Fréttablaðið - 02.03.2013, Síða 102
2. mars 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 70
Halla Bára Gestsdóttir
Gunnar Sverrisson
homeanddelicious.com
1. Súkkulaðikaka klædd sælgæti
Hér skal velja uppáhaldsuppskriftina
sína af brúnum botnum og góðu
kremi og ég mæli með djöflatertunni
sem hefur birst áður frá okkur hér í
blaðinu. Bakið þrjá eða fjóra botna
svo kakan nái hæstu hæðum. Smyrjið
hana gæðasúkkulaðikremi, klæðið í Kit
Kat og Smarties og skreytið fallega.
Skraut
Kit Kat, magn eftir stærð botna
Smarties, magn eftir stærð botna
Borðar, fjaðrir, kerti og annað skraut
Smyrjið bota með kremi. Hér er flott
að hafa kökuna jafn þykka og lengdin
er á Kit Katinu. Smyrjið kökuna að
utan og að ofan. Raðið Kit Katinu
upp á rönd á brúnir kökunnar, hafið
tvær lengjur saman. Lokið hringnum
og stráið Smartiesi yfir hana svo ekki
sjáist í kremið. Skreytið kökuna með
borða og öðru glæsilegu.
2. Súkkulaðileyndó
Öðruvísi skreyting á köku sem vekur
undrun barnanna. Hvítur súkkulaði-
hjálmur hvílir á góðum botni og undir
hjálminum leynist fjársjóður. Hjálminn
þarf að brjóta til að komast að því
hvað er undir honum!
Hjálmur
Olía, Isio eða repjuolía
500 g hvítt súkkulaði, brætt
Notið skál sem er tæplega 4 lítra.
Smyrjið létt yfir hana með olíu og
setjið í frysti í klukkutíma.
Takið úr frystinum og smyrjið hvíta
súkkulaðið jafnt og þétt ofan í smurða
skálina. Reynið að hafa þetta ekki
voða þykkt þá er erfitt að brjóta
hjálminn. Setjið aftur í frysti í klukku-
tíma eða þar til súkkulaðið er orðið
hart.
Takið úr frystinum, setjið skálina á
hvolf og þekið hana að utan með
heitu viskastykki. Þá losnar um súkku-
laðið og hægt er að renna hjálminum
til svo hann losni frá skálinni. Geymið
á köldum stað þar til hjálmurinn er
settur á kökuna.
Botn
Sjá uppskrift að marmaramúffum hér á
eftir, sleppið kakói
Hvítt súkkulaði, skorið í bita
Krem
Sjá uppskrift að marmaramúffum hér
á eftir
Rauður matarlitur
Sælgæti að vild
Þegar deigið hefur verið útbúið í botn-
inn er matarliturinn settur saman við,
dreypt út í dropa fyrir dropa þar til
rétti liturinn næst. Hrærið súkkulaðið
rólega út í deigið. Hellið í hringlaga
form og bakið við 160 gráður í 25-30
mínútur. Ath. að bökunartími fer eftir
stærð formsins sem kakan er í. Alltaf
þarf að fylgjast vel með kökunni í
ofninum. Gætið að því að baka hana
ekki mikið. Hún er betri vel mjúk.
Kælið botninn.
Setjið botninn á kökudisk. Smyrjið
hann með smjörkremi. Leggið sælgæti
til á miðju kökunnar, í dágóðan stafla,
og setjið hjálminn yfir allt saman.
Skreytið kökuna að eigin vali og berið
fram.
3. Marmaramúffur með tvenns
konar kremi
Góður grunnur að múffudeigi sem má
lita með matarlit og kakói. Hér er það
hvítt, rautt og brúnt hrært saman í
marmaramúffu með smjörkremi eða
sykurpúðakremi. Nokkrar hugmyndir
að skreytingum fylgja. Um að gera
að leyfa börnunum sjálfum að sjá um
þær.
Kökur
125 g mjúkt smjör
165 g flórsykur
1 tsk. vanilludropar
2 egg
185 g hveiti
1 tsk. lyftiduft
125 ml mjólk
½ msk. kakó
Rauður matarlitur
Múffuform
Hitið ofn í 160 gráður. Hrærið saman
smjör, sykur og vanilludropa þar til
létt og ljóst. Setjið eggin saman við
og hrærið áfram þar til allt hefur
blandast vel saman. Bætið þurrefnum,
fyrir utan kakóið, og mjólk í deigið og
hrærið vel.
