Fréttablaðið - 02.03.2013, Side 96

Fréttablaðið - 02.03.2013, Side 96
2. mars 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 64MENNING Þorvaldur Þorsteinsson. Nafnið stórt og sterkt. Þrungið þornum og errum. Þor. Vald. Þor. Steinn. Höfuð stórt og sterklegt. Þrungið hug- myndum og sköpun. Lífið hafði búið til slíkan mann. Þegar hann hitti þig. Heilsaði með glotti, tók svo skref til baka og hnykkti aftur hnakka, hökunni upp: Þá sá hann í gegnum þig. Þá skildi hann þig. Og þegar þú skild- ir það, þá hló hann. Þá hló hann gleðiskilnings hlátri. Hann var einstakur. Fallegur maður með fallega rödd og fallegt mál. Djúpsálarkafari sem gerði auglýsingar. Nýlistamaður sem orti hefðbundið. Listamaður en kennari líka. Rökfastur innsæismaður. Brot- hættur klettur. Á milli þessara ólíku póla myndað- ist landsvæði sem var því stærra en fannst í öðrum mönnum: Iðagrænn þorvaldsleikvangur sem var í senn ritvöllur, leiksvið, vinnustofa, sýn- ingarsalur, kennslustofa, stofnun. 8. febrúar 2013. Þorvaldur flyt- ur lokaerindið í sínum mikla bálki gegn staðnaðri hugsun og kerfis- mennsku, á málþingi BÍL í Iðnó. Ég missti af því vegna ræðuflutnings á Ingólfstorgi en hitti hann fyrir utan að því loknu, á undurfögrum laugar- degi í Reykjavík, við settumst inn á Bergsson. Nýbúinn að salla niður skólakerfið, eins og sá eldlogandi róttæklingur sem hann var, pant- aði hann handa okkur vatnsdeigs- bollur og kaffi, eins og sá norðlenski tradisjónalisti sem hann var. Og hóf síðan að ræða sitt eftirlætisefni — innsæið. „Ég treysti því alltaf! Ég var á listmunauppboði í Antwerpen um daginn og sat undir endalausum non-verkum þegar allt í einu kom mappa! Og ég sá hana lýsa! Hún lýsti! Ég fann það, að þarna var ÞORVALDUR Þorvaldur Þorsteinsson, myndlistarmaður og rithöfundur, lést á heimili sínu í Antwerpen í Belgíu 23. febrúar. Hallgrímur Helgason, rithöfundur og vinur Þorvalds, minnist listamannsins. ÞORVALDUR ÞORSTEINSSON 1960-2013 Þorvaldur Þorsteinsson fæddist á Akureyri 7. nóvember 1960. Hann nam íslensku við Háskóla Íslands og myndlist á Íslandi og í Amsterdam. Hann starfaði jöfnum höndum sem myndlistarmaður, rithöfundur og kennari. Hann hélt fjölda myndlistar- sýninga hér heima og erlendis. Þegar hann lést var í undirbúningi sýning á nýjum verkum hans í Listasafni Íslands og bók um feril hans. Meðal bóka eftir hann eru sögurnar um Blíðfinn og Skilaboðaskjóðan, sem samnefnt leikrit byggir á. Meðal annarra verka hans má nefna Vasa- leikhúsið og leikritið And Björk of course sem hann hlaut Grímuna fyrir. Þorvaldur var forseti BÍL frá 2004 til 2006. Þorvaldur lætur eftir sig eiginkonu, tvö fósturbörn og og tvö barnabörn. Gangur lífsins Lífsins gangur langur er. Þú líður hægt þar inn. Í hundrað gættum hlær við þér og heilsar náunginn. Og stundin aldrei stendur kyr en stikar svifasein. Þér lærast fer að lífsins dyr lokast ein og ein. Að baki hverri myrkrið má muldra lokasvar er ljómar út um læsta skrá ljósið Þorvaldar. Hallgrímur Helgason eitthvað. Ekki var sagt frá inni- haldi en ég bauð samt og fékk hana á 40 evrur!“ Innsæið brást honum ekki: Mappan reyndist innihalda 85 teikningar og skissur eftir fremsta málara Belga á nítjándu öld. Fyrir þær þarlendu þjóðargersemar hafði hann greitt krónur hundrað á stykk- ið. Þeir voru heldur óheppnir belg- ísku list-amatörarnir, að fá slíkan Sherlock Holmes á uppboð hjá sér. Innsæið. Nokkrum árum fyrr hafði ég séð það berum augum. Á niðadimmu og skilnaðarþungu laugardags- kvöldi buðu Þorvaldur og Helena í opið hús á vinnustofu sinni bak við Kaaberhúsið, vinnustofu sem var svartmálaður töfraheimur með tjöldum, rólum, kertaljósum og langborði, hvar sátu tólf fagrar dansstúlkur á vegum Helenu. Undir miðnætti tóku leikar að æsast. Þorvaldur tók fram spilin og hóf að spá. Á klukkutíma kortlagði hann líf allra dansaranna, fór í svo magnaðan trans að orðin