Fréttablaðið - 16.05.2013, Page 16
16. maí 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 16
ÚKRAÍNA Á meðan Viktor Janúkovitsj, forseti Úkraínu, hélt ræðu í úkraínska
þinginu í gær mótmæltu stjórnarandstöðuþingmenn. Þeir hrópuðu slagorðið „Frelsi
handa Júlíu!“ og héldu á loft flaggi með mynd af Júlíu Tímosjenkó, fyrrverandi
forsætis ráðherra landsins, sem situr í fangelsi. NORDICPHOTOS/AFP
NOREGUR Lögreglumaður notaði sprengjuleitarvélmenni til að kanna innihald
tösku sem skilin var eftir við opinbera byggingu í Ósló í Noregi í gær. NORDICPHOTOS/AFP
HOLLAND Vilhjálmur Alexander, konungur Hollands, og
Jeanine Hennis-Plasschaert, varnarmálaráðherra landsins,
stinga saman nefjum við opnun varnarmálaráðuneytisins eftir
endurbætur í gær. NORDICPHOTOS/AFP
PALESTÍNA Palestínskur unglingur á flótta frá gröfu Ísraelshers í átökum sem út brutust í gær milli Palestínumanna og
ísraelskra hermanna fyrir utan Ofer-fangelsið á Vesturbakkanum nærri Ramallah. Átökin brutust út eftir göngu til minningar um
„Dag hamfaranna“ (Nakba) fyrir 65 árum þegar Ísraelsríki var stofnað árið 1948. NORDICPHOTOS/AFP
SVÍÞJÓÐ Höfnin í Stokkhólmi þykir með þeim fallegustu í heimi. Hin 92 metra
langa snekkja Mayan Queen liggur þar við bryggju. NORDICPHOTOS/APP
BANGLADESS Gervihnattamynd af fellibylnum Mahasen
í gær þar sem hann stefndi í norðurátt til Bangladess og
Mjanmar. Hundruðum þúsunda í löndunum var gert að rýma
strandhéruð af ótta við flóð og veðurofsa. NORDICPHOTOS/AFP
ÁSTAND
HEIMSINS
VIÐ VEITUM ÍSLENSKU AFREKSFÓLKI VILJASTYRK
VIGNIR SVERRISSON
ÞRÍÞRAUT
viljastyrkur.is
1
1
4
4
2
2
5
5
3
3
6
6