Fréttablaðið - 05.03.2013, Síða 8
5. mars 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 8
KÖNNUN Meirihluti landsmanna, 56,3 pró-
sent, er mjög eða frekar andvígur því að
lækka áfengiskaupaaldurinn úr 20 árum í 18
ár, samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnun-
ar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 sem gerð var
í síðustu viku.
Tæpur þriðjungur, 28,2 prósent, sagðist
mjög eða frekar hlynntur slíkri breytingu,
og 15,5 prósent sögðust hvorki hlynnt né
andvíg lækkun áfengiskaupaaldursins.
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins, sem
haldinn var síðustu helgina í febrúar, álykt-
aði að lækka skyldi áfengiskaupaaldurinn
í átján ár og að selja skyldi bjór og léttvín í
matvöruverslunum. Þrátt fyrir þessa sam-
þykkt landsfundarinns segjast aðeins 37,4
prósent stuðningsmanna flokksins hlynntir
lækkun áfengiskaupaaldursins og 51,9 pró-
sent eru því andvíg.
Stuðningsmenn annarra flokka eru mun
ólíklegri til að vilja lækka áfengiskaupa-
aldurinn, eins og sjá má á meðfylgjandi
mynd.
Þegar spurt var um afstöðu til þess hvort
heimila ætti sölu áfengis í matvöruverslun-
um klofnaði þjóðin í tvo jafn stóra hópa. Um
45,9 prósent þeirra sem afstöðu tóku í könn-
un Fréttablaðsins og Stöðvar 2 segjast mjög
eða frekar andvíg því að selja áfengi í mat-
vöruverslunum en 45,2 prósent segjast mjög
eða frekar hlynnt slíkri breytingu.
Hringt var í 1.329 manns þar til náðist í
800 samkvæmt lagskiptu úrtaki miðviku-
daginn 27. janúar og fimmtudaginn 28. janú-
ar. Þátttakendur voru valdir með slembi-
úrtaki úr þjóðskrá. Svarendur skiptust jafnt
eftir kyni, og hlutfallslega eftir búsetu og
aldri.
Spurt var: Hversu hlynnt(ur) eða and-
víg(ur) ertu því að lækka áfengiskaupaaldur-
inn í 18 ár? Alls tóku 97,3 prósent afstöðu til
spurningarinnar. Einnig var spurt: Hversu
hlynnt(ur) eða andvíg(ur) ertu því að heimilt
verði að selja áfengi í matvöruverslunum?
Alls tóku 98,3 prósent afstöðu til þeirrar
spurningar. brjann@frettabladid.is
Meirihlutinn vill ekki lækka
áfengiskaupaaldurinn í 18 ár
Tæpur þriðjungur landsmanna vill lækka áfengiskaupaaldurinn í átján ár samkvæmt skoðanakönnun Frétta-
blaðsins og Stöðvar 2. Þjóðin klofnar í tvo jafn stóra hópa þegar spurt er um sölu áfengis í matvöruverslunum.
■ Mjög hlynnt(ur)
■ Frekar hlynnt(ur)
■ Hvorki hlynnt(ur) né andvíg(ur)
■ Frekar andvíg(ur)
■ Mjög andvíg(ur)
100%
0%
Ka
rla
r
Ko
nu
r
Bj
ör
t f
ra
m
tíð
Fr
am
só
kn
ar
fl o
kk
ur
in
n
Sj
ál
fs
tæ
ði
sfl
o
kk
ur
in
n
Sa
m
fy
lk
in
gi
n
Vi
ns
tr
i g
ræ
n
➜ Áfengiskaupaaldur
Hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) ertu því að lækka áfengiskaupaaldurinn í 18 ár?
39,3
17,0
15,5
13,1
15,1
%
Allir
➜ Áfengi í matvöruverslunum
Hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) ertu því að heimilt verði að selja áfengi í mat-
vöruverslunum?
31,2
29,9
15,314,7
8,9
Karlar
Konur
Björt framtíð
Framsóknarfl okkurinn
Sjálfstæðisfl okkurinn
Samfylkingin
Vinstri græn
100%0%
■ Mjög hlynnt(ur)
■ Frekar hlynnt(ur)
■ Hvorki hlynnt(ur) né andvíg(ur)
■ Frekar andvíg(ur)
■ Mjög andvíg(ur)
%
Allir
Heimild: Könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 dagana 27. og 28. febrúar 2013
ÞURFA AÐ BÍÐA Meirihluti landsmanna vill ekki
lækka áfengiskaupaaldurinn úr 20 árum í 18 ár.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Virðing
Réttlæti
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS
Rafræn allsherjaratkvæðagreiðsla meðal félagsmanna VR vegna kjörs
formanns og sjö sæta í stjórn og þriggja til vara, skv. 20. gr. laga félagsins,
hefst kl. 09:00 þann 7. mars nk. og lýkur kl. 12:00 á hádegi þann 15. mars nk.
