Fréttablaðið - 05.03.2013, Side 30
MENNING 5. mars 2013 ÞRIÐJUDAGUR
LEIKLIST ★★★ ★★
Punch
Leikstjóri: Tryggvi Gunnarsson
NORÐURPÓLLINN
Það er alltaf stemning að koma í
Norðurpólinn á Seltjarnarnesi.
Þeir sem þar fremja sína list
leggja líf og limi í sýningarnar,
sem oft eru nýstárlegar og frum-
legar. Á fimmtudagskvöldið mætti
Tryggvi Gunnarsson til leiks með
verkið Punch, en Tryggvi stóð
einnig fyrir athyglisverðri sýn-
ingu í Norðurpólnum fyrir ári eða
svo, sem hét Gálma. Nú var hann
mættur til leiks ásamt þeim Piet
Gitz-Johansen frá Danmörku,
Ingrid Rusten frá Noregi og Lisu
Hjalmarson frá Svíþjóð. Verkið,
sem stutt er af norska menningar-
málaráðuneytinu, er flutt á ensku,
og þó að ég hefði kosið að þau töl-
uðu sín mál þýðir víst lítið að tuða
um slíkt.
Í verkinu spyrja þessi leik-
andi ungmenni erfiðra en marg-
endurtekinna spurninga: Hve-
nær tekst manninum að útrýma
sjálfum sér? Erum við ekki bara
hefðir okkar og siðvenjur og dag-
legir kækir? Er hægt að gera eitt-
hvað nýtt? Er hægt að hugsa eitt-
hvað nýtt? Verkið er ekki línuleg
frásögn heldur eins konar gjörn-
ingur og sem slíkur glettilega
framreiddur með mörgum athygl-
isverðum myndum. Tónlistin var
vel heppnuð. Hljómaði eins og
úr hringekju eða biluð grammó-
fónplata sem varð þó aldrei þreyt-
andi. Leikmyndin, sem minnir á
hringekju og sirkus, var heillandi
og sagan um stríðið sömuleið-
is góð en stríðið í Sarajevo eða
hvaða stríð sem er var nálægt í
lífi Mr. Punch þótt hann sé ein-
hvern veginn utan við allt sem
gerist. Daglegar athafnir eins
og að borða voru endurteknar í
sífellu, kannski nokkuð þreyt-
andi en áhrifaríkt, því það er jú
einmitt það sem við erum alltaf
að gera, nákvæmlega sömu hluti
dag eftir dag. Aðalpersóna verks-
ins Mr. Punch sjálfur er í höndum
Piets Gitz-Johansen sem drífur
atburðarrásina áfram. Hann er
fimur sem kötturinn og tókst að
skemmta áhorfendum þó svo að
atriðin hafi í raun og veru fjallað
um hvernig hann gæti kálað sér.
Allt virðist gert í leik eða eins og
hann sé að kynna töfrabrögð fyrir
okkur.
Sýningin í heild sinni var þó
þannig, að hver og einn verður að
túlka sjálfur um hvað hún var í
raun og veru. Elísabet Brekkan
NIÐURSTAÐA: Heldur smart gjörn-
ingur sem hefði ekki mátt vera lengri.
Glettilega framreiddur gjörningur
Getum við aðstoðað? Við bjóðum þeim sem verða 76 ára á árinu upp á öryggisheimsókn
Á næstu vikum fá einstaklingar fæddir 1937 bréf – og býðst þeim í framhaldi
að fá heimsókn frá fulltrúum Slysavarnafélagsins Landsbjargar þar sem farið
verður yfir öryggismál og slysavarnir á heimilinu. Því okkur er annt um heill
og heilsu okkar elstu borgara.
Nánari upplýsingar á www.landsbjorg.is og www.oryggi.is
Hvert heimili sem þiggur heimsókn fær reykskynjara að gjöf!
