Fréttablaðið - 05.03.2013, Síða 38
5. mars 2013 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 30
„Þetta var í annað sinn sem við
héldum hraðstefnumót og þau virð-
ast ætla að verða mjög vinsæl,“
segir Gerður Huld Arinbjarnar-
dóttir, sem rekur fyrirtækið Sam-
bandsmiðlun. Fyrirtækið þjónustar
einstaklinga í makaleit og skipu-
leggur uppákomur á borð við hrað-
stefnumót, hópstefnumót og fyrir-
lestra.
Hraðstefnumótin eru haldin
í samstarfi við skemmtistaðinn
Thorvaldsen og komast fjörutíu
manns að í hvert sinn. Stefnu mótin
fara fram á þann hátt að pörin fá
fimm mínútur til þess að kynnast
áður en bjöllu er hringt og hefst
þá næsta stefnumót. „Fólk merk-
ir síðan við á blað hvort það hafi
áhuga á að hitta einstaklinginn
aftur og skilar blöðunum svo til
okkar. Ef sömu tveir einstaklingar
hafa merkt hvor við annan komum
við þeim í samband,“ útskýrir
Gerður Huld. Hún segir meirihluta
fara á annað stefnumót í kjölfarið.
Hraðstefnumótin eru skipu-
lögð eftir aldri, síðast mættu ein-
staklingar á aldrinum 40 til 55 ára
og þann 27. mars verður haldið
„Ég les alltaf tímaritið Entrepreneur.
Þetta er frumkvöðla- og viðskipta-
blað sem ég hef mjög gaman af.
Seinna langar mig að reyna við
bókina 50 Shades of Grey.“
Andrés Þór Björnsson innanhússarkitekt.
BÓKIN Hraðstefnumótin slá í gegn
Sambandsmiðlun stendur fyrir hraðstefnumótum. Fólk opið fyrir nýjunginni.
VINSÆL HRAÐSTEFNUMÓT Gerður
Huld Arinbjarnardóttir, til vinstri,
og Rakel Ósk Orradóttir. Fyrirtækið
Sambandsmiðlun skipuleggur hrað-
stefnumót sem hafa slegið í gegn.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Við kjósum að kalla þetta framkvæmdahús því við
framkvæmum það sem kúnninn vill eins og nafnið
gefur til kynna,“ segir Orri Helgason, einn af eigend-
um hins nýstofnaða fyrirtækis Wedo.
Wedo er stofnað af þeim Orra og Guðmundi Ragn-
ari Einarssyni en fyrirtækið sérhæfir sig í markaðs-
málum á netinu, vefhönnun og forritun. Fyrir tækið
er með sex starfsmenn og þar á meðal er einn af
meðeigendunum, hönnuðurinn Charles Andrew
Christie sem hefur unnið fyrir heimsþekkt vöru-
merki á borð við BMW.
Orri segir erfitt að skilgreina verkefni fyrirtæk-
isins því það kemur inn á mörg svið og þess vegna
kjósa þeir að kalla sig framkvæmdahús. „Þegar við
byrjuðum að spá í þetta fyrir þremur árum bar hug-
myndin vinnuheitið „Lúllabúð“ enda langaði okkur að
við yrðum eins og gamla kaupfélagið eða Melabúðin.
Þú átt að geta fengið allt á einum stað og okkar mark-
mið er að vinna sem mest með kúnnanum,“ segir
Orri, en fyrirtækið sér einnig um að framleiða stutt-
myndir, kynningarmyndir fyrir fyrir tæki sem og að
búa til auglýsingar af ýmsum toga.
Nú þegar er kominn upp Wedo-skrifstofa í Genf
í Sviss en það er kunningi Orra sem stendur á bak
við hana. „Hann var með lítið fyrirtæki úti með
svipaða starfsemi og Wedo. Við ákváðum því að sam-
eina krafta okkar og mynda öflugt teymi undir sama
nafni en það gerir okkur kleift að vinna út fyrir
landsteinana.“ Hægt er að fræðast meira um fram-
kvæmdahúsið á vefsíðunni Wedo.is. - áp
Allsherjar framkvæmdahús
Orri Helgason er meðal eigenda nýja fyrirtækisins Wedo.
GERA ALLT Orri Helgason og Guðmundur Ragnar Einarsson
eru stofnendur Framkvæmdahússins Wedo. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Leikarinn Jóhannes Haukur
J ó h a n n e s s o n l e i k s t ý r i r
nýjum heimildar þáttum sem
verða sýndir á Stöð 2 í apríl.
Þar ræðir hann við kollega sína af
eldri kynslóðinni, þá Ladda, Karl
Ágúst Úlfsson og Sigurð Sigur-
jónsson, sem standa á bak við ein-
leikinn Laddi lengir lífið sem verð-
ur frum sýndur í Hörpu 5. apríl.
Þar fá áhorfendur í fyrsta sinn að
kynnast Ladda í eigin persónu.
„Ég hef verið að vinna með þess-
um mönnum síðastliðin ár við mis-
munandi tækifæri. Nú síðast lékum
við Laddi saman í Vesalingunum í
Þjóðleikhúsinu. Það er svo hrika-
lega gaman og fáránlega áhuga-
vert að tala við þessa menn um
það sem snýr að okkar fagi og í
raun um hvað sem er. Þeir hafa frá
svo mörgu að segja, þeir hafa svo
mikla reynslu og mér hefur þótt
svo afskaplega vænt um að fá að
eiga þessi samtöl við þessa menn,“
segir Jóhannes Haukur um þessa
nýju þætti. Þeir verða að öllum lík-
indum þrír talsins og verður hver
þeirra hálftíma langur. Áætlað er
að sýna fyrsta þáttinn fyrir frum-
sýninguna á Laddi lengir lífið.
Þetta verður fyrsta leikstjóra-
verkefni Jóhannesar Hauks síðan
hann útskrifaðist sem leikari úr
Lista háskólanum.
„Þegar ég heyrði af þessu verk-
efni þeirra þriggja, datt mér í hug
að reyna að fanga þessa stemningu
sem ég upplifi með þeim og miðla
henni til fólksins heima í stofu.
Mér þótti áhugavert að Laddi væri
í raun að byrja upp á nýtt í þessari
sýningu, og styðst ekki við gömlu
karakterana. Það er ekkert sjálf-
gefið að listamenn nenni að standa
í því að finna sig upp á nýtt eftir
sextugsaldurinn,“ segir hann.
Jóhannes leikstýrir
þáttum um Ladda
Leikarinn Jóhannes Haukur Jóhannesson leikstýrir nýjum heimildarþáttum um
Ladda. Karl Ágúst Úlfsson og Sigurður Sigurjónsson koma einnig við sögu.
Save the Children á Íslandi
Fiskikóngurinn • Sogavegi 3
HARÐFISKUR
- barinn og óbarinn
LAXAFLÖK
- beinhreinsuð og flott
80 manns sóttu um á síðasta hrað stefnumót
stefnumót fyrir aldurinn 25 til 40
ára. Innt eftir því hvort Íslending-
ar séu opnir fyrir svona nýjung-
um segir Gerður Huld svo vera.
„Fólk er feimið til að byrja með,
en þegar líður á kvöldið slakar það
á. Við höfum átt í erfiðleikum með
að rýma húsnæðið í lok kvölds því
fólk er svo upptekið við að spjalla.“
- sm
➜ Hallgrímur Ormar úr Heilsubælinu
í Gervahverfi er uppáhalds Laddapersóna
Jóhannesar Hauks.
Jóhannes bætir við að verkefnið
hafi aðeins undið upp á sig. „Við
fórum t.d. á stúfana með Ladda þar
sem hann var að prófa eitthvað af
nýja efninu á uppistandssýningu
hjá Mið-Íslandi. Við fengum að
kynnast því hvernig eitt stykki ein-
leikur með Ladda, bara nýtt efni,
verður til,“ segir hann. „Þetta var
með afbrigðum áhugaverð stúdía
fyrir mig og ég er ekki í nokkr-
um vafa um að áhorfendur heima
í stofu muni hafa gagn og gaman
af.“ freyr@frettabladid.is
NÝIR HEIMILDAR ÞÆTTIR
Jóhannes Haukur Jóhannes-
son leikstýrir nýjum
heimildar þáttum um Ladda
sem verða sýndir í apríl.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN