Fréttablaðið - 19.03.2013, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 19.03.2013, Blaðsíða 14
19. mars 2013 ÞRIÐJUDAGURSKOÐUN HALLDÓR FRÁ DEGI TIL DAGS FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is og Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is DÆGURMÁL: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 Kæri Jón. Við hjónin skrifum þér vegna þess að þú hefur látið þig varða um mannréttindi. Þú hefur gerst málsvari hópa sem eiga sér ýmist marga eða fáa málsvara og viljað beita áhrifum þínum til þess að láta gott af þér leiða. Við viljum vekja athygli þína á brýnu mannréttindamáli og kalla eftir liðsinni þínu. Við vitum að um þig getur munað. Haft er eftir Kofi Annan, fyrrum fram- kvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, að „hvarvetna sem við forðum einni sál frá lífi í fátækt verjum við mannréttindi. Hve- nær sem okkur mistekst þetta bregðumst við mannréttindum“. Sameinuðu þjóðirnar hafa vakið athygli á því að fátækt er einn alvarlegasti mannréttindavandi samtím- ans. Áhrif fátæktar á konur eru sérstakt umhugsunarefni, eins og biskup Íslands kynntist í ferð sinni til Afríku á dögunum. Við höfum séð það hér á Íslandi, fyrir og eftir hrun, hvernig bilið milli ríkra og fátækra eykst. Hvernig völdum er beitt þannig að þau sem eiga lítið eignast minna og þau sem eiga mikið eignast meira. Þetta gengur ekki lengur. Átaks er þörf og það þarf að leiða til hugarfarsbreytingar. Við viljum hvetja til samvinnu stofnana sem hafa látið sig varða þessi mál. Þar nefnum við sérstaklega trúfélögin. Þjóð- kirkjan sýnir von í verki í þjónustu Hjálpar starfs kirkjunnar og presta um allt land. Hjálparstarfið hefur verið lykil- stofnun í neyðarhjálp og uppbyggingu eftir hrun. Samhjálp og Hjálpræðis herinn sinna líka fólki í neyð og gera það vel. Nýlega lýsti svo nýkjörni páfinn Frans því yfir að hann vildi gera rómversk-kaþólsku kirkjuna að fátækri kirkju sem starfar fyrir fátæka. Þar með hefur sett hann bar- áttuna gegn fátækt í heiminum á dagskrá. Við þurfum að taka höndum saman til að vinna bug á aðkallandi vanda. Við skulum byrja heima og þar geta borgin okkar og trúfélögin gegnt lykilhlutverki. Ertu með? Fátækt og mannréttindi – opið bréf SAMFÉLAG Árni Svanur Daníelsson prestur Kristín Þórunn Tómasdóttir prestur ➜Við höfum séð það hér á Ís- landi, fyrir og eftir hrun, hvernig bilið milli ríkra og fátækra eykst. Hvernig völdum er beitt þannig að þau sem eiga lítið eignast minna og þau sem eiga mikið eignast meira. Þetta gengur ekki lengur. Ársfundur Landsaðgangs að rafrænum gagnasöfnum og tímaritum verður haldinn föstudaginn 22. mars kl. 15.00 Fundurinn verður í fyrirlestrarsal Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns í Þjóðarbókhlöðu við Arngrímsgötu í Reykjavík. Nánari upplýsingar á www.hvar.is 1 Ungir kjósendur sem kjósa í fyrsta sinn eru nærri 20 þús-und. Samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 kemur fram að ef unga fólkið fengi að ráða næði flokkur pírata fimm frambjóðendum á þing. Þegar heildarfjöldi kjósenda er skoðaður á enginn frambjóðandi Pírata möguleika á þingsæti. Þetta hljóta að teljast stórtíðindi og sjaldgæft að svo mikið beri á milli yngri kjósenda og þeirra eldri. 2 Þetta sama unga fólk setur flest skuldavandann í fyrsta sæti í þessari sömu könnun samkvæmt frétt í blaðinu í dag. Eldri kjósendur, eða heildarfjöldinn, eru sam- mála því eins og kemur fram í fyrrnefndri frétt sem er á síðu 4 í blaðinu í dag. Þetta þarf í sjálfu sér ekki að koma á óvart þar sem skuldir okkar hafa margfaldast og eru nú meira en tvö hundruð prósent af ráðstöfunartekjum okkar. 3 Umhverfismál, eða verndun umhverfisins, er næstum jafn mikilvægt mál og skuldavandinn í augum ungra kjósenda. Reyndar eru þeir eldri sammála og það verður að teljast merkilegt í ljósi þess að þegar á kjörstað er komið kjósum við Íslendingar ekki endilega með umhverfinu. Kannski er þetta skoðun sem viljum flagga en erum ekki tilbúin beinlínis í að vernda umhverfið með buddunni og látum það sjaldnast njóta vafans. 4 Verðtryggingin er okkur öllum ofarlega í huga og lenti í þriðja sæti hjá unga fólkinu af málefnum sem borin voru undir það. Allir flokkar vilja afnema verðtrygginguna þótt Samfylkingin boði það í tengslum við upptöku á nýjum gjald- miðli. Einhvern tíma hefði þetta talist með öllu óraunsætt kosn- ingaloforð en í dag er almenningur kominn með nóg. Nú viljum við vexti eins og fólk í útlöndum. Sama hvað það kostar. 5 Helmingur ungra kjósenda telur að það skipti mjög miklu máli að klára viðræður við Evrópusambandið. Unga fólkið er spenntara fyrir þessu en allir kjósendur samtals sam- kvæmt könnuninni. Það var lagt af stað í þessa vegferð en lítinn áhuga er að finna utan Samfylkingar á að klára viðræðurnar. Þess vegna skorar þetta mál ekki eins hátt og önnur meðal ungs fólks. Það telur umhverfismál og skuldamál brýnni. 6 Stjórnarskráin rekur lestina hjá ungu fólki af þeim mál-efnum sem spurt var um í könnuninni. Stjórnarskráin skorar ívið hærra hjá öllum kjósendum í heild. Á þingi er lítil samstaða um málið og allt í einu fengum við öll leið á nýrri stjórnarskrá. Vissulega eru vikulegir útifundir og ákveðinn hópur í samfélaginu sem er mjög heitur. Stjórnarskráin er aðalmál Lýðræðisvaktarinnar, nýs framboðs sem mælist varla í könnunum. Tæplega 20 þúsund nýir kjósendur: Sjóræningjar stela stjórnarskránni Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Umdeild fundarstjórn Þingmenn héldu störfum sínum áfram í dag, en samkvæmt starfs- áætlun átti að fresta þingi fyrir helgi. Þeim varð tíðrætt um fundarstjórn forseta, en tóku reyndar margir fram að forseti væri kunnur að góðri fundarstjórn og því að stýra þinginu vel. Engu að síður gerðist það hvorki meira né minna en 59 sinnum að þingmenn komu í pontu að tjá sig um fundarstjórnina. Það verður að teljast nokkuð umdeild fundarstjórn það, enda þurftu þingmenn að taka sér matarhlé áður en þeir hófu aftur störf, um fundarstjórn. Þorgerður þráspyr Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, er koma bandarískra lögreglumanna hingað til lands og afskipti ráðherra af þeim hugleikin. Hún hefur nú, á rúmum mánuði, þrisvar sinnum spurt ráðherra út í málið í óundir- búnum fyrirspurnartíma. Svörin eru alltaf þau sömu; ekkert óeðlilegt átti sér stað að mati ráðherranna. Nú er að sjá hvort tími er í enn eina fyrirspurn um málið áður en þinghaldi verður frestað. Kaldhæðnin blívur Á meðal þess sem rætt var um á þingi í gær var hvort stjórnarand- staðan beitti málþófi. Formaður Framsóknarflokksins bar af sér slíkan áburð og Össur Skarphéðinsson tók undir það: „Forseti. Ég verð bara að taka undir með háttvirtum þing- manni Sigmundi Davíð Gunnlaugs- syni. Það er ekki nokkrum manni sem kemur til hugar að hann eða stjórnarandstaðan hafi staðið í nokkru málþófi hér síðustu mánuði. Allra síst hefur þjóðinni komið það til hugar, svo það sé nú sagt.“ kolbeinn@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.