Fréttablaðið - 02.03.2013, Qupperneq 90
2. mars 2013 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 58
„Ég vil heldur barninginn í nátt-
úrunni“ nefnist erindi Hrafnhildar
Schram listfræðings á málþingi sem
haldið verður í Listasafni Íslands við
Fríkirkjuveg á morgun. Hrafnhildur
kveðst vitna þar í viðtal við listakon-
una. „Júlíana bjó í Danmörku en var
frá Vestmannaeyjum og fór þangað
oft þegar hún kom til landsins. Það
má segja að hún hafi samsamað sig
Vestmannaeyjum og umhverfinu þar á
mjög persónulegan hátt. Myndaflokk-
ur hennar þaðan fjallar um meira en
þann ytri veruleika sem augað grein-
ir, hann fjallar líka um hugarástand
listamannsins. Hún segir einmitt í
áðurnefndu viðtali að það séu ekki
bara klettar og fjöll sem hún leitist við
að sýna heldur líka barningur hafsins,
hin eilífa hreyfing og lífið sjálft sem
í því speglist. Hún sýndi barninginn
í náttúrunni, kannski vegna þess að
hún þurfti sjálf að heyja baráttu. En
hún átti flottan feril.“
Í fréttatilkynningu frá Listasafni
Íslands kemur fram að Júlíana hélt í
nám til Kaupmannahafnar árið 1909
en áður hafði hún sótt myndlistarnám
til Þórarins B. Þorlákssonar listmál-
ara. Eftir undirbúningsnám var hún í
fimm ár í Konunglega danska listahá-
skólanum og útskrifaðist þaðan árið
1917. Hún hélt sína fyrstu einkasýn-
ingu árið 1918 í Kaupmannahöfn og
tók virkan þátt í sýningum þar ytra
næstu árin. Yfirleitt tók hún þátt
í einni eða tveimur samsýningum
listamanna árlega bæði hér heima og
ytra, það sem eftir var ævinnar, sam-
tals rúmlega hundrað samsýningum
og ellefu sérsýningum á Íslandi og í
Danmörku.
Samhliða málverkinu fékkst Júlíana
við vefnað. Hún notaði jafnan íslenska
ull sem hún hafði litað með íslenskum
jurtalitum. Myndteppin voru abstrakt,
byggð á samspili lita og forma á tví-
víðum fleti en málverkin vísuðu til
hlutveruleikans þar sem viðfangs-
efnið var landslag, uppstillingar og
mannamyndir. Myndvefnaðinn sýndi
Júlíana samhliða málverkunum og
hlaut margvíslega viðurkenningu
fyrir hann.
Málþingið er haldið að frumkvæði
erfingja listakonunnar og er sam-
starfsverkefni þeirra og Listasafns
Íslands.
Hún átti fl ottan feril
Málþing um Júlíönu Sveinsdóttur listmálara (1889-1966) verður haldið á morgun, sunnu-
daginn 3. mars, milli klukkan 14 og 16 í Listasafni Íslands undir yfi rskrift inni Bakland og
brautargengi. Það er öllum opið endurgjaldslaust.
UPPSTILLING Verk eftir Júlíönu Sveinsdóttur.
HRAFNHILDUR SCHRAM „Júlíana þurfti sjálf að heyja baráttu,“ segir hún.
Heilsuverndarstöðin í Reykjavík var vígð þennan dag árið
1957 eftir að hafa verið sjö ár í byggingu. Hún stendur við
Barónsstíg, en önnur álman af tveimur teygir sig niður með
Egilsgötu. Húsið teiknuðu arkitektarnir Einar Sveinsson og
Gunnar H. Ólafsson og þykir sérstakt hús út frá sjónarhóli
byggingarlistar. Einnig á hún merka sögu þar sem hún var
fyrsta sérhannaða heilsugæslubygging landsins.
Upphaflega voru þrjár deildir í álmunni sem veit að
Barónsstíg. Í einni þeirra var haft eftirlit með börnum,
önnur deild hafði eftirlit með barnshafandi konum og ein
deild var fyrir kynsjúkdómalækni. Í álmunni sem veit að
Egilsgötu voru berklavarnir og þar var einnig röntgen-rann-
sóknarstofa. Á neðstu hæð aðalbyggingarinnar var slysavarð-
stofa. Á tveimur efstu hæðunum var heilsuvernd og einnig
pláss fyrir 50 til 60 sjúkrarúm.
ÞETTA GERÐIST 2. MARS 1957
Heilsuverndarstöðin var vígð
Listasafn Reykjavíkur stendur fyrir dagskrá og kynn-
ingu á Ásmundi Sveinssyni myndhöggvara í tilefni af því
að í ár eru 120 ár frá fæðingu hans.
Ýmsir koma að dagskránni en þar
verður sjónum beint að ýmsu sem
einkenndi lífshlaup Ásmundar. Dag-
skráin er í umsjón Þorgríms Gests-
sonar rithöfundar í samstarfi við
Ásmundarsafn.
