Fréttablaðið - 19.03.2013, Blaðsíða 21
3BÍLAR ●Þriðjudagur 19. mars 2013
Fréttablaðið
hestafla sem og hina margverðlaunuðu 100
hestafla EcoBoost-vél, en hún er með sama
sprengirými. Þá býðst einnig 1,6 lítra
bensínvél, 105 hestöfl og 1,5 lítra dísil vél,
75 hestöfl. Um 80 hestafla bensín vélina í
reynsluakstursbílnum er það að segja að
hún er frekar kraftlaus fyrir þennan bíl
og fyrir marga verður freistandi að velja
frekar 100 hestafla EcoBoost-vélina. Með
þá vél kostar hann ekki nema 100.000 kr.
meira og eyðsla þess bíls er sú sama og
mjög lág, 4,3 lítrar í blönduðum akstri.
Allar útgáfurnar, nema sú með 1,6 lítra
bensínvélinni, fá frítt í stæði og menga
minna en 100 g/km af CO2. Ekið var bein-
skiptum bíl, sem flestar útgáfur hans
reyndar eru, því hann býðst aðeins sjálf-
skiptur hjá Brimborg með 1,6 lítra bensín-
vélinni. Beinskipting bílsins er ágæt, nema
fyrir eins hluta sakir, það vantar sárlega
sjötta gírinn. Þessi skortur hefur kannski
ekki mikið að segja í borgarakstri en væri
sannarlega ókostur utan borgar markanna.
Þegar nálgast fer þriggja stafa tölu á
hraðamælinum er vélin á 3.000 snúningum
og virkilega hefur fyrir hlutunum. Það
hleypur upp eyðslu bílsins, sem sjötti gír-
inn kæmi í veg fyrir. Það væri ekki heppi-
legt að aka bílnum á þýskum hraðbrautum
og vera að flýta sér.
Frábær í akstri og flott innrétting
Þegar kemur að því að lýsa aksturseigin-
leikum bílsins kemur helst upp orðið frá-
bær. Hann er einstaklega hæfur bíll í akstri
og liprari en liðugasti köttur. Því verður
einstaklega skemmtilegt að leggja mikið
á hann og leyfa honum að sýna snilli sína
í frísklegum akstri. Það hjálpar vafalaust
aksturseiginleikum bílsins hversu lítil og
létt vélin er í bílnum og nef hans verður
sannarlega ekki þungt. Vanalega þegar
keyptur er lítill bíll þarf kaupandi hans að
1,0 BENSÍNVÉL, 80 HESTÖFL
Framhjóladrif
Eyðsla 4,3 l/100 km í bl. akstri
Mengun 99 g/km koltvísýringur
Hröðun 14,9 sek.
Hámarkshraði 165 km/klst.
Verð 2.650.000 kr.
Umboð Brimborg
sætta sig við hráleika, lítil þægindi og auka-
búnað og að lítið sé lagt í útlit að innan.
Ekkert af þessu á við Ford Fiesta, hann er
hreinlega flottur að innan og stjórntækin
ríkuleg og flott, hönnun öll til fyrirmyndar
og talsverður töffaraskapur í gangi. Þessir
hlutir eru mjög að breytast í smærri bílum
í dag og Fiesta er einn þeirra sem hvað best
ryður þá braut. Þó efnisnotkun sé ekki af
dýrari gerðinni bætir sniðug hönnun og
litaval það algerlega upp og frísklegt er að
sjá lit í mælaborði sem rímar við lit hans
að utan. Svona smár bíll á einmitt að vera
frísklegur í litum og alls ekki hafa göfuga
og þunga svarta lúxusinnréttingu. Rýmið í
bílnum er furðu gott miðað við stærðarflokk
og vel fer um framsætisfarþega í þokka-
legum sætum. Höfuðrými að aftan skerðist
vegna afturhallandi teikningar bílsins og
hentar lítt fullorðnum í lengri akstri. Mæla-
borðið er laglegt og flatt og fyrirkomu-
lagið mikið í ætt við aðra Ford-bíla, en pínu
langt er í stjórntækin fyrir miðju mæla-
borði. Skottrými er með því allra besta í bíl
í þessum flokki, eða 290 lítrar.
Mikill staðalbúnaður og ágætt verð
Staðalbúnaður er góður fyrir ekki dýr-
ari bíl og mörg nýbreytnin, svo sem forrit-
anlegi lykillinn MyKey þar sem takmarka
má hámarkshraða, hljóðstyrk hljómtækja
og annað sem unglingur heimilisins er lík-
legur til að misnota. Bíllinn er með Start
stop-tækni sem eykur á sparneytni hans
og bíllinn er nokkuð fljótur að bregðast við
þegar lagt er af stað aftur. Allar tengingar
eru til staðar, líka Bluetooth-tenging fyrir
síma. Brekkuaðstoðin í bílnum er vel þegin
en hún heldur bílnum kyrrum í nokkurn
tíma þótt kúplingu sé sleppt í brekku, en
margir þeir sem aka beinskiptum bílum
kvíða engu meir en því að leggja af stað í
brattri brekku. Ódýrasta útgáfa Ford Fiesta
er á 2.490.000 krónur en í Titanium-út-
færslu, mjög vel búinn og flottur með 100
hestafla vélinni er hann kominn í 2.950.000
krónur. Bæði flott kaup og stendur Fiesta
vel hvað samkeppni í þessum stærðar-
flokki varðar. Hætt er við að milljónirnar í
seldum Fiesta-bílum haldi áfram að tikka á
næstu árum, hann virðist eiga það skilið.
GÓÐUR Í AKSTRI
Er jafn góður
í akstri og
stóri bróðir
hans, Ford
Focus.
BEIN SKIPTINGIN
skortir mjög
sjötta gírinn í
lengri akstri.
Innréttingin í Fiesta er frískleg og flott og spilar með ytri lit bílsins. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
● Góðir aksturseiginleikar
● Laglegt innanrými
● Gott verð
● Vantar sjötta gír í beinskipt-
ingu
● Minni vélarnar kraftlitlar
FORD FIESTA
Það er gaman að fá sér nýjan bíl.
Í mars býður Ergo 50% afslátt af lántökugjöldum bílalána og bílasamninga þegar þú fjármagnar
kaup á bíl. Það gildir einu hvort bíllinn kemur beint úr kassanum eða er kominn með reynslu.
Við aðstoðum þig með ánægju!
50% afsláttur af lántökugjöldum
Suðurlandsbraut 14 > sími 440 4400 > www.ergo.is > ergo@ergo.is