komu á handahlaupum út úr honum, óliðnir áratugir þeystust um höfuð hans svo það nötraði, og hann kom því öllu til skila. Ekki eitt feilspor í spádómi: Stúlkurnar sátu eftir með tárin í augunum. Þetta var allt svo rétt hjá honum! Jafnvel ég sem fylgdist bara með var þreyttur eftir. Þrátt fyrir að hafa lesið flest ritverk Þorvald- ar, séð sýningar hans og leikrit, var það ekki fyrr en þetta kvöld sem ég sá séníið. Auk þess að vera galdramaður andans var hann myndlistarmaður, málari, myndhöggvari, umhverf- islistamaður, konseptlistamaður, myndbandasmiður, ljósmyndari, grafíker, teiknari, skáld, leikskáld, rithöfundur, handritshöfundur, textagerðarmaður, útvarpsmaður, auglýsingamaður, auglýsingaþul- ur, hugmyndasmiður, kennari og þó fyrst og fremst hugsjónamaður. Baráttumaður fyrir betra skóla- kerfi. Vekjari sofandi kerfa. Þor- valdur var allt og gat allt. Hann var jafnvel heima í Malmö Konsthall og Þjóðleikhúsinu, í Ríkisútvarpinu og á auglýsingastofunni. „Mjólk er góð“. Jafnvel „ósigrar“ hans voru minnisstæðir, í þeim lá alltaf sigr- andi sáðkorn. „Bein útsending“ í Loftkastalanum blómstraði á öðrum sviðum síðar. Þorvaldur var allt- af fyrstur. Hann málaði Matthías Jochumsson, Jóhann Sigurjóns- son og Nonna saman á mynd áður en orðið póstmódernismi barst til landsins. Hann gerði fimm mín- útna vídeóleikrit að listgrein tutt- ugu árum áður en Youtube varð til. Hann skrifaði leikrit sem var sjón- varpsþáttur áður en hugtakið raun- veruleikasjónvarp kom til sögu. Skilaboðaskjóðan fæddist áratugum áður en heimurinn enduruppgötvaði ævintýrið. (Í dag gerist önnur hver kvikmynd í Ævintýraskóginum hans, frá Hobbitanum til Merlin.) Þorvaldur bjó í framtíðinni en fortíðinni líka. Eftirminnilegasta innsetning hans hét „Kóræfing“. Galleríinu var breytt í anddyri safnaðarheimilis: Fatahengi fullt af pelsum og bomsum og við hlið þess: Luktar hvítar dyr. Á bak við þær ómaði kórsöngur. Svo óumræðilega frumlegt og nýtt, svo óumræðilega hefðbundið og íslenskt. Norðlenskt. Og nú er hann horfinn á bak við þær hvítu dyr. Nú er hann „Engill meðal áhorfenda“ eins og Stebbi Jóns orðaði það svo fallega á Facebook. Því maðurinn var engill góður. Ófáir listamenn af yngri kyn- slóð hafa sagt mér frá heillaráðum hans sem hittu í þeirra mark. Eng- inn átti meira hrós á sinni könnu, og enginn gat nokkru sinni öfundað Þorvald, því sjálfur átti hann ekki þær kenndir til. Við gátum bara dáðst að honum. En ekki var að andstæðunum að spyrja: Engillinn hafði sinn djöful að draga, djöful sem dró hann hins vegar smám saman frá okkur. En við eigum enn þá Þorvald eins og hann var. Við eigum enn þá unga manninn fölan af „ Hundrað fyrirburðum“. Við eigum enn þá drenginn sem kom eins og Chekov að norðan „Í tilefni dagsins“. Við eigum enn þá listamanninn sem reisti heilan turn í Finnlandi til að útvarpa þaðan þökkum til bæjar- búa. „Thank you for your contribu- tion!“ Og við Halli Jóns eigum enn þá þriðju skemmtilegustu helgi lífs- ins, með ÞÞ í borginni Alst, hvar við þrímenntum í gegnum veggi eins og ósigrandi andar, inn í galleríið hans og út á torgið, hvar við átum fransk- ar með majónesi undir fullu tungli og fullum unglingum, og ÞÞ sagði okkur sannleikann á sjö mínútna fresti en í hvert einasta sinn í nýjum búningi. Í hvert og eitt einasta sinn í nýjum búningi. Og við eigum enn þá verkin öll og vináttuna, og hrósið sem hann gaf okkur og stendur hér enn í vasa, ófölnað og litsterkt. Við eigum enn þá þig, Þorvaldur. Nafn þitt lifir og mun lifa. Og því var þér ekkert hræðilegt að deyja. Þú varst bara fyrstur að klára. Kominn út í vorið á meðan við sitj- um enn þá sveitt og stritumst við. Ég sé þig brosa breitt fyrir utan gluggann. Þú varst alltaf á undan. Þitt var Þorið. Og Valdið. En segðu mér eitt: Hvað eigum við nú að gera með sénílaust Ísland? FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.