Á morgun klukkan 14 flytur
Þorgrímur Gestsson fyrirlestur sem
hann nefnir „Hver var þessi Ásmund-
ur?“ þar sem hann skoðar feril lista-
mannsins og leitast við að draga upp
mynd af honum og verkum hans.
Dagskráin mun halda áfram fram
í júní og verða fluttir ýmsir áhuga-
verðir fyrirlestrar um Ásmund og verk hans. Á sunnu-
daginn kemur mun til dæmis Pétur Ármannsson arkitekt
fjalla um þau hús við Freyjugötu og Sigtún sem Ásmundur
reisti að mestu með eigin höndum og bera hagleik og
dugnaði hans vitni.
Hver var hann
þessi Ásmundur?
Dagskrá í tilefni af 120 ára fæðingarafmæli
Ásmundar Sveinssonar á vegum Listasafns
Íslands býður upp á fróðleik um líf og verk
myndhöggvarans.
ÞORGRÍMUR GESTS-
SON
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
EIRÍKUR JAKOB HELGASON
fyrrv. verkstjóri,
Kelduhvammi 22, Hafnarfirði,
andaðist á heimili sínu miðvikudaginn
27. febrúar. Útförin verður auglýst síðar.
Ólafía Erlingsdóttir
Haukur Eiríksson Brynja Björk Kristjánsdóttir
Helgi Eiríksson Berglind Gylfadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
HJÖRTUR GUÐMUNDSSON
frá Djúpavogi, áður til heimilis
að Hjallabrekku 15, Kópavogi,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Mörk, 22.
febrúar. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju
mánudaginn 4. mars kl. 13.00.
Guðný Erna Sigurjónsdóttir
Ragnheiður S. Hjartardóttir Þorgeir Helgason
Sigurjón Hjartarson Kristín Sigurðardóttir
Guðbjörg Lilja Hjartardóttir Þórður Þórkelsson
Bylgja Hjartardóttir Hans J. Gunnarsson
Kristín Hjartardóttir Sigbjörn Þór Óskarsson
Guðmundur Hjartarson Júlíana Hansdóttir Aspelund
Bjarni Þór Hjartarson Aðalheiður Una Narfadóttir
Hjörtur Arnar Hjartarson Lenka Zimmermannová
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
MARÍA H. HANSEN
Brunnstíg 3, Hafnarfirði,
lést á líknardeildinni í Kópavogi föstudaginn
22. febrúar. Útför hennar fer fram
frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði, fimmtudaginn
7. mars kl. 13.00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á að láta Minningarsjóð
líknardeildarinnar í Kópavogi njóta þess, kt. 170235 4369,
banki 545 - 14 - 404240.
Sigurgunnar H. Óskarsson
Pétur H. Sigurgunnarsson Soffía Hjördís Guðjónsdóttir
Gíslína G. Sigurgunnarsdóttir
Magdalena Ósk Sigurgunnarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
HÓLMFRÍÐUR RÓSA JÓSEPSDÓTTIR
Fjarðarhorni, Hrútafirði,
lést á Landspítalanum fimmtudaginn
28. febrúar.
Sigurður Geirsson
Sigurbjörg Rós Sigurðardóttir
Þorbjörg Helga Sigurðardóttir
Helgi Pétur Magnússon Elísabeth Inga Ingimarsdóttir
Andrés Smári Magnússon Rebekka María Jóhannesdóttir
Kristján Magnússon
Þórdís Sif Sigurðardóttir Gunnlaugur I. Gretarsson
Jósep Magnússon Ragnheiður Eyþórsdóttir
Þorvaldur Geir Sigurðsson Stefanía Anna Þórðardóttir
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og afi,
SIGURÐUR BRYNJÓLFSSON
framreiðslumaður,
Stórhjalla 29,
lést á Borgarspítalanum 25. febrúar. Útför
hans fer fram frá Áskirkju fimmtudaginn
7. mars klukkan 13.
Guðborg Kristín Olgeirsdóttir
Brynjólfur Sigurðsson
Jóhanna Selma Sigurðardóttir
og afabörn.
Elsku móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
UNNUR ARNÓRSDÓTTIR
píanókennari,
andaðist laugardaginn 23. febrúar.
Útför hennar fer fram frá Dómkirkjunni
fimmtudaginn 7. mars kl. 15. Það væri í anda Unnar
að Umhyggja, félag til stuðnings langveikum börnum,
og Barnaspítali Hringsins fengju að njóta minningar hennar.
Leifur Bárðarson Vilborg Ingólfsdóttir
Finnur Bárðarson Iréne Jensen
Margrét María Leifsdóttir Guðmundur Pálsson
Diljá Helga, Máni, María og Snorri
Inga María Leifsdóttir Kristbjörn Helgason
Júlía Helga, Jakob Leifur og óskírður Kristbjarnarson