Fréttablaðið - 19.03.2013, Page 18
FÓLK|HEILSA
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir | Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir,
jmh@365.is, s. 512 5473 | Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 | Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427
Pro•Staminus er nýtt og gríðarlega spenn-andi náttúrulegt efni fyrir karlmenn sem hafa einkenni góðkynja stækkunar á blöðru-
hálskirtli,“ segir Gígja Þórðardóttir, sjúkraþjálf-
ari og sölu- og markaðsfulltrúi Gengur vel ehf.
„Margir karlmenn gefa þessu ekki gaum strax en
þrengingin og þrýstingurinn sem verður á þvag-
rás af völdum stækkunar kirtilsins geta meðal
annars leitt til kraftminni þvagbunu, tíðra þvag-
láta, erfiðleika við að tæma þvagblöðru og fleira,“
segir Gígja. EFNIÐ PRÓFAÐ Á 20 ÍSLENSKUM KARLMÖNNUM
Gengur vel auglýsti eftir þátttakendum í prufuhóp
í útvarpsþættinum Heilsan heim á útvarpi Sögu
22. janúar sl. og fékk góðar undirtektir og fjöl-
margar fyrirspurnir. Í heildina prófuðu 20 karlar á
aldrinum 43-80 ára Pro•Staminus og er skemmst
frá því að segja að um það bil 70% fundu já kvæðar
breytingar. Sumir fundu mjög miklar breytingar
og aðrir minni en aðallega voru breytingarnar
fólgnar í færri klósettferðum á næturnar, sterkari
þvagbunu og betri tæmingu þvagblöðrunnar. Einn
þátttakendanna fækkaði næturferðum á klósettið
úr sex í eina og nokkrir töluðu um að fá ekki
eins oft ofursterka þvaglátstilfinningu. „Það var
frábært að kynnast þessum heiðursmönnum
og þeir voru opnir og einlægir í sínum
svörum gagnvart málefnum sem áður
fyrr var minna rætt um. Mér finnst eins
og karlmenn séu opnari að tjá sig
um heilsuna, séu meira vakandi
yfir eigin velferð og leita leiða
til að láta sér líða betur og það
er frábært,“ segir Gígja og tekur fram að það hafi
komið henni þægilega á óvart hversu margir þátt-
takendanna hefðu leitað til læknis vegna þeirra
kvilla sem þeir höfðu verið að upplifa.
TÍÐAR KLÓSETTFERÐIR TRUFLA NÆTURSVEFN
Ekkert jafnast á við góðan nætursvefn og gefur
þetta nýja efni karlmönnum góða von um bættan
svefn og ekki síður mökum þeirra sem eiga við
þetta algenga vandamál að stríða. „Það er þreyt-
andi til lengdar fyrir báða aðila þegar verið er að
brölta fram úr rúminu, jafnvel mörgum sinnum á
nóttu, til að pissa því rof á svefni hefur mikil áhrif
á hvernig við hvílumst og orka og einbeiting yfir
daginn minnkar. Það er því til mikils að vinna að
fækka næturferðum á klósettið,“ segir Gígja. Hún
tekur fram að það séu margir þættir sem karl-
menn þurfi að huga að áður en farið er að sofa,
eins og að drekka ekki mikið fyrir svefn og varast
sérstaklega koffíndrykki og áfengi en slíkt getur
aukið þvagframleiðslu.
Inntaka á Pro•Staminus er mjög einföld en það
þarf einungis tvær töflur á dag, helst með kvöld-
mat. Flestir finna mun innan mánaðar en sumir
þurfa að gefa sér um þrjá mánuði til að sann-
reyna að Pro•Staminus gagnist. „Þetta er algjör-
lega þessi virði að prófa. Einfalt í notkun, frábær
innihaldsefni og til mikils að vinna ef svefninn
batnar, klósettferðum fækkar og þvaglát verða
skil virkari,“ segir Gígja að lokum.
Pro•Staminus fæst í apótekum, heilsuhúsum og
Fjarðarkaupum Hafnarfirði.
PRO•STAMINUS LOFAR GÓÐU
FYRIR KARLMENN 50 ÁRA OG ELDRI
GENGUR VEL KYNNIR Er þvagbunan kraftlítil? Þarftu að pissa oft á nóttunni?
PRO•STAMINUS
Pro•Staminus sameinar hefðir og nýsköpun og inniheldur einstaka blöndu hörfræja,
graskersfræja og granatepla sem eru mikilvæg til að halda góðum blöðruhálskirtli
og þvaglátum út ævina. Talið er að flestir karlmenn finni fyrir einkennum góðkynja
stækkunar blöðruhálskirtils og algengast er að það gerist eftir að 50 ára aldri er
náð en kemur þó fyrir hjá yngri mönnum líka.
GÓÐ LAUSN
FYRIR KARLA
Gígja Þórðardóttir,
sjúkraþjálfari og
sölu- og markaðs-
fulltrúi Gengur vel,
segir að fyrirtækið
hafi fengið karla í
prufuhóp.
Norrænar konur eru hvattar til að taka inn D-
vítamín sem er nauðsyn-
legt líkamanum. Í nýrri
sænskri könnun kemur
í ljós að barnshafandi
konur þjást margar af D-
vítamínskorti sem eykur
hættuna á háum blóð-
þrýstingi og meðgöngu-
sykursýki. Þá er hættara á
að barnið fæðist of lítið.
85% kvennanna sem
þátt tóku í rannsókninni
höfðu of lítið D-vítamín í
kroppnum og 28% þjáðust
af vítamínskorti. Það þykir
mikið áhyggjuefni. Margar
þessara kvenna voru
langt gengnar á meðgöngu
en voru undir eðlilegri
þyngd. Talið er að heilsu-
átak og offituumræða sé
orsakavaldur. Konur eru
hræddar við að þyngjast
of mikið á meðgöngu.
Konurnar voru spurðar um matarvenjur og hversu mikið þær væru
úti undir beru lofti. Ófrískar konur og konur með barn á brjósti
þurfa að taka heldur meira en aðrir af D-vítamíni.
Lax og aðrar feitar fisktegundir eru D-vítamínríkar. Einnig er konum
bent á að taka inn lýsi.
OF LÉTTAR Samkvæmt sænskri könnun eru
margar ófrískar konur of léttar og þjást af D-
vítamínsskorti.
D-VÍTAMÍN FYRIR
ÓFRÍSKAR KONUR
■ ÖFGAR?
Ný bandarísk bók sem fjallar um hvernig
megi halda sér grönnum hefur slegið í
gegn hjá stjörnunum. Bókin heitir Honestly
Healthy og í henni birtast uppskriftir sem
hafa fallið Victoriu Beckham, Gwyneth
Paltrow og Jennifer Aniston vel. Bókin
leggur áherslu á svokallaða basíska fæðu
en hún bannar hveiti, sykur, te, mjólkur-
vörur, skelfisk, pasta, baunir, kjöt,
fisk, kaffi, gosdrykki, áfengi og fleira.
Flestum þætti þetta helst til öfgafullt
en helst á að borða grænmeti og ávexti.
Höfundar bókarinnar segja að með því
að fylgja mataræði hennar sé hægt að
forðast marga hættulega sjúkdóma.
VEKUR ATHYGLI HJÁ STJÖRNUNUM
Fæst í apótekum, heilsubúðum
og stórmörkuðum
www.gengurvel.is
BELLAVISTA náttúrulegt
efni fyrir augun, ríkt af
lúteini og bláberjum
AUGNÞURRKUR