Fréttablaðið - 19.03.2013, Blaðsíða 6
19. mars 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 6
1. Hvað vill Lyfjaeftirlit ÍSÍ gera?
2. Hvaða banki er ekki byrjaður að
reikna út ofteknar greiðslur vegna
bílalána?
3. Hver vann fyrsta Formúlumót ársins?
SVÖRIN
1. Fylgjast með steranotkun á líkamsræktar-
stöðvum. 2. Landsbankinn. 3. Kimi Räikkö-
nen.
Eigum eitt mesta úrval landsins af innleggjum í skó hvort sem um er að
ræða spariskó, götuskó, íþróttaskó eða útivistarskó. Við hljótum að eiga
eitthvað sem hentar þínum fótum.
Einnig eigum við lausa hælpúða, tábergspúða og ilkýla.
Til páska bjóðum við 10% afslátt af allri söluvöru í versluninni
Einnig bjóðum við 500 kr afslátt af viðgerðum á pinnahælum
Kíktu á heimasíðuna okkar www.skovinnustofa.is og
www.facebook.com/SkovinnustofaSigurbjorns
Háaleitisbraut 68, 103
Reykjavík s. 553 3980
Comfort Viva High Performance Siesta
Fáðu þér íslenskt gott kex
með chilli- eða hvítlauksbragði.
Bættu við bragðgóðum íslenskum osti,
smá af sultu og njóttu þess.
SJÁVARÚTVEGUR Loðnuvertíðinni er að ljúka er mat
Alberts Sveinssonar, skipstjóra á Faxa RE, en skipin
eru almennt ekki að fá neinn teljandi afla á miðun-
um í Breiðafirði.
„Það gengur ekki neitt. Við köstuðum einu sinni
fyrir hádegið en fengum engan afla. Það er töluvert
af skipum hér í Breiðafirðinum en ég hef ekki haft
spurnir af því að eitthvert þeirra hafi fengið afla í
dag [í gær],“ segir Albert í viðtali á vef fyrirtækis-
ins.
Albert segir að nú verði einungis vart við loðnu
sem liggur við botninn en vonar að hún komi upp og
gefi sig þegar það líður á daginn. Sjómenn hafa ekki
frétt af því að meira af loðnu sé að koma suður með
Vestfjörðum, en vesturganga hefur haldið uppi veið-
inni síðustu daga, er mat sjómanna.
Um 5.000 tonn eru nú óveidd af loðnukvóta skipa
HB Granda á vertíðinni þannig að ef botninn er
ekki alveg dottinn úr veiðunum samsvarar það
einni veiðiferð fyrir hvert hinna fjögurra skipa
félagsins. Þrjú skipanna voru við loðnuleit í Breiða-
firði í gær. Samkvæmt aflastöðulista Fiskistofu í
gær var búið að veiða um 90% af kvótanum í gær.
Því er ekki útséð um að menn nái að veiða hann
allan. Kvótinn í ár er um 464 þúsund tonn.
- shá
Loðnuvertíðin er á síðustu metrunum og nokkuð eftir óveitt af kvótanum:
Skipin ekki að fá neitt af loðnu
FAXI Mikið þarf að hafa fyrir því að ná loðnunni þessa
dagana. MYND/HBGRANDI
AKUREYRI „Nú er sex vikna bið eftir
að fá nýjan tíma,“ segir Karólína
Stefánsdóttir, félagsráðgjafi hjá
Fjölskylduráðgjöfinni á Akureyri.
„Inn í þetta blandast svo alvarlegur
skortur á heimilislæknum svo þetta
er orðinn vítahringur. Fólk upplifir
eilífa bið eftir stuðningi.“
Stöðugildum hjá ráðgjöfinni
hefur verið fækkað úr tveimur í eitt
og hálft. Fyrir efnahagshrunið var
eftir spurnin orðin svo mikil að til
stóð að fjölga þeim í þrjú.
Karólína segir mannekluna orðna
svo mikla að ekki sé lengur hægt
að veita nýbökuðum foreldrum þá
lágmarksþjónustu sem ráðgjöf-
inni beri að veita. Forsvarsmenn
stöðvarinnar sendu velferðarráð-
herra, formanni velferðar nefndar
Alþingis og þingmönnum Norð-
austur kjördæmis bréf í febrúar
síðastliðnum þar sem skýrt var frá
erfiðri stöðu stofnunarinnar. Þá var
einnig vakin athygli á hagkvæmni
hennar, bæði í velferðar- og þjóð-
hagslegu tilliti. Ekkert svar hefur
borist frá ráðamönnum. - sv
Hvorki ráðuneytið né þingmenn svara ákalli Fjölskylduráðgjafarinnar:
Geta ekki veitt nægan stuðning
FJÖLSKYLDUR VANTAR AÐSTOÐ Svo
mikil aðsókn er í tíma hjá Fjölskylduráð-
gjöfinni á Akureyri að gefist hefur verið
upp á biðlistum og er forgangsröðun
alfarið notuð.