Samtök um sorg og sorgarviðbrögð
NÝ DÖGUN
www.nydogun. is www.sorg. is sorg@sorg. is
Auðbjörg Reynisdóttir hjúkrunarfræðingur ræðir um
gildi húmors og hláturs í sorgarferlinu, í erindinu
„Hlátur er ekkert grín“ 7. mars n.k.
Aðgangur er ókeypis og opinn öllum.
Erindið hefst kl. 20:30 í safnaðarheimili Háteigskirkju.
Kl. 19:00 - 20:00 er opið hús á sama stað þar sem fólk
getur komið og spjallað yfir kaffibolla.
Allir velkomnir
Dagskrá á vormisseri 2013
4. apríl - Hvað byggir upp eftir sorg og áföll?
Halldór Reynisson formaður Nýrrar dögunar.
Gildi húmors
í sorgarferlinu
- Fræðsla um líkamsbeitingu
- Vinnustaðaúttektir
- Ráðgjöf við gerð áættumats starfa
- Vinnuvistarráðgjöf
- Innleiðing og kennsla hléæfinga
Vinnuvernd ehf. sinnir fræðslu og ráðgjöf á
sviði vinnuverndar fyrir alla vinnustaði.
Vinnuvernd ehf. er viðurkenndur þjónustuaðili
á sviði öryggis og heilbrigðis á vinnustöðum.
Nánari upplýsingar í síma 578 0800 og á vinnuvernd.is
Vinnuumhverfi á þínum vinnustað
Vinnuvernd ehf. hefur um árabil sinnt fræðslu og ráðgjöf
á sviði vinnuverndar, heilsuverndar og heilsueflingar.
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
ÞRIÐJUDAGUR 5. MARS 2013
Tónlist
12.00 Sópransöngkonan Arndís Halla
Ásgeirsdóttir syngur á hádegistónleikum
í Hafnarborg. Yfirskrift tónleikana er
Sönn ást....eða ekki?
20.30 Hljómsveitin Faktor spilar á jazz-
kvöldi KEX Hostel. Hljómsveitina skipa
Steinar Sigurðarson á saxófón, Baldur
Tryggvason á gítar, Valdimar Olgeirsson á
bassa og Magnús Tryggvason Elíassen á
trommur. Aðgangur er ókeypis.
21.00 Hljómsveitin Skálmöld heldur
tónleika í Valhöll á Eskifirði. Tónleikarnir
eru hluti af Íslandstúr hljómsveitarinnar
sem gengur undir yfirskriftinni Myrkur,
kuldi, ís og snjór 2013. Miðaverð er kr.
3.000.
Bókmenntir
19.30 Mánaðarlegt stefnumót
Bókmenntafélagsins verður haldið á
Bókasafni Seltjarnarness. Tekin verður
fyrir bókin Ljósmóðirin eftir Eyrúnu
Ingadóttur.
Handverkskaffi
19.30 Prjónakaffi verður haldið á Bóka-
safni Seltjarnarness. Katrín Ósk Björns-
dóttir textílkennari leiðir hópinn.
Félagsvist
20.00 Félagsvist verður spiluð hjá Félagi
eldri borgara í Reykjavík, Stangarhyl 4.
Upplestur
18.00 Lilja Rafney Magnúsdóttir les 24.
Passíusálminn í Grafarvogskirkju í tilefni
föstunnar.
Fyrirlestrar
12.00 Anna Lísa Rúnarsdóttir, sviðsstjóri
á Þjóðminjasafninu, flytur fyrirlestur í
tengslum við sýninguna Bak við tjöldin–
safn verður til, sem nú stendur yfir.
12.00 Randi Benedikte Brodersen, lektor
í dönsku við Háskóla Íslands, heldur
fyrirlestur á dönsku um skapandi skrif
og viðlíka skriftækni í Norræna húsinu.
Í framhaldi stjórnar hún skrifsmiðju á
sama stað.
Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@
frettabladid.is og einnig er hægt að skrá
þá inni á visir.is.