Skiptið deiginu í þrjár skálar; ein er
með venjulegu og ljósu deigi, ein fær
nokkra dropa af rauðum matarlit út í
sitt og ein fær kakó í sitt. Hrærið drop-
ana vel saman við deigið með skeið
eða litlum sósuþeytara. Hrærið kakóið
sömuleiðis vel saman við deigið.
Setjið kúfaða teskeið af hverju deigi
fyrir sig í hvert form. Hrærið varlega
og mjög lítið saman með litlum gaffli,
svo komi marmaramunstur í múff-
urnar. Bakið í 20-25 mínútur en fylgist
vel með bökuninni.
Smjörkrem
250 g mjúkt smjör
320 g flórsykur
2 msk. rjómi eða nýmjólk
1 tsk. vanilludropar
Matarlitur
Hrærið smjörið til í 5 mínútur áður
en sykur, vanilla og rjómi fer saman
við. Hrærið þar til kremið er mjúkt og
kekkjalaust. Setjið nokkra dropa af
matarlit saman við, setjið einn dropa í
einu þar til rétti liturinn fæst.
Sykurpúðakrem
150 g sykurpúðar
1 tsk. vatn
Setjið púðana og vatnið í skál sem má
fara inn í örbylgjuofn. Stillið á 20 sek.
Takið úr ofninum og hrærið saman
svo úr verði krem. Best er að vera
fljótur að smyrja kremið á kökurnar
því þegar það kólnar stífnar það mjög
mikið. Þá er gott að skreyta þær strax
að vild. Þetta krem er einnig sniðugt
að nota á milli smákaka og gera úr
samlokukökur.
Skreytið að vild en af myndunum má
fá hugmyndir að ýkt miklu skrauti!
4. Ítölsk brauðterta
Brauðterta í þessum anda finnst víða
á Ítalíu þegar kemur að s.k. „aperi-
tivo“, smáréttum sem Ítalir sækja í
á börum og veitingahúsum og fá sér
drykk með fyrir mat. Hægt er að bera
tertuna heila fram eða skera hana í
teninga, stinga tannstöngli í gegn og
hafa sem snittur.
Brauðtertubrauð, 4 sneiðar
Létt-majónes, sýrður rjómi eða
rjómaostur
Túnfiskur, látið renna vel af honum
Salat, klettasalat
Hráskinka
Tómatar
Mozzarellaostur
Basilíka
Smyrjið brauðið með létt-majónesi,
sýrðum rjóma eða rjómaosti. Ekki
spara smurninguna. Setjið tún-
fisk á fyrstu hæðina. Leggið aðra
hæðina yfir. Leggið hráskinku á hana
og klettasalat. Þriðju hæðina yfir.
Tómata, mosarella og basilíku á hana
og fjórðu hæðina yfir. Smyrjið tertuna
að utan og skreytið fallega.
Afmælisveisla fyrir börnin
Hér eru skemmtilegar og aðeins öðruvísi hugmyndir í barnaafmæli. Hefðbundið sætmeti borið fram á spennandi hátt svo
afmælisborðið verði áhugavert og fái börnin til að setjast, njóta og gapa af undrun. Að sjálfsögðu þarf eitthvað að vera með
fyrir fullorðna og þar er einstök, ítölsk brauðterta á ferðinni.
1 2 3 4
Íslandsstofa undirbýr þátttöku íslenskra fyrirtækja á sölu- og sýningarsvæði
Heimsmeistaramóts íslenska hestsins sem fram fer í Berlín 4.-11. ágúst 2013.
Þetta er frábært tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki til að kynna sig og selja vörur og
þjónustu meðan á mótinu stendur. Þetta er í fyrsta sinn sem heimsmeistaramótið
er haldið í stórborg.
Heimsmeistaramótið er einn stærsti vettvangur íslenska hestsins um heim allan.
Nítján þjóðir hafa keppnisrétt á mótinu og má búast við allt að 20.000 gestum
þá sjö daga sem það stendur yfir.
Gert er ráð fyrir stóru sölu- og sýningarsvæði þar sem fyrirtæki, tengd hesta-
mennsku eða úr öðrum greinum, geta kynnt og boðið vörur sína og þjónustu til
sölu. Íslandsstofa hefur tekið frá 300 fm. sölutjald á sýningarsvæðinu.
Ef þú hefur áhuga á að taka frá sölubás til að kynna eða selja vöru eða þjónustu,
hafðu þá samband við Berglindi Steindórsdóttur, berglind@islandsstofa.is,
Aðalstein H. Sverrisson, adalsteinn@islandsstofa.is eða hringdu í síma
511 4000 fyrir 15. mars nk.