR Gæðafóður á góðu verði fyrir hunda og ketti. Mikið úrval Brit-fóðurs auðveldar gæludýraeigendum að finna það sem hentar þeirra dýri með tilliti til stærðar, aldurs og hreyfingar. HUNDAR ELSKA KJÖT Hundar eru í eðli sínu kjötætur en nýja fóðrið frá Brit, Carnilove, samanstendur af 70 prósentum af kjöti og 30 prósentum af ávöxtum og grænmeti. ÞRÍFAST VEL Magnús segir gælu- dýraeigendur sammála um að dýrin þrífist vel á fóðrinu frá Brit, feldurinn sé mýkri og fallegri og dýrin borði matinn vel. REYNSLAN AF BRIT GÓÐ Magnús Gylfason flytur inn gæludýrafóður frá Brit. MYND/VILHELM BRIT-FÓÐRIÐ OG CARNILOVE FÆST HJÁ Gæludýr.is – Korputorgi og Smáratorgi Garðheimum – Mjódd Hundaheimi – Mosfellsbæ (Brit) Stapafelli – Keflavík Vefverslun www.petmax.is frí heimsending um allt land. Carnilove er nú á kynningartilboði hjá Gæludýr. is, 12 kg poki er á 9.990 krónur og fylgir 1,5 kg poki frítt með. Hönnuðurinn Sunna Ósk Þorvaldsdóttir hjá SOSK design hefur gengið til liðs við Krabbameinsfélagið og átakið Mottumars með því að hanna og selja Mottuherðatré til styrktar átakinu. Allur ágóði af sölu herðatrjánna rennur til Krabbameinsfélagsins. Mottuherðatrén fást í svörtum, hvítum og rauðbrúnum lit og eru söguð úr MDF- plötum. Stykkið kostar 4.000 kr. en framleidd voru 300 herðatré. Fjölmörg fyrirtæki studdu smíði og framleiðslu herðatrjánna sem gerir það að verkum að enn stærri hluti sölunnar rennur til Krabba- meinsfélagsins. Hægt er að kaupa herðatrén hjá verslunum Dogma á Laugavegi, í Smáralind og í Kringlunni, í versluninni Kraum í Aðal- stræti og í verslun Krabbameinsfélagsins í Skógarhlíð 8, auk þess sem hægt er að kaupa þau í vefverslun Krabbameinsfélagsins á www.krabb.is. Sunna Ósk er ekki eini hönnuðurinn sem er í sam- starfi við Krabbameinsfélagið um framleiðslu herðatrjáa. Hönnunar- neminn Heiðdís Inga Hilmarsdóttir hefur einnig hannað herðatré í tengslum við átakið en verkefnin eru þó aðskilin. GOTT MÁLEFNI Herðatrén fást í þremur litum og kostar stykkið 4.000 kr. MYND/ÚR EINKASAFNI HERÐATRÉ TIL STYRKTAR MOTTUMARS Dong Qing Guan, eigandi Heilsu-drekans, mun í vikunni bjóða fólki að kynna sér öfluga heilsu- ræktarstarfsemi Heilsudrekans. „Ég ætla að gefa gestum og gangandi kost á því í heila viku að mæta án endurgjalds í tíma. Við byrjum í dag klukkan níu. Ég hvet fólk til að líta við í dag og við reyn- um að svara spurningum og aðstoðum eftir fremsta megni,“ segir Qing. Afar fjölbreytt starfsemi fer fram í Heilsudrekanum sem hefur verið rekin af Qing í Skeifunni 3j síðan 1998. „Alla daga vikunnar er hér stundað allt frá kungfu fyrir krakka og unglinga til leik- fimi fyrir þá sem eru komnir vel á aldur og allt þar á milli.“ Heilsu-qigong wuqinxi er nýjasta leikfimin hjá Heilsudrekanum. „Hún byggir á meira en 2.000 ára gamalli kín- verskri lækningaraðferð frá lækninum Huatuo. Hann sótti innblástur æfing- anna í eiginleika ákveðinna dýra.“ Þær byggja á leik og ímyndunarafli, teng- ingu við náttúruna, ásamt áherslu á öndun, og eru mjög ólíkar vestrænni leikfimi. „Tígurinn tengist lifrarstarf- seminni og sjóninni. Dádýrið tengist nýrunum, styrkir bakið og hjálpar fólki með eyrnavandamál og höfuðverki og fleira. Björninn vinnur gegnum miltað og magann og hjálpar til við melt- inguna. Apinn er alltaf á iði og tengist hjartanu sem pumpar í sífellu. Við þurfum að læra að róa okkur niður eins og apinn gerir. Hann vinnur með mið- taugakerfið og kemur fólki í gott skap. Að lokum er það fuglinn sem vinnur með lungun. Hann teygir úr vængjum sínum og opnar og lokar brjóstinu.“ Starfsemi heilsudrekans er hægt að kynna sér nánar á heimasíðu hans www.heilsudrekinn.is og á Facebook, þar sem getur að líta myndbandsupp- tökur af hinum ýmsu greinum sem eru æfðar og kenndar hjá Heilsudrekanum ásamt öðrum fróðleik. HEILSUDREKINN BÝÐUR ALLA VELKOMNA HEILSUDREKINN KYNNIR Í dag hefst opin vika hjá Heilsudrekanum og margt í boði fyrir unga sem aldna. Taichi, Heilsu-qigong, Kungfu fyrir krakka og unglinga, hugræn teygjuleikfimi ásamt annarri fjölbreyttri starfsemi. FRÍTT Í VIKU „Ég ætla að gefa gestum og gangandi kost á því í heila viku að mæta án endurgjalds í tíma. Við byrjum klukkan níu í dag og ég hvet fólk til að mæta og kynna sér starfsemi Heilsu- drekans,”segir Qing. MYND/VILLI Sunna Ósk Þorvalds- dóttir hefur hannað flott herðatré.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.