Fréttablaðið - 19.03.2013, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 19.03.2013, Blaðsíða 21
3BÍLAR ●Þriðjudagur 19. mars 2013 Fréttablaðið hestafla sem og hina margverðlaunuðu 100 hestafla EcoBoost-vél, en hún er með sama sprengirými. Þá býðst einnig 1,6 lítra bensínvél, 105 hestöfl og 1,5 lítra dísil vél, 75 hestöfl. Um 80 hestafla bensín vélina í reynsluakstursbílnum er það að segja að hún er frekar kraftlaus fyrir þennan bíl og fyrir marga verður freistandi að velja frekar 100 hestafla EcoBoost-vélina. Með þá vél kostar hann ekki nema 100.000 kr. meira og eyðsla þess bíls er sú sama og mjög lág, 4,3 lítrar í blönduðum akstri. Allar útgáfurnar, nema sú með 1,6 lítra bensínvélinni, fá frítt í stæði og menga minna en 100 g/km af CO2. Ekið var bein- skiptum bíl, sem flestar útgáfur hans reyndar eru, því hann býðst aðeins sjálf- skiptur hjá Brimborg með 1,6 lítra bensín- vélinni. Beinskipting bílsins er ágæt, nema fyrir eins hluta sakir, það vantar sárlega sjötta gírinn. Þessi skortur hefur kannski ekki mikið að segja í borgarakstri en væri sannarlega ókostur utan borgar markanna. Þegar nálgast fer þriggja stafa tölu á hraðamælinum er vélin á 3.000 snúningum og virkilega hefur fyrir hlutunum. Það hleypur upp eyðslu bílsins, sem sjötti gír- inn kæmi í veg fyrir. Það væri ekki heppi- legt að aka bílnum á þýskum hraðbrautum og vera að flýta sér. Frábær í akstri og flott innrétting Þegar kemur að því að lýsa aksturseigin- leikum bílsins kemur helst upp orðið frá- bær. Hann er einstaklega hæfur bíll í akstri og liprari en liðugasti köttur. Því verður einstaklega skemmtilegt að leggja mikið á hann og leyfa honum að sýna snilli sína í frísklegum akstri. Það hjálpar vafalaust aksturseiginleikum bílsins hversu lítil og létt vélin er í bílnum og nef hans verður sannarlega ekki þungt. Vanalega þegar keyptur er lítill bíll þarf kaupandi hans að 1,0 BENSÍNVÉL, 80 HESTÖFL Framhjóladrif Eyðsla 4,3 l/100 km í bl. akstri Mengun 99 g/km koltvísýringur Hröðun 14,9 sek. Hámarkshraði 165 km/klst. Verð 2.650.000 kr. Umboð Brimborg sætta sig við hráleika, lítil þægindi og auka- búnað og að lítið sé lagt í útlit að innan. Ekkert af þessu á við Ford Fiesta, hann er hreinlega flottur að innan og stjórntækin ríkuleg og flott, hönnun öll til fyrirmyndar og talsverður töffaraskapur í gangi. Þessir hlutir eru mjög að breytast í smærri bílum í dag og Fiesta er einn þeirra sem hvað best ryður þá braut. Þó efnisnotkun sé ekki af dýrari gerðinni bætir sniðug hönnun og litaval það algerlega upp og frísklegt er að sjá lit í mælaborði sem rímar við lit hans að utan. Svona smár bíll á einmitt að vera frísklegur í litum og alls ekki hafa göfuga og þunga svarta lúxusinnréttingu. Rýmið í bílnum er furðu gott miðað við stærðarflokk og vel fer um framsætisfarþega í þokka- legum sætum. Höfuðrými að aftan skerðist vegna afturhallandi teikningar bílsins og hentar lítt fullorðnum í lengri akstri. Mæla- borðið er laglegt og flatt og fyrirkomu- lagið mikið í ætt við aðra Ford-bíla, en pínu langt er í stjórntækin fyrir miðju mæla- borði. Skottrými er með því allra besta í bíl í þessum flokki, eða 290 lítrar. Mikill staðalbúnaður og ágætt verð Staðalbúnaður er góður fyrir ekki dýr- ari bíl og mörg nýbreytnin, svo sem forrit- anlegi lykillinn MyKey þar sem takmarka má hámarkshraða, hljóðstyrk hljómtækja og annað sem unglingur heimilisins er lík- legur til að misnota. Bíllinn er með Start stop-tækni sem eykur á sparneytni hans og bíllinn er nokkuð fljótur að bregðast við þegar lagt er af stað aftur. Allar tengingar eru til staðar, líka Bluetooth-tenging fyrir síma. Brekkuaðstoðin í bílnum er vel þegin en hún heldur bílnum kyrrum í nokkurn tíma þótt kúplingu sé sleppt í brekku, en margir þeir sem aka beinskiptum bílum kvíða engu meir en því að leggja af stað í brattri brekku. Ódýrasta útgáfa Ford Fiesta er á 2.490.000 krónur en í Titanium-út- færslu, mjög vel búinn og flottur með 100 hestafla vélinni er hann kominn í 2.950.000 krónur. Bæði flott kaup og stendur Fiesta vel hvað samkeppni í þessum stærðar- flokki varðar. Hætt er við að milljónirnar í seldum Fiesta-bílum haldi áfram að tikka á næstu árum, hann virðist eiga það skilið. GÓÐUR Í AKSTRI Er jafn góður í akstri og stóri bróðir hans, Ford Focus. BEIN SKIPTINGIN skortir mjög sjötta gírinn í lengri akstri. Innréttingin í Fiesta er frískleg og flott og spilar með ytri lit bílsins. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN ● Góðir aksturseiginleikar ● Laglegt innanrými ● Gott verð ● Vantar sjötta gír í beinskipt- ingu ● Minni vélarnar kraftlitlar FORD FIESTA Það er gaman að fá sér nýjan bíl. Í mars býður Ergo 50% afslátt af lántökugjöldum bílalána og bílasamninga þegar þú fjármagnar kaup á bíl. Það gildir einu hvort bíllinn kemur beint úr kassanum eða er kominn með reynslu. Við aðstoðum þig með ánægju! 50% afsláttur af lántökugjöldum Suðurlandsbraut 14 > sími 440 4400 > www.ergo.is > ergo@ergo.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.