KÝPUR, AP Áform Kýpurstjórnar
um að leggja skatta á innistæður
í bönkum, að kröfu Evrópusam-
bandsins, hefur vakið ótta víða
meðal íbúa í aðildarríkjum sam-
bandsins.
Bæði evran og verðbréf á mörk-
uðum á evrusvæðinu lækkuðu
töluvert í verði í gær, jafnvel þótt
stærð hagkerfisins á Kýpur sé
ekki nema 0,2 prósent af saman-
lagðri stærð hagkerfa allra evru-
ríkjanna 17.
„Skaðinn er skeður,“ segir
breski fjármálaskýrandinn Louise
Cooper, sem bloggar á vefsíð-
unni coopercity.co.uk. „Evrópu-
búar vita núna að hægt er að nota
sparnað þeirra til að bjarga bönk-
unum.“
Evrópusambandið samþykkti
um helgina að útvega Kýpur-
stjórn 15,8 milljarða evra, eða ríf-
lega 2.500 milljarða króna, til að
bjarga bönkum á Kýpur frá falli.
ESB setti það skilyrði að Kýpur-
stjórn útvegaði viðbótarfjármagn
í ríkissjóðinn á móti, og féllst á að
stjórnin fengi það fé með því að
innheimta skatt af innistæðum í
kýpversku bönkunum.
Þetta er í fyrsta sinn sem ESB
tekur það í mál að seilast í vasa
viðskiptavina banka til að fjár-
magna neyðaraðstoð af þessu
tagi.
Frumvarp um málið átti að bera
undir Kýpurþing á sunnudag, en
því hefur verið frestað í tvígang.
Síðdegis í gær var stefnt á að
þingið greiddi atkvæði í dag.
Kýpurstjórn hefur notað frestinn
til að reyna að breyta skil málum
aðstoðarinnar, þannig að hægt
verði að hlífa smærri innistæðum
betur en upphaflega stóð til.
Upphaflega hugmyndin var að
leggja 6,75 prósenta skatt á þær
innistæður sem eru lægri en 100
þúsund evrur en á hærri inni-
stæður yrði skattprósentan 9,9.
Í gær var hugmyndin sú að
leggja þriggja prósenta skatt
á innistæður sem eru lægri en
100 þúsund evrur en síðan yrði
skattprósentan hækkuð upp í 15
prósent á innistæður sem eru
hærri en 500 þúsund evrur.
Talsmenn Seðlabanka Evrópu-
sambandsins segjast ekki ætla að
gera athugasemdir við það. Aðal-
atriðið sé að Kýpurstjórn takist að
útvega 5,8 milljarða evra á móti
neyðarframlagi ESB.
gudsteinn@frettabladid.is
Evrópubúar óttast
fordæmið frá Kýpur
Kýpurþing frestaði aftur afgreiðslu frumvarps um skatt á bankainnistæður. Kýpur-
stjórn hyggst gera breytingar á skattinum, þannig að lægstu innistæðum verði
frekar hlíft. Seðlabanki ESB segist ekki ætla að gera neinar athugasemdir við það.
MÓTMÆLI Á KÝPUR Almenningur hefur harðlega mótmælt áformum um skatt á
bankainnistæður. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
5,8
milljarða evra vill Evrópu-
sambandið fá frá innistæðu-
eigendum á Kýpur.
BRETLAND, AP Leiðtogar þriggja
stærstu stjórnmálaflokka Bret-
lands komust í gær að samkomu-
lagi um nýjar reglur, sem eiga að
koma í veg fyrir verstu siðferðis-
brot breskra fjölmiðla.
Samkomulagið er málamiðlun
sem þykir flókin. Ekki verða sett
ný lög heldur gefin út konungleg
tilskipun.
Fjölmiðlar hafa verið andvígir
nýrri fjölmiðlalöggjöf en vonast
er til að fjölmiðlarnir sætti sig
við þetta fyrirkomulag. - gb
Bresku flokkarnir sammála:
Nýjar fjölmiðla-
reglur taka gildi
VEISTU SVARIÐ?