Fréttablaðið - 02.03.2013, Page 84
2. mars 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN KRAKKAR | 52
TEIKNAR ÞÚ
FLOTTAR
MYNDIR?
Sendu okkur myndina þína í pósti til
Fréttablaðsins, Skaft ahlíð 24, 105 Reykjavík
eða með tölvupósti á krakkar@frettabladid.is
Hvað heitir þú og hvað ertu
gamall? Ég heiti Gunnar F. Árna-
son og er 38 ára.
Lékstu þér oft með bíla þegar
þú varst lítill? Já. Bílar voru yfir-
leitt uppáhaldsdótið mitt.
Finnst þér gaman að keyra
strætó? Já. Það getur verið ofsa-
lega gaman. Sérstaklega þegar
það er gott veður.
Hversu lengi hefur þú verið
strætóbílstjóri? Ég er búinn að
keyra strætó í þrjú ár.
Ertu alltaf á sömu leiðinni?
Nei. Stundum keyri ég leið 1 og
þá fer ég í Hafnarfjörð og stund-
um keyri ég leið 6 og þá fer ég
í Grafarvog. Svo er líka fullt af
öðrum leiðum sem fara á mis-
munandi staði.
Hvað finnst þér skemmtilegast
við starfið? Það er skemmtileg-
ast að hitta allt fólkið sem tekur
strætó.
En leiðinlegast? Þegar fólk er
ókurteist.
Hefurðu einhvern tíma þurft
að fleygja einhverjum út? Já,
því miður. Það er aldrei gaman
að þurfa að henda fólki út.
Eru krakkar kurteisir í strætó?
Já, krakkar eru yfirleitt alltaf
kurteisir.
Koma stundum hundar inn í
strætó hjá þér? Nei. Hundar
mega ekki taka strætó, nema
þeir séu blindrahundar.
Ertu hræddur við hunda? Nei,
maður er aldrei hræddur við vel
uppalda hunda.
Bílar voru yfi rleitt
uppáhaldsdótið mitt
Strætóbílstjórar keyra út um allan bæ og reyndar víða um land. Þeir sjá margt
á ferðum sínum. Gunnar F. Árnason er einn þeirra sem fá að sitja undir stýri á
þessum stóru, gulu farartækjum og honum fi nnst það skemmtilegt.
STRÆTÓBÍLSTJÓRINN Krakkar eru yfirleitt alltaf kurteisir.
Í sunnudagaskólanum útskýrði presturinn fyrir Jóni litla hvernig
Guð skapaði Evu úr einu rifb eini Adams.
Daginn eft ir kemur mamma hans að honum grátandi og spyr hvað
sé að.
„Ég er svo hræddur,“ kveinaði Jón. „Ég fi nn svo til í maganum,
ég held að Guð sé að búa til eiginkonu handa mér.“
Kennarinn spurði Nonna: „Ef þú ættir hundrað krónur
og bæðir pabba þinn um hundrað og fi mmtíu krónur
í viðbót, hvað ættir þú þá mikið?“
Nonni svaraði: „Þá ætti ég hundrað krónur.“
Kennarinn hristi höfuðið og sagði:
„Þú kannt ekki einfalda samlagningu.“
Nonni hristi líka höfuðið og sagði: „Þú þekkir ekki pabba minn.“
Brandarar
Nafn og aldur: Salín Steinþóra Guðmundsdóttir
9 ára.
Í hvaða skóla ertu? Víðistaðaskóla.
Í hvaða stjörnumerki ertu? Ljóninu.
Áttu happatölu? Já, 1000.
Helstu áhugamál/hvað gerirðu í frístundum
þínum? Æfi og spila handbolta.
Eftirlætissjónvarpsþáttur: Dóra landkönnuður.
Besti matur: Subway.
Eftirlætisdrykkur: Jarðarberjasvali.
Hvaða námsgrein er í uppáhaldi? Stærðfræði.
Uppáhaldslitur: Fjólublár og bleikur.
Áttu gæludýr– ef svo er, hvernig dýr og hvað
heitir það? Ég á hamstur sem heitir Mýslu-Dúlla.
Skemmtilegasti dagurinn og af hverju: Laugar-
dagur af því hann er nammidagur.
Eftirlætistónlistarmaður/hljómsveit: Justin
Bieber og One Direction.
Hvað gerðirðu síðasta sumar? Ég var í sveitinni
hjá pabba mínum og fór hringinn kringum landið
með mömmu og fósturpabba mínum.
Skemmtilegasta bók sem þú hefur lesið: Allar
bækur sem ég hef lesið eru skemmtilegar.
Hvað ætlarðu að verða þegar þú ert orðin stór?
Handboltastjarna. SALÍN STEINÞÓRA Fór hringinn kringum landið í fyrra.
Krakkakynning
Teikningar og texti: Bragi Halldórsson
33
„Hvað er þetta,“ sagði Kata og stundi. „Kunnið þið ekki að
fljúga flugdreka?“ En flugdrekarnir þeirra voru allir komnir í
flækju, svo þau vissu ekki lengur hver átti hvaða flugdreka.
Getur þú fundið út úr því hver á hvaða flugdreka?