Allar nánari upplýsingar er hægt að nálgast á www.vr.is eða með því að
hringja á skrifstofu félagsins í síma 510 1700.
Kjörstjórn VR
Allsherjar-
atkvæðagreiðsla
ÁRBORG Bæjarstjórn Árborgar
hefur ákveðið að segja sveitar-
félagið úr samstarfi um Skóla-
skrifstofu Suðurlands og fella sér-
fræðiþjónustu sem þar er veitt inn
í eigið stjórnkerfi.
Úrsögnin er sögð liður í
framtíðar sýn fyrir sérfræði-
þjónustu skóla í sveitarfélaginu
þar sem áhersla er á þróun þjón-
ustunnar til hagsbóta fyrir not-
endur hennar. Sjö af níu bæjar-
fulltrúum samþykktu ákvörðunina
sem er byggð á úttekt sérfræðinga.
Annar bæjarfulltrúa Samfylk-
ingar og fulltrúi V-lista sögðu
að með úrsögninni væri Árborg
að bregðast sem stærsta sveitar-
félagið á Suðurlandi. „Það er ekki
góður samstarfsaðili sem ákveð-
ur einhliða að segja sig frá margra
ára farsælu samstarfi án þess að
eiga gagnkvæmar samræður við
samstarfsaðila sína og láta sig
varða hvaða áhrif það hefur á sér-
fræðiþjónustu í hinum sveitar-
félögunum,“ bókuðu fulltrúarnir.
Fulltrúi Framsóknarflokks
sagði að á meðan það hefði
legið í loftinu að Árborg segði
sig úr samstarfinu um Skóla-
skrifstofuna hefði ekkert hinna
sveitar félaganna rætt við Árborg
um þá væntanlegu stöðu. „Má
furða sig á því að þau hafi ekki
gert það ef þeim er umhugað um
þetta samstarf,“ bókaði fulltrúi
Framsóknar flokksins. - gar
Stærsta sveitarfélag Suðurlands hættir samstarfi:
Árborg vill reka
eigin skólaþjónustu
RÁÐHÚS ÁRBORGAR Tveir fulltrúar í bæjarstjórn sögðu Árborg bregðast sem
stærsta sveitarfélagið með úrsögn úr Skólaskrifstofu Suðurlands.
SJÁVARÚTVEGUR Síldarvinnslan
hefur tekið á móti rúmlega 108
þúsund tonnum af loðnu á yfir-
standandi vertíð en til viðbótar
voru fjögur skip á landleið með
góðan afla.
Fiskimjölsverksmiðjan í Nes-
kaupstað hefur tekið á móti
52.000 tonnum og bræðslan á
Seyðisfirði 28 þúsund tonnum.
Þá hefur bræðsla fyrirtæksins í
Helguvík tekið á móti 11 þúsund
tonnum og Fiskiðjuverið í Nes-
kaupstað 17 þúsund tonnum. - shá
Loðnuvertíð í hámarki:
Komnir yfir
100.000 tonnin
SAMGÖNGUR Fimm þingmenn
Norðvesturkjördæmis hafa
lagt fram þingsályktunartil-
lögu um að láta kanna kosti
þess að gera Alexanders-
flugvöll á Sauðárkróki að vara-
flugvelli fyrir Keflavíkur-
flugvöll, Reykjavíkur flugvöll
og Akureyrar flugvöll.
Í greinargerð með tillögunni
segja flutningsmenn að með
þessu væri hægt að tryggja enn
frekar öryggi flugsamgangna.
Einsýnt sé að „verulegur
ávinningur“ gæti legið í upp-
byggingu vallarins, þar sem
hann sé vel staðsettur og vega-
samgöngur til Sauðárkróks
góðar. - þj
Tillaga fimm þingmanna:
Einsýnt að hafa
varaflugvöll á
Sauðárkróki
LOÐNA Síldarvinnslan setti nýlega met
í loðnufrystingu. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI