Fréttablaðið - 05.03.2013, Page 20
Bílar ÞRIÐJUDAGUR 5. MARS 20132
Volkswagen Golf á sér sér sjálfstæða og einstaka sögu í bílaheiminum. Hann hefur
verið framleiðslu í fjörutíu ár og
hefur selst í 30 milljón eintökum.
Á sínum tíma leysti hann af hólmi
annan einkar sögufrægan bíl,
Volkswagen-bjöllu, sem reyndar
aftur var hafin framleiðsla á síðar.
Nú kemur Golf fram af sjöunda
kynslóð og var hann fyrst kynntur
í Evrópu í haust. Þar sem sjötta kyn-
slóð bílsins kom fram árið 2008 liðu
ekki einu sinni fimm ár á milli kyn-
slóða, sem þykir lítið og ber vott um
hraða þróun Volkswagen á bílum
sínum.
Lítil útlitsbreyting en allt annar bíll
Sumt breytist lítið og annað mikið
með tilkomu nýja bílsins. Hvað
útlitið varðar breytist hann lítið
og margir hafa vafalaust spurt
sig hvort þarna sé ekki á ferðinni
sami bíll. Svo er þó ekki ef betur
er að gáð. Hann er lengri, breiðari
og lægri. Hann hefur fengið mýkri
línur og auðséð talsvert lengra
húdd. Hann er því rennilegri og
sportlegri fyrir vikið og breytt
nef og grill spilar þar með. Allra
stærsta breytingin er ekki sjáan-
leg en nýi bíllinn er byggður á
nýja MQB-undirvagninum eins og
flestar gerðir Volkswagen-bíla og
það hefur létt bílinn um 100 kíló.
Munar um minna. Önnur veiga-
mikil en ekki áberandi breyting er
að framhjólin hafa verið færð 4,3
cm fram og farþegarýmið færst
aftur sem því nemur. Af hverju, jú
til að bæta aksturseiginleika bíls-
ins.
Litlar en öflugar vélar
Vélarnar sem í boði eru hér á landi
eru þær sömu og í síðustu kynslóð
bílsins, eða 1,4 lítra TSI-bensínvél
sem er 122 hestöfl og 1,6 l og TDI-
dísilvél, 105 hestöfl. Fyrir milli-
stærðarfjölskyldubíl eru þetta
vélar með lítið sprengirými, en
samt ótrúlega öflugar og góðar.
Bílum með báðum þessum vélum
var reynsluekið og komu þeir báðir
á óvart fyrir getu. Bensínbíllinn var
með 7-gíra DSG-sjálfskiptingu, sem
er hreint út sagt geggjuð, en dísil-
bíllinn með góðri 6-gíra beinskipt-
ingu. DSG-sjálfskiptingin nýtir svo
vel afl vélarinnar að þegar borinn
var saman við annar nýr bíll með
fleiri hestöflum reyndist Golfinn
sneggri. Því eru hestöfl ekki allt,
stundum er snúningsjafnvægið og
það hvernig skiptingin skilar afli til
hjólanna afar mikilvægt.
Dísil vélin er mjög sparneyt-
in, togið gott og uppgefin eyðsla í
blönduðum akstri 3,8 lítrar. Í fjör-
legum reynsluakstri eingöngu inn-
anbæjar, þar sem allir kostir bíls-
ins voru framkallaðir, var eyðslan
5,5 lítrar. Ef bensínbílnum er hins
vegar rösklega ekið rýkur eyðsla
hans upp. Ástæða þessa er túrb-
ínan sem sturtar inn bensíni ef
bensínfóturinn er þungur. Upp-
gefin eyðsla bensínbílsins er 5,2 og
í innanbæjar akstri 6,6. Við mjög
líflegan akstur fór hann þó fljótt í
um 9 lítra. Það reyndist hins vegar
ekkert mál að kalla fram uppgefna
eyðslu við hóflegan akstur. Von er
á Golf í BlueMotion-útfærslu og
sá bíll eyðir aðeins 3,2 lítrum og
mengar 85 g CO
2
.
Enn betri aksturseiginleikar
Aksturseiginleikar Golf eru óum-
deilanlegir sem ávallt, en samt er
þessi nýi bíll nokkru betri en for-
verinn og skiptir þar miklu máli
hversu mikið bíllinn hefur lést, nýr
undirvagn og hversu mikið fram-
hjólin hafa færst fram. Bílnum má
henda hratt inn í beygjur og hring-
torg og veggripið er fínt. Það finnst
hve stífur og vel smíðaður bíllinn
er og rímar það vel við allt sem ber
fyrir augu í bílnum. Að innan er
Golf samur við sig, stílhreinn, ein-
faldur, falleg stjórntæki, góð efnis-
notkun og umfram flest annað, vel
smíðaður. Takkaflóð er það síðasta
sem hægt er að segja um mælaborð-
ið og er það mest að þakka falleg-
um 5,8 tommu snertiskjánum þar
sem stjórna má flestum aðgerðum
í bílnum. Hann setur mjög flottan
svip á mælaborðið og er einstaklega
einfaldur í notkun. Öll innrétting-
in er stílhrein og flott en það sem
meira máli skiptir er aukið rými
í bílnum. Hann hefur jú stækk-
að á alla kanta, fótarými er orðið
ári gott fyrir aftursætis farþega og
skottið hefur stækkað um 30 lítra.
Einhvern veginn er sérlega auðvelt
að finna rétta akstursstöðu í bíln-
um og stillanlegt stýri og góð sætin
hjálpa mikið þar til. Staðalbúnaður
í bílnum er með því besta sem ger-
ist í þessum stærðar- og verðflokki.
Eitt af því sem kemur hvað mest á
óvart er dúndurgott hljóðkerfi með
átta hátölurum.
Hóflega verðlagður
Það var verðugt verkefni fyrir
Volkswagen að bæta verulega
sjöttu kynslóð Golf en það tókst
með bravör. Hér er kominn enn
vandaðri bíll með betri aksturs-
eiginleika, lægri eyðslu, meira
innanrými, nákvæmari stýringu,
vandaðri innréttingu og svo mætti
lengi áfram telja. Það er ekki að
spyrja að verksviti Þjóðverjanna.
Einn stór kostur enn við Golf er
hversu hóflega verðlagður hann
er hér á landi og nærri má segja að
heimamenn í Þýskalandi fái ekki
mikið lægra verð. Golfinn er og
verður áfram mjög góður kostur.
Að innan er Golf samur við sig, stílhreinn, einfaldur, falleg stjórntæki, góð efnisnotkun og umfram flest annað, vel smíðaður.
Á fallegum 5,8 tommu snertiskjánum má
stjórna flestum aðgerðum í bílnum.
Verkvit
Þjóðverja í
hnotskurn
Hóflega verðlagður og nú sem fyrr mjög góður
kostur.
Sjöunda kynslóð Golf hefur ekki mikið
breyst í ytra útliti frá þeirri sjöttu. Nýi
Golfinn hefur lést um 100 kíló og munar
um minna.
Finnur Thorlacius reynsluekur VW Golf
VW Golf
1,4 bensínvél, 122 hestöfl
Framhjóladrif
Eyðsla: 5,2 l/100 km í
bl. akstri
Mengun: 120 g/km CO
2
Hröðun: 9,3 sek.
Hámarkshraði: 203 km/klst.
Verð: 3.490.000 kr.
Umboð: Hekla
KOSTIR
Góðir
aksturs-
eiginleikar,
vönduð
smíði, lágt
verð
Lágstemmd
útlitshönn-
un, of margir
eigendur!
GALLAR