Fréttablaðið - 31.05.2013, Síða 2
31. maí 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 2
Það er slæmur
ávani að skjóta fyrst.
Það er umræðuhefð
sem ætti að heyra
sögunni til.
Ármann Kr. Ólafsson
bæjarstjóri Kópavogs
DÓMSMÁL Óvissa ríkir um afdrif
þúsunda skammtímalána að verð-
mæti milljarða króna eftir dóm
Hæstaréttar í gær, skv. áliti lög-
manns. Dómurinn kvað á um að
óheimilt sé að reikna seðlabanka-
vexti afturvirkt á skammtímalán,
þar á meðal bílalán, eftir að gengis-
tryggð lán voru dæmd ólögleg árið
2010.
Málið í gær fjallaði um 7 ára
lánasamning upp á 5 milljónir
króna sem SP fjármögnun, sem nú
er hluti af Landsbankanum, gerði
við Plastiðjuna um kaup á bifreið.
Einar Hugi Bjarnason, lögmaður
Plastiðjunnar, telur ljóst að for-
dæmisgildi málsins sé mikið.
„Það tekur bæði til þúsunda lána-
samninga og til fjármálafyrirtækj-
anna í heild sinni. Hér var ekki
fjallað um lánsformið sem slíkt,
svo málið hefur afar víðtæka skír-
skotun. Þeir fjárhagslegu hagsmun-
ir sem hér er um að tefla hlaupa á
milljörðum króna.“ Einar Hugi
hvetur fólk til að kanna réttarstöðu
sína.
„Auðvitað ætti ekkert að vera því
til fyrirstöðu að fjármálafyrirtæk-
in hefjist handa við að endurreikna
þessi skammtímalán.“
Kristján Kristjánsson, upplýs-
ingafulltrúi Landsbankans, sagði
að nú væri verið að skoða afleið-
ingar dómsins. „Við þurfum að
gera þetta mjög vandlega því það
er mikið undir í þessu máli fyrir
okkur og mikilvægt að við vönd-
um okkur við úrlausn þess,“ sagði
Kristján. Hann vonast til þess að
málin skýrist frekar í dag. - þj, khn
Hæstiréttur segir að óheimilt sé að reikna seðlabankavexti á skammtímalán:
Óvissa ríkir um gengislán upp á milljarða
ÓVISSA UM ENDURÚTREIKNINGA
Dómur Hæstaréttar hefur mikið for-
dæmisgildi
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Samfélagsmál Í nýrri skýrslu
Félagsvísindastofnunar um ofbeldi
gegn fötluðum konum, sem unnin
var fyrir velferðarráðuneytið, lýsa
fatlaðar konur skelfilegu ofbeldi
sem þær hafa orðið fyrir á lífsleið-
inni. Markmið rannsóknarinnar
var að gera grein fyrir eðli ofbeld-
is gegn fötluðum konum, kanna við
hvers konar aðstæður ofbeldið á sér
stað og hvaða afleiðingar það hefur
fyrir fatlaðar konur að hafa verið
beittar ofbeldi.
Skýrslan byggir á viðtölum við
þrettán fatlaðar konur sem höfðu
reynslu af margháttuðu ofbeldi í
æsku og á fullorðinsárum. Fram
komu sögur af líkamlegu og kyn-
ferðislegu ofbeldi af hendi fólks
sem stóð þeim nærri og einnig var
því lýst hvernig vinnulag á heimil-
um fyrir fatlað fólk vó að sjálfræði
þeirra. Í skýrslunni kemur fram
að félagsleg einangrun og skert
kynvitund eru á meðal afleiðinga
þessa ofbeldis. Þá segir jafnframt
að ofbeldinu hafi verið viðhaldið
með þöggun.
Ásdís Aðalbjörg Arnalds, félags-
fræðingur og skýrsluhöfundur,
segir að margar konurnar hafi
kallað eftir aukinni kynfræðslu.
„Ásamt fræðslu um það hvað ein-
kennir heilbrigt parasamband og
úrræði til að takast á við það þegar
annar aðilinn er orðinn það ráðandi
að um valdbeitingu er að ræða.“
Ásdís hvetur til vitundarvakning-
ar í þessum efnum.
„Enn fremur kom í ljós að þess-
ar konur fengu ekki stuðning frá
umhverfi sínu til að takast á við
þetta ofbeldi. Umhverfið virðist
hafa verið frekar afskiptalaust í
þessu málum,“ segir Ásdís.
- hó, khn
Ný skýrsla Félagsvísindastofnunar um ofbeldi gegn fötluðum konum:
Segja frá margháttuðu ofbeldi
OFBELDI Í nýrri skýrslu Félagsvísinda-
stofnunar segja þrettán fatlaðar konur
frá margs konar ofbeldi sem þær hafa
orðið fyrir á lífsleiðinni.
SPURNING DAGSINS
Ísólfur, étið þið ekki bara allt
of mikið?
„Við borðum alveg passlega mikið,
enda með frábært fyrirtæki eins
og Sláturfélag Suðurlands og ekki
hægt að komast hjá því að borða
þær gæðavörur sem þeir framleiða.“
Sveitarstjórnamenn í Rangárþingi eystra
vilja fá lágvöruverðsverslanir á Hvolsvöll svo
lækka megi matarreikning heimamanna.
60 ára og eldri
Aukinn styrkur, betra jafnvægi
og frábær félagsskapur
Hefst 5. júní (4 vikur)
Mán. og mið. kl. 11:00
eða 15:00
Verð kr. 9.900
KÓPAVOGUR „Það er afar slæmt að
bæjarfulltrúinn skuli dylgja með
þeim hætti sem gert hefur verið
án þess að mál séu upplýst,“ segir
meirihlutinn í bæjarráði Kópa-
vogs og vísar til ummæla Guðríð-
ar Arnardóttur, oddvita Samfylk-
ingarinnar.
Meirihlutinn
sagði í bókun
í bæjarráði í
gær að Guð-
ríður hefði með
u m m ælu m í
Fréttablaðinu á
mánudag látið
að því liggja
að starfsmenn
Kópavogsbæjar
hefðu vísvitandi
brotið af sér í
starfi með því að
hafa komið pen-
ingum í „skjól“
frá réttmæt-
um eigendum
þeirra. Var þar
vísað til þess að
Kópavogsbær
greiddi upp í
desember 30 milljónir króna fyrir
fram af skuldabréfum vegna eign-
arnáms bæjarins á Vatnsenda-
landinu. Guðríður sagði að vegna
óljóss eignarhalds á Vatnsenda í
kjölfar dómsmála væru pening-
arnir ekki að ganga til réttmætra
eigenda.
Í svari fjármálastjóra bæjarins
segir að fyrirspurn Guðríðar hafi
verið byggð á misskilningi.
„Með uppgreiðslu á skuldabréf-
unum var ekki verið að greiða
fyrir jarðarkaup eða eignarnám
heldur að lækka skuldir bæjar-
Sökuð um dylgjur um
Vatnsendaskuldabréf
Fjármálastjóri Kópavogs segir misskilning að umdeild uppgreiðsla skuldabréfa
tengist eignarnámi á Vatnsenda. Meirihlutinn sakar Guðríði Arnardóttur um
ærumeiðingar. Hún ráðleggur bæjarstjóranum að endurskoða starfshætti sína.
FRÉTTABLAÐIÐ Á MÁNUDAG
Ummæli oddvita Samfylkingar-
innar í bæjarstjórn Kópavogs
um uppgreiðslu skuldabréfa
sem gefin voru út í tengslum
við eignarnám á Vatnsenda
vekja hörð viðbrögð.
GUÐRÍÐUR
ARNARDÓTTIR
ÁRMANN KR.
ÓLAFSSON
ins,“ útskýrir fjármálastjórinn.
„Eðli máls samkvæmt“ hafi fjár-
málastjórinn einn ákveðið upp-
greiðsluna án þess að hún væri
kynnt bæjarstjóra sérstaklega.
„Það er slæmur ávani að
skjóta fyrst og spyrja svo. Það er
umræðuhefð sem ætti að heyra
sögunni til. Í ljósi ærumeiðandi
aðdróttana hefur endurskoðend-
um bæjarins verið falið að gera
úttekt sem er ætlað að varpa
skýru ljósi á málsatvik,“ bókuðu
Rannveig Ásgeirsdóttir, Ármann
Kr. Ólafsson, Ómar Stefánsson,
bæjarfulltrúar meirihlutans.
Guðríður Arnardóttir bókaði
þá að hefði bæjarstjóra ekki verið
kunnugt um uppgreiðslu láns upp
á 30 milljónir fram í tímann sem
tengist umdeildu eignarnámi á
Vatnsenda ætti hann endurskoða
starfshætti sína.
„Það er ljóst að hér hafa verið
gerð mistök, þegar umrætt skulda-
bréf var greitt upp þótt síðustu
greiðslur væru ekki komnar á
gjalddaga. Þessu til stuðnings er
bent á erindi skiptastjóra dánarbús
Sigurðar Hjaltested frá 21. maí þar
sem þess er krafist að Kópavogur
felli niður allar greiðslur til þing-
lýsts eiganda Vatnsenda á meðan
dánarbúið er undir skiptum og
skorið hefur verið úr um afdrif
eignarréttar jarðarinnar,“ bókaði
Guðríður Arnardóttir.
gar@frettabladid.is
STJÓRNSÝSLA „Ég vil þetta allt upp á borðið,“ segir Guðríður Arnar-dóttir, oddviti Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Kópavogs, um upp-greiðslu bæjarsjóðs á skuldabréf-um sem gefin voru út í tengslum við eignarnám á hluta Vatnsenda-landsins.
Guðríður, ásamt Hjálmari Hjálmarssyni, bæjarfulltrúa Næst besta flokksins, óskaði í bæjar-ráði eftir svari við því hvers vegna Kópa-vogsbær hafi í desember síð-astliðnum greitt upp skuldabréf vegna eignar-námsins þótt afborgarnir
væru ekki komn-ar á gjalddaga. Annað bréfið hafi ekki átt að borgast endan-lega upp fyrr en árið 2015.
„Þessi gjörn-i ng ur vek ur athygli þar sem Héraðsdóm-
ur Reykjaness komst að þeirri n iðurstöðu í nóvember 2012 að ábúandi á Vatns-enda væri ekki réttur eigandi jarð-arinnar,“ segir í fyrirspurn Guð-ríðar og Hjálmars. Hæstiréttur staðfesti síðar dóminn um að ábú-andinn, Þorsteinn Hjaltested, væri ekki eigandi Vatnsenda heldur dánarbú afa hans, Sigurðar Hjalte-sted.
Um var að ræða uppgreiðslur á
tveimur skuldabréfum sem gefin voru út 1998 og 2000 til fimmtán ára, samtals hátt í 300 milljónir króna. Bærinn greiddi 75 milljón-ir í desember. Guðríður segir að þar af hafi 30 milljónir ekki verið komnar á gjalddaga.„Þetta lán var á miklu hærri vöxtum en við erum annars að greiða. Það er einfaldlega hluti af fjárstýringu bæjarins að greiða upp slík lán,“ útskýrir Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri. Bréfin hafi borið 6 prósent verðtryggða vexti en bænum bjóðist nú 3 pró-sent vextir. Svar frá fjármála-stjóra bæjarins verði lagt fram á næsta fundi bæjarráðs.„Undirrituð furðar sig á því að þegar eignarhald á Vatnsenda er óljóst skuli hafa verið tekin ákvörðun um að greiða upp eftir-stöðvar af umræddum skuldabréf-um og þannig komið í veg fyrir að
réttmætir eigendur jarðarinnar fái þó þær greiðslur sem enn á eftir að inna af hendi vegna fyrri eignarnáma,“ segir í fyrirspurn-inni.
„Ég vil fá skýringar á því hver tekur þessa ákvörðun, af hverju og hvers vegna hún er ekki lögð fyrir bæjarráð,“ segir Guðríður. „Ef þessi ákvörðun hefði ekki verið tekin væru enn útistandandi 30 milljónir af þessu bréfi og menn hefðu getað tekist á um hvort þær ættu að renna inn í dánarbúið. Nú virðist eiginlega búið að koma þessum peningum í skjól.“
gar@frettabladid.is
Réttir eigendur taldir missa af VatnsendaféKópavogsbær greiddi fyrir fram 30 milljóna króna afborgun vegna eignarnáms á Vatnsenda þrátt fyrir dóm sem kollvarpaði eignarhaldi Þorsteins Hjaltesteds á jörð-inni. Komið í veg fyrir að réttmætir eigendur fái þá greiðslu telja bæjarfulltrúar.
VATNSENDI Á meðan afkomendur Sigurðar Hjaltested takast á um eignarhaldið á
Vatnsenda heldur Kópavogsbær áfram að gera upp greiðslur til ábúandans í sam-
ræmi við samkomulag þar um.
GUÐRÍÐUR
ARNARDÓTTIR
ÁRMANN KR. ÓLAFSSON
Það er einfaldlega hluti af fjárstýringu bæjar-ins að greiða upp slík lán.
Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri í Kópavogi.
Þjóðgarðsvörður kærir norskan kafara sem bjargað var f á dÁk ði í
.
r til
ar
u.
u við
am-
.
í
um.
þeb
gildi:
um
BLAÐIÐ/AP
þeb veður gæti verið í kortunum.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
gg r, vanir glæpamenn og unglingar“ hafi tekið þátt í skemmdarverkunum. - þeb
RÚSSLAND, AP Maður sem var drepinn í yfirheyrslu um tengsl sín við
sprengjuárásirnar í Boston-maraþoninu var „tekinn af lífi“. Þetta
sagði faðir mannsins við fjölmiðlamenn í Rússlandi í gær.
Maðurinn sem var drepinn í síðustu viku hét Ibragim Todashev.
Þrír lögreglumenn yfirheyrðu hann á heimili hans vegna tengsla hans
við Tamerlan Tsarnaev, annan sprengjumanninn. Lögreglumennirnir
sögðu að maðurinn hefði ráðist á einn þeirra með hnífi og því hefðu
þeir þurft að skjóta hann. Tveir þeirra sögðu þó síðar að þeir væru
ekki vissir um hvað hefði átt sér stað. Faðir Todashev segir að sonur
hans hafi verið óvopnaður. - þeb
Faðir manns sem var drepinn af lögreglumönnum:
Sonurinn var „tekinn af lífi“
ABDUL-BAKI TODASHEV Faðirinn sýndi fjölda mynda af líki sonar síns. Hann segir
ómögulegt að sonurinn hafi tekið þátt í að skipuleggja ódæðin í Boston.
NORDICPHOTOS/AFP
DÓMSMÁL Hæstiréttur staðfesti í
gær úrskurð Héraðsdóms Vestur-
lands um að rúmlega áttræður
bóndi af Snæfellsnesi, sem grun-
aður er um að hafa níðst kynferð-
islega á þroskaskertri stjúpdóttur
sinni í fjