Fréttablaðið - 19.03.2013, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 19.03.2013, Blaðsíða 19
BÍLAR ÞRIÐJUDAGUR 19. MARS 2013 F áar fréttir fara af Audi en góðar fréttir. Fyrirtækið rakar til sín verðlaunum og bílar þeirra seljast vel í öllum heimshlutum. Enn fremur var hagnaður Volkswa- gen á síðasta ári að stórum hluta upprunninn frá Audi. Höfuð- stöðvar Audi eru í Ingolstadt, ekki langt frá München í Bæjaralandi. Blaðamaður bílablaðs Fréttablaðsins var þar á ferðinni fyrir stuttu og fékk langa og ítarlega leið- sögn um verksmiðju Audi í Ingolstadt, sem og um glæsilegt bílasafn Audi. Í Ingolstadt eru framleiddir hvorki meira né minna en 2.700 bílar á dag af 35.356 starfsmönnum í verksmiðju sem er á stærð við Mónakó. Unnið er allan sólarhringinn, til að að anna mikilli eftirspurn eftir bílum þeirra, nema á sunnudögum. Þessi framleiðsluhraði þýðir að nýr bíll verður til á 30 sekúndna fresti. Það er kannski ekkert skrítið í ljósi þess að verksmiðja þessi er næststærsta bílaverksmiðja Evrópu, á eftir verksmiðju Volkswagen í höfuðstöðvum þeirra í Wolfs- burg. Audi er mjög eftirsóttur vinnustaður og því nýtur fyrirtækið þess að geta valið góða starfsmenn úr stórum hópi þeirra sem þar vilja vinna. Hver bíll tekur 32 tíma í framleiðslu Það er sannarlega með ólíkindum að koma inn á svo stóran vinnustað og enn áhuga- verðara að sjá hvernig þeir vinna á meðal þeirra ótalmörgu vélmenna sem þar eru. Vitað var að bílar Audi eru vandaðir mjög en eftir heimsóknina sannfærðist blaða- maður um af hverju. Kemur þar margt til, svo sem vönduð efnisnotkun, ótrúlegt gæðaeftirlit, rannsóknarstarf og notkun allra nýjustu tækni. Í Ingolstadt eru fram- leiddir bílarnir A3, A4, A5, TT og Q5. Tekur það að jafnaði 32 klukkustundir frá því að smíði bíls hefst þangað til hann rúllar fullsmíðaður út úr verksmiðjunni. Það gefur því augaleið að margir bílar eru í smíði í einu og þeir mjakast hægt og rólega eftir færiböndunum og færast milli starfs- manna sem hver og einn hefur sitt sér- hæfða hlutverk. Starfsmenn skipta þó oft um hlutverk til að einhæfni gæti minna. Frábært starfsumhverfi Flestir ímynda sér að það að vinna við að setja saman bíla sé eins og úr Chaplin- mynd þar sem fólk vinnur eins og vél- menni, er hætt að hugsa og vinnur ósjálf- rátt. Svo er ekki. Starfsfólk fer úr einu í annað og reynir stöðugt að finna út hvernig gera má hlutina betur og er umbunað fyrir vel heppnaðar umbæt- ur. Starfsumhverfi þeirra er eins gott og hugsast getur og engum þeirra er gert það að vinna við óheilbrigðar aðstæður. Bílunum er snúið og lyft eftir því hvernig hver starfsmaður er í bestri líkamsstöðu til að sinna hlutverki sínu. Hreinleiki og snyrtimennska er í hávegum höfð og hægt að fullyrða að flestar skrifstofur eru mun skítugri en gólfin þar. Loftræsting virðist einnig vera með allra besta móti og fannst aldrei óþægileg lykt af neinum sterkum efnum. Þó örlítið í þeim sal þar sem bíl- arnir eru soðnir saman af vélmennum, þar fannst suðulykt sem margir kannast við af bílaverkstæðum eða í skipasmíði. Búast má við að verksmiðjan í Ingolstadt þróist nokkuð og stækki á næstu árum því til ársins 2015 er áætlað að fjárfesta í henni fyrir 1 milljarð evra á ári, eða 126 milljarða! Það rímar kannski ágætlega við áætlanir Audi að fjölga mjög bílgerðum sínum á næstu árum til að þóknast kaup- endum. Á teikniborðinu eru a.m.k. Q2, Q4 og Q6 jepplingar. Framleiða 2.700 Audi-bíla á dag Unnið er allan sólarhringinn á þrískiptum vöktum. Til höfuðstöðvanna í Ingolstadt koma 250 kaupendur á dag að sækja nýja bíla sína. Audi hyggst fjárfesta í verksmiðjunni fyrir einn milljarð evra á ári til 2015. visir.is/bilar Reynsluakstur Ford Fiesta Leita glæstra fornbíla Meirihluti yfir hámarkshraða! Volkswagen fjölgar bílgerðum Áskorun frá FÍB LEGUR OG PAKKDÓSIR VAGNHÖFÐI 7 – SÍMI 5 17 5 000

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.