Fréttablaðið - 19.03.2013, Side 2
19. mars 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 2
SPURNING DAGSINS
Hálfdán, fær maður bónusstig
fyrir að syngja Roundabout
með Yes?
„Já, það eru tólf aukastig, douze
points.“
Hálfdán Steinþórsson er framkvæmdastjóri
Hringtorgs. Hringtorg stendur á fimmtudag
fyrir karókíkeppni meðal háskólanema. Sigur-
vegarinn fær flug og miða fyrir þrjá á seinni
undankeppni Eurovision í maí.
DÝRALÍF „Skuggi er örugglega
klárasti hestur sem ég hef komið
nálægt, hann lærir allt mjög hratt,“
segir Jónína Valgerður Örvar, 15
ára hestakona sem hefur kennt
hestinum sínum að telja og reikna.
Skuggasveinn, oftast kallaður
Skuggi, er tíu vetra hestur sem
Jónína hefur verið með í ár. Á
nokkrum dögum tókst Jónínu að
kenna Skugga að telja, og komst
svo að því að hann átti auðvelt með
að leggja saman líka. Skuggi sýndi
blaðamanni hlýðinn hvernig hann
taldi upp að tíu með því að berja
hófunum í snjóskafl, og að því
loknu lagði hann saman einn og
einn, og svo tvo og einn.
Jónína kenndi Skugga spænska
sporið svokallaða í vetur, en þegar
hestar stíga spænska sporið lyfta
þeir framfótunum og slá hófnum í
jörðina.
„Vinkona mín var að grínast í
mér þegar ég var að sýna henni
spænska sporið og spurði hvort ég
ætlaði að kenna honum að telja. Ég
hélt að þetta væri það vitlausasta
sem hægt væri að gera, en svo fór
ég að prófa mig áfram,“ segir Jón-
ína. Hún byrjaði á að kenna honum
að telja upp í tvo en sá svo að hann
var lærdómsfús og hélt áfram að
kenna honum tölurnar. Jónína notar
hestanammi sem Skuggi er sólginn
í til að fá hann til að telja og leggja
saman. Þegar hann telur rétt fær
hann nammi að launum.
„Hann var ótrúlega fljótur að
læra þetta, mér fannst næstum
eins og hann kynni þetta fyrir þó
að honum hafi aldrei verið kennt
þetta.“
Jónína segir líklegt að Skuggi sé
óvenju vel gefinn af hesti að vera og
læri allt sem honum sé kennt hratt
og vel. Það sama eigi við um systur
hans, þó að hún hafi ekki enn verið
kynnt fyrir heimi stærðfræðinnar
á sama hátt og Skuggi.
Talnaþjálfun Skugga hefur ekki
tekið sérlega langan tíma, hann
byrjaði að læra síðastliðinn föstu-
dag, og sýndi listir sínar þegar
Fréttablaðið leit í heimsókn í hest-
húsahverfið í Hafnarfirði á sunnu-
dag.
Jónína segir þetta í fyrsta skipti
sem hún hafi reynt að kenna hesti
tölurnar, og þó er hún búin að vera í
hestamennsku frá því hún man eftir
sér. Hún hefur enn ekki fengið mikil
viðbrögð frá öðrum hestamönnum
enda hefur hún ekki verið að aug-
lýsa sérstaklega hæfileika hins
talna glögga Skugga utan nánasta
vinahópsins. brjann@frettabladid.is
Kenndi hestinum að
leggja saman og telja
Fimmtán ára hestakona segir hestinn Skugga hafa lært að leggja saman og telja á
nokkrum dögum. „Klárasti hestur sem ég hef komið nálægt,“ segir hún. Ákvað að
prófa hvort Skuggi væri talnaglöggur eftir að hafa kennt honum spænska sporið.
TALNAGLÖGGUR Jónínu tókst að kenna Skugga að telja og reikna á nokkrum
dögum, enda er hann sagður sérlega gáfaður hestur. FRÉTTABLAÐIÐ/BRJÁNN
ORKUMÁL Nokkrar skemmdir upp-
götvuðust á Nesjavallalögn Orku-
veitu Reykjavíkur (OR) í gær og
benda ummerki eindregið til þess
að ekið hafi verið á hana. Þetta er,
að því er fram kemur í tilkynningu
OR, í annað skiptið á stuttum tíma
sem viðlíka atvik á sér stað, en í
janúar var einnig ekið á pípuna.
OR hafði í millitíðinni gripið til
þess ráðs, í samstarfi við Vega-
gerðina, að loka veginum með
áberandi hætti en til lítils að því
er virðist.
Alvarlegt tjón getur hlotist af
því að aka á lögnina þar sem hún
gæti mögulega brostið með til-
heyrandi hættu á heitavatnsskorti.
Í þessu síðasta tilviki hafði
hlífðar kápa gegn tæringu rofnað
og því greið leið fyrir raka að
lögninni sjálfri.
OR segir þess vegna mikil-
vægt að láta vita ef óhapp sem
þetta verður, svo að hægt sé að
bregðast fljótt við og koma í veg
fyrir frekara tjón. - þj
Skemmdir unnar á Nesjavallalögn OR í annað sinn á stuttum tíma:
Ekið á lögn þrátt fyrir bann
KLESST Á Einhver hefur ekið utan í Nesjavallalögn OR með þeim afleiðingum að
hlífðarkápa rifnaði. MYND/OR
NORÐURSLÓÐIR Carl Bildt, utan-
ríkisráðherra Svíþjóðar, og Össur
Skarphéðinsson, starfsbróðir hans,
eru sammála um að rétt sé að fleiri
ríkjum verði veitt áheyrnaraðild
að Norðurskautsráði. Það myndi
tryggja ráðið í sessi sem hinn eina
umræðuvettvang um málefni sem
tengjast norðurslóðum. Þetta kom
fram í máli ráðherranna á setningar-
athöfn alþjóðlegrar ráðstefnu um
áskoranir og tækifæri á norður-
slóðum sem nýstofnað Rannsókna-
setur um norðurslóðir stendur fyrir.
Átta ríki eiga aðild að ráðinu en
auk þess eru sex önnur ríki áheyrn-
araðilar. Fleiri ríki hafa sótt um að
fá áheyrnaraðild, til að mynda Kína.
Össur og Bildt sögðust báðir í
ávörpum sínum vonast til þess að
ráðið kæmi til með að eflast að burð-
um á komandi árum. Hluti af því
væri að bæta við áheyrnaraðilum.
„Með því að fá fleiri til að gang-
ast undir okkar viðmið og reglur
getum við fest Norðurskautsráðið
í sessi sem hinn eina samráðsvett-
vang,“ sagði Bildt og bætti því við
að ef öðrum ríkjum yrði vísað frá
gæti það orðið til þess að þau leit-
uðu annað. Fleiri áheyrnaraðilar
fælu hins vegar ekki í sér minni völd
aðildarríkjanna.
Össur tók undir þetta og bætti því
við að nýjum áheyrnaraðilum yrði
ekki hleypt inn nema þeir gengjust
undir reglur Norðurskautsráðsins
og legðu sitt af mörkum til rann-
sóknastarfs. Næsti ráðherraráðs-
fundur Norðurskautsráðsins verður
haldinn í Kírúna í Svíþjóð í maí
næst komandi. - þj
Utanríkisráðherrar Íslands og Svíþjóðar sammála um framtíð norðurslóðamála:
Norðurskautsráð verði eini vettvangurinn
Á GÓÐRI STUND Vel fór á með Carl
Bildt og Össuri Skarphéðinssyni í gær.
Ráðstefna um norðurslóðir fer fram í
dag og á morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Stúlkan sem lést í slysi á bænum
Fjósatungu í Þingeyjarsveit síð-
astliðinn föstudag hét Lilja Dóra
Ástþórsdóttir.
Hún var eins og hálfs árs
gömul en hún lést þegar hún
varð fyrir lítilli vinnuvél.
Lést af slysförum
Í MÖMMULEIK Tvær ungar stúlkur í Jalalabad leika sér með búrkur. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
AFGANISTAN Um helgina héldu Afganar hátíð í tilefni vorkomunnar
og nýs árs, sem að þessu sinni er númer 1.392 frá upphafi persneska
tímatalsins. Nowruz-hátíðin er ein sú stærsta, bæði í Afganistan og
einnig í mörgum nágrannaríkjanna.
Enn geisar þó stríð í landinu og friðarviðræður stjórnvalda við
talibana hafa ekki gengið vel. Í gær gripu svo leiðtogar stjórnarand-
stöðunnar til þess að hefja sjálfir viðræður við talibana, þar sem þeim
þykir stjórninni ekkert hafa orðið ágengt. - gb
Ein stærsta hátíð ársins í stríðshrjáðu landi:
Vori fagnað í Afganistan
LÖGREGLUMÁL Maðurinn sem
réðist á tólf ára dreng í Hafnar-
firði í fyrrakvöld var enn
ófundinn þegar Fréttablaðið fór
í prentun í gær.
Árásin átti sér stað þegar
drengurinn var á gangi ásamt
þremur vinum sínum. Maðurinn
réðist að drengjunum, náði
einum og sló og sparkaði í hann.
Eftir það flúði maðurinn á braut.
Drengurinn fór ásamt foreldrum
sínum á slysadeild. - þj
Veittist að tólf ára dreng:
Árásarmaður er
enn ófundinn
Myndskeið sem sýnir hestinn
Skugga telja upp að tíu og leysa
tvö samlagningardæmi má fi nna á
Vísi.is og á Fésbókarsíðu
Fréttablaðsins. Sjá nánar á
facebook.com/frettabladid
visir.is
KANADA
Fangar struku á þyrlu
Tveir fangar struku á stolinni þyrlu úr
fangelsi skammt frá Montreal í Kanada.
Þeir náðust nokkru síðar eftir mikinn
eltingaleik og skotbardaga.