Fréttablaðið - 05.03.2013, Blaðsíða 18
FÓLK|HEILSA
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ
sem býður auglýsendum að
kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum
auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu
daglega.
Útgefandi: 365 miðlar
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn:
Jónína María Hafsteinsdóttir
jmh@365.is s 512 5473
Sverrir Birgir Sverrisson
sverrirbs@365.is, s 512 5432
Elsa Jensdóttir
elsaj@365.is s. 512-5427
■ HÚÐKRABBAMEIN
Offitugenið
svokallaða gæti
einnig aukið
líkur á alvarleg-
ustu gerð húð-
krabbameins
samkvæmt
könnun sem nýlega birtist í
Nature Genetics.
Offitugenið hefur áður verið
tengt öðrum sjúkdómum en
þetta er í fyrsta sinn sem teng-
ing við húðkrabbamein finnst.
Niðurstöðurnar hafa orðið til
þess að vísindamenn velta nú
fyrir sér hvort genið geti tengst
enn fleiri sjúkdómum.
Nánar er sagt frá á
www.bbc.co.uk.
OFFITUGEN
GÆTI TENGST
KRABBAMEINI
BLOGGAR
UM LYFJANOTKUN
Vilhjálmur Ari Arason
heilsugæslulæknir varar
við ofnotkun Voltaren
Dolo og annarra bólgu-
eyðandi lyfja í pistli
sínum á Eyjunni.
MYND/GVA
Voltaren Dolo og önnur díklófenak-skyld lyf hafa verið í umræðunni undanfarið ár vegna rannsókna
hjartalæknisins Gunnars Gíslasonar.
Þær sýna að hætta á hjartaáfalli og
heilablóðfalli eykst við notkun lyfsins
umfram önnur gigtarlyf. Vilhjálmur
Ari Arason heilsugæslulæknir varar
við ofnotkun slíkra lyfja. „Lyfjastofnun
Evrópu skoðar nú að taka Voltaren Dolo
og önnur díklófenak-skyld lyf af lausa-
sölumarkaði meðal annars í ljósi rann-
sókna Gunnars. Sumir myndu segja að
um ofnotkun væri að ræða á þessum
lyfjum sérstaklega þar sem um lausa-
sölulyf er að ræða sem eru grimmt
auglýst í dag.“
LANGTÍMA LAUSNIR
Oft eru bólgueyðandi lyf tekin á röngum
forsendum eins og við höfuðverk eða
vöðvabólgu. „Vöðvabólga er í raun bara
stífir vöðvar eða blóðrásartruflanir sem
valda verkjum.“
Lyf eins og Voltaren slær á verk-
ina vegna verkjastillandi verkunar en
bólgueyðandi áhrifin eru engin þar sem
engar bólgur er að finna. „Vöðvabólga
er tengd lífsstíl og álagi og á ekki að
leysa með töfluáti. Betra er að leita
staðbundinna lausna. Til dæmis hjá
sjúkraþjálfa sem hjálpar fólki að finna
rót vandans og lausnir í framhaldi. Sé
ætlunin að slá tímabundið á verkina eru
önnur lyf hentugri, til dæmis Paraseta-
mól.“
Bólgueyðandi lyf líkt og Voltaren
er ofnotað víðar eins og gegn ýmsum
bráðabólgum. „Á sama tíma vitum við
að tognað liðband grær betur ef líkam-
inn fær að sjá um það sjálfur. Bólgan er
oft hluti af eðlilegu ferli líkamans til að
græða.“
ÖNNUR LYF BETRI
Að sögn Vilhjálms eru gigtarlæknar
farnir að benda eldra fólki með slitgigt á
að nota frekar Parasetamól til að koma í
veg fyrir magabólgur og blæðingar sem
eru þekktar aukaverkanir Voltarens og
fleiri gigtarlyfja.
Vilhjálmur bendir á að lyfið Voltaren
Dolo sé nú auglýst sem alhliða verkja-
stillandi lyf. Þannig sé hvatt til inntöku
lyfs sem fyrst og fremst hafi kröftuga
bólgueyðandi verkun við verkjum sem
hafa ekkert með bólgur að gera. „Alvar-
legar aukaverkanir geta auðveldlega
fylgt Voltaren Dolo og umhugsunarefni
hvort ekki ætti að taka það alfarið úr
lausasölu. Enda talið varasamara en
önnur gigtarlyf.“ ■ vidir@365.is
VARASAMAR
AUKAVERKANIR
MARKAÐSVARA? Voltaren Dolo er auglýst sem alhliða verkjalyf en er þó
fyrst og fremst bólgueyðandi lyf með hugsanlegar varasamar aukaverkanir.
Nýtt námskeið hefst 26. septemberNýtt námskeið hefst 6. mars
handhægi
D-vítamín
úðinn,
hámarksnýting
Fæst í apótekum, heilsubúðum
og stórmörkuðum.
Eru ekki allir
örugglega
að fá sér
D vítamín
núna?
3
mánaða
skammtur
www.gengurvel.is
Save the Children á Íslandi
Hrefna Indriðadóttir, sjúkraþjálfari BSc og Sólveig Björg Hlöðvesdóttir,
sjúkraþjálfari BSc hafa flutt starfsemi sína frá Gigtlækningastöðinni í
Ármúla – í BATA sjúkraþjálfun ehf., Kringlunni 7 (hús verslunarinnar),
103 Reykjavík. Þær hafa báðar mikla reynslu og þekkingu á sjúkraþjálfun
gigtarfólks og munu framvegis sinna þeim hópi skjólstæðinga hjá BATA
sjúkraþjálfun.
Sólveig Björg Hlöðvesdóttir Hrefna Indriðadóttir
Hjá BATA sjúkraþjálfun starfa nú 12 sjúkraþjálfarar og þar er kappkostað
að bjóða frábæra þjónustu. Aðstaða, aðbúnaður og aðkoma er með því
besta sem gerist hér á landi og fjölhæfni sjúkraþjálfara mjög mikil.
Upplýsingar og tímapantanir í síma 553 1234
og á heimasíðu BATA sjúkraþjálfunar ehf. - www.bati.is
Einkarekið apótek
Lágt lyfjaverð - góð þjónusta
Sogavegi við Réttarholtsveg Opið kl. 9-18 • Sími 5680990 • www.gardsapotek
NÁMSKEIÐ Í BAKNUDDI
MEÐ ILMKJARNAOLÍUM
OG ÞRÝSTIPUNKTUM
Helgina 2. - 3. febrúar n.k.
frá 11:00 - 15:00
HEFURÐU ÁHUGA
Á AÐ VINNA SJÁLFSTÆTT?
Svæðanuddnám byrjar
fimmtudaginn 7. mars n.k.
frá kl. 18.00- 20.00.
Kennsla á fimmtudögum í mars og apríl,
en frá maí á miðvikudagskvöldum
frá kl. 17.00-21.00
Upplýsingar í síma 8969653
og á heilsusetur.is.