Fréttablaðið - 02.03.2013, Blaðsíða 57

Fréttablaðið - 02.03.2013, Blaðsíða 57
| ATVINNA | Fiskistofa er þjónustu- og eftirlitsstofnun sem annast stjórnsýsluverkefni á sviði sjávarútvegsmála, lax- og silungsveiði, fiskræktar, fiskeldis, hvalveiða o.fl. ásamt því að safna upplýsingum um framan- greinda málaflokka. Nánari upplýsingar má finna á www.fiskistofa.is. Fiskistofa óskar að ráða veiðieftirlitsmenn í starfsstöðvar sínar á Akureyri, á Höfn og í Stykkishólm. Um eina stöðu er að ræða á hverri starfsstöð. Starf veiðieftirlitsmanns felst í eftirliti til sjós og lands. Eftirlit á sjó felst m.a. í lengdarmælingum á fiski og tillögugerð um lokanir veiðisvæða, eftirliti með aflasamsetningu, veiðarfærum, hlutfalli smáfisks í afla og brottkasti afla. Þá fylgjast veiðieftirlitsmenn einnig með því að afladagbækur séu rétt útfylltar og séu í samræmi við veiðar og afla um borð. Eftirlitsstörf í landi fela m.a. í sér eftirlit með löndun, vigtun og skráningu afla, eftirlit með veiðarfærum og aflasamsetningu, lengdarmælingar á afla og eftirlit með færslu og skilum afladagbóka. Starfið felur einnig í sér skrifstofustörf s.s. skýrsluvinnu þegar vettvangsstörfum lýkur, að fylgjast með löndunum og skráningum í aflaskráningarkerfi Fiskistofu og öflun gagna vegna brotamála sem upp koma. Leitað er að kraftmiklum einstaklingum sem hafa haldgóða reynslu af störfum í sjávarútvegi. Góð íslensku- og tölvukunnátta er áskilin. Störfin krefjast þess að umsækjendur séu sjálfstæðir, faglegir og nákvæmir í vinnubrögðum, séu ákveðnir en sanngjarnir og háttvísir og búi yfir færni í mannlegum samskiptum. Skipstjórnarréttindi eru æskileg. Um fullt starf er að ræða og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Nánari upplýsingar um störfin veita Sævar Guðmundsson, deildarstjóri veiðieftirlits í síma 4782010 og Þórhallur Ottesen deildarstjóri veiðieftirlits í síma 5697932. Umsóknir er hafa að geyma haldgóðar upplýsingar um menntun, fyrri störf, meðmælendur og annað sem máli kann að skipta sendist á netfangið ingath@fiskistofa. is eða með bréfi til Fiskistofu, Dalshrauni 1, 220 Hafnarfirði merktar „Veiðieftirlitsmaður Akureyri“, „Veiðieftirlitsmaður Höfn“ eða „Veiðieftirlitsmaður Stykkishólmi“. Umsóknarfrestur er til og með 17. mars 2013. Laun taka mið af kjarasamningi ríkisins við viðeigandi stéttarfélag. Samkvæmt jafnréttisstefnu Fiskistofu eru konur hvattar til að sækja um jafnt sem karlar. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Athygli er vakin á því að umsóknir munu gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, með vísan til 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglu nr. 464/1996 um auglýsingar á lausum störfum, með síðari breytingum, sem settar eru samkvæmt heimild í 2. mgr. 7. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Veiðieftirlitsmenn óskast á starfsstöðvar Fiskistofu á Akureyri, á Höfn og í Stykkishólm Valitor er traust og alþjóðlegt þekkingarfyrirtæki sem er stöðugt að skapa nýjar lausnir fyrir viðskiptavini sína. Gildin okkar, forysta, frumkvæði, traust og samvinna, knýja samhentan og metnaðarfullan starfshóp áfram í stöðugri viðleitni til að bæta þjónustuna. Umsóknarfrestur er til og með 10. mars nk. Upplýsingar veitir Kristín Guðmundsdóttir kristin@hagvangur.is eða í síma 520 4700 Starfssvið // Sala á greiðslulausnum Valitor // Umsjón með stærri viðskiptavinum // Samskipti og samningagerð // Endurgjöf til sölustjóra og þátttaka í skipulagningu á sölu- og markaðsmálum innan sviðsins Menntun og hæfniskröfur // Háskólamenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi // Farsæl reynsla af sölu er skilyrði // Hæfni í mannlegum samskiptum // Frumkvæði og drifkraftur // Skipulögð og öguð vinnubrögð BÝR Í ÞÉR ELDMÓÐUR? Valitor óskar eftir að ráða viðskiptastjóra á Fyrirtækjasviði LAUGARDAGUR 2. mars 2013 7
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.