Fréttablaðið - 05.03.2013, Síða 13

Fréttablaðið - 05.03.2013, Síða 13
ÞRIÐJUDAGUR 5. mars 2013 | SKOÐUN | 13 Fyrir rúmri viku var birt grein í New England Journal of Medicine þar sem farið var yfir rannsókn sem gerð var með rúmlega 7.000 einstaklingum á Spáni þar sem skoðað var hvaða áhrif tiltekið mataræði hefði á hjarta- og æðasjúkdóma. Þetta er ein fárra slíkra sem gerðar hafa verið, en hún er sambæri- leg að upplagi og þegar gerðar eru stærri rannsóknir með tilliti til virkni lyfja sem kallast RCT (Randomized Controlled Trial) og eru undirstöður svokallaðrar sannreyndrar læknisfræði. Þarna var verið að bera saman þrjá hópa einstaklinga um nokk- urra ára skeið sem fylgdu leið- beiningum um mataræði sem nefnt er eftir Miðjarðarhafinu með ákveðnum áherslum á aukna neyslu ólífuolíu hjá einum þeirra, hnetuneyslu hjá öðrum og í þeim þriðja var almennt verið að leið- beina um lækkun á fituneyslu auk fræðslu til allra. Hóparnir voru samsettir úr einstaklingum á bilinu 55-80 ára sem höfðu áhættu- þætti hjarta- og æðasjúkdóma en voru ekki með sjúkdómsgrein- ingu. Það sem kemur í ljós er að þeir sem héldu sig við ofangreint mataræði og máltíðir Miðjarðar- hafsins sýndu fram á marktæka lækkun á tíðni hjarta- og æða- sjúkdóma, eða allt að 30%, sem er svipað og við sjáum hjá þeim sjúk- lingum sem nota blóðfitulækkandi lyf í forvarnarskyni. Samanburð vantar Okkur hefur reyndar lengi grunað að þessi samsetning á mataræði hefði jákvæð áhrif á þróun hjarta- og æðasjúkdóma og eru eldri rannsóknir til sem ber að sama brunni. Það eru hins vegar engar rannsóknir til sem sýna muninn á milli breytingar á mataræði og fylgni við slíkt samanborið við lyf og/eða lyfleysu. Þegar maður rýnir í rannsóknir verður því ljóst að okkur er ekki alveg að takast að bera saman þá hluti sem við helst vildum þegar kemur að því að gefa ráðleggingar og leiðbein- ingar til almennings. Þá vantar sárlega að bera saman mismunandi tegundir mat- aræðis, þar sem það er ekki leng- ur sérstaklega bundið við ákveðin landsvæði heldur geta einstakling- ar í hinum vestræna heimi nánast valið sér hvaða línu þeir aðhyllast hverju sinni, sem er gott. En hvort við eigum að drekka rauðvín og dreypa á ólífuolíu með hnetum, ávöxtum og grænmeti líkt og við Miðjarðarhafið eða borða hráan fisk og sjávargróður eins og þang og þörunga líkt og í fjarlægri Asíu er óljóst. Stanslaus áróður um það hvað er hollt og óhollt getur hins vegar ruglað mann talsvert í ríminu. Fagaðilarnir eru jafn- vel orðnir óöruggir um það hvað þeir eigi að segja skjólstæðingum sínum og taka lítinn sem engan þátt í umræðunni sem er stýrt af hagsmunapoti aðila sem hafa oft- sinnis litla sem enga þekkingu á starfsemi líkamans eða samsetn- ingu matar og næringar. Gríðarlegir hagsmunir Þá verður að telja það einnig til að hagsmunirnir eru gríðar- legir þegar horft er til lýðheilsu. Hjarta- og æðasjúkdómar eru algengastir sjúkdóma og leggja flesta að velli í hinum vestræna heimi og víðar. Því verðum við að finna ráð til að sporna við þeirri þróun sem orðið hefur. Á sama tíma eru hagsmunir lyfjaiðnaðar- ins geysimiklir, þar sem stærstu tekjupóstar hans liggja einmitt í framleiðslu á lyfjum til meðhöndl- unar og forvarna gegn þessum sömu sjúkdómum. Það væri því ekki hjálplegt fyrir þann iðnað ef hægt væri að sýna fram á betri árangur með því að fara út í búð og kaupa ákveðnar matartegundir heldur en að taka töflur. Líklega munu slíkar rannsóknir ekki eiga sér stað í náinni fram- tíð en það verður áhugavert að skoða þær þegar fram líða stund- ir. Þangað til munu læknar áfram stunda sannreynda læknisfræði eins og hún er kölluð (evidence based medicine) og ef við eigum að trúa þessari rannsókn getum við augljóslega gefið leiðbeining- ar um máltíðir Miðjarðarhafsins eins og Pollo Sofrito með glasi af góðu Brunello di Montalcino og espresso með vænu stykki af 70% súkkulaði í eftirrétt. Góðar stundir! Máltíðir Miðjarðarhafsins HEILSA Teitur Guðmundsson læknir Þegar maður rýnir í rannsóknir verður því ljóst að okkur er ekki alveg að takast að bera saman þá hluti sem við helst vildum … Umræða um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum hefur verið mikil í samfélaginu að undanförnu og hefur verið rætt um það hvernig best sé að tryggja börnum það öryggi og skjól sem þau eiga að búa við. Aðgerðar- áætlun Reykjavíkurborgar gegn kynbundnu ofbeldi og ofbeldi gegn börnum, sem samþykkt var á liðnu ári, er stórt skref í baráttunni gegn ofbeldi. Mannréttind- aráð og Mannréttindaskrif- stofa Reykjavíkur hafa haft forgöngu um að vinna þessa aðgerðaráætlun, en fjölmargir lögðu til þekkingu og reynslu, bæði borgarstarfsfólk og einnig fulltrúar ýmissa grasrótar- og hagsmunasam- taka sem búa yfir víðtækri reynslu af starfi sem tengist kynbundnu ofbeldi og ofbeldi gegn börnum. Áætlun Reykjavíkurborgar skipt- ist í tvo hluta. Fyrri hlutinn fjallar um aðgerðir gegn kynbundnu ofbeldi og sá síðari um aðgerðir gegn ofbeldi gegn börnum. Allt eru þetta raunhæfar aðgerðir og skýrt skilgreint hvaða svið borgarinnar ber ábyrgð á hverri aðgerð. Mann- réttindaráð leggur ríka áherslu á að fylgja þessari áætlun eftir með samvinnu mismunandi sviða borg- arinnar og einnig með samvinnu við hagsmunasamtök og ríki. Við viljum taka höndum saman og beita okkur gegn þessu ógnvænlega ofbeldi með fræðslu, meðferð fyrir gerendur og þjónustu við brotaþola – til hagsbóta fyrir okkur öll. Barnasáttmáli lögfestur Það eru einnig afar góð tíðindi að frumvarp sem lögfestir Barnasátt- mála Sameinuðu þjóðanna hér á landi skuli afgreitt á þingi. Barnasáttmálinn, sem var samþykktur á allsherjar- þingi Sameinuðu þjóðanna árið 1989, var fullgiltur á Íslandi árið 1992, en hins vegar verður að lögfesta alþjóðlega samninga til að þeir hafi bein réttaráhrif hér á landi. Þess vegna hefur ekki verið hægt að beita barnasáttmála Sam- einuðu þjóðanna með beinum hætti fyrir íslenskum dómstólum hingað til og því er afar mikilvægt skref að lögfesta hann. Barnasáttmálinn felur í sér viðurkenningu á að börn séu hópur sem þarfnast sérstakrar verndar umfram fullorðna og kveð- ur á um ýmis réttindi barna. Það er mikilvægt fyrir allt mannréttinda- starf sem lýtur að börnum í borginni að lögfesta Barnasáttmálann. Mannréttindi skilgreind Þá hefur mannréttindaráð Reykja- víkur staðið fyrir vinnu við að skil- greina mannréttindi ákveðinna samfélagshópa; hópa sem standa að einhverju leyti höllum fæti. Þann- ig hafa grundvallarmannréttindi útigangsfólks verið skilgreind og nýverið var skipaður starfshópur til að skilgreina grundvallarmannrétt- indi eldri borgara, sérstaklega með tilliti til sjálfstæðis og sjálfsákvörð- unarréttar. Borgarstjórn Reykjavíkur tekur mannréttindamál alvarlega og hefur sett mannréttindamál afgerandi á oddinn. Þannig borgarsamfélag vilj- um við skapa,. Mannréttindi MANNRÉTTINDI Margrét K. Sverrisdóttir formaður mann- réttindaráðs Reykjavíkur og varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar ➜ Þannig borgar- samfélag viljum við skapa. Nýr og enn betri Mercedes-Benz GLK ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Mercedes-Benz á Íslandi Þú finnur „Mercedes-Benz Ísland“ á Facebook Nýr Mercedes-Benz GLK er einstaklega öflugur og ríkulega búinn sportjeppi. Dráttargetan er heil 2.400 kg og hann eyðir aðeins 6,5 l/100 km í blönduðum akstri. Hjá Öskju á Krókhálsi 11 bíður þín glæsilegur GLK til sýnis og reynsluaksturs. Verð frá 7.590.000 kr. (220 CDI með 7 þrepa sjálfskiptingu). Til afhendingar strax. www.mercedes-benz.is. - . . og hann eyðir aðeins 6,5 l/100 km í blönd ðum akstri. Hjá Öskju á Krókhálsi 11 bíður þín glæsilegur GLK til . . . . . . . - .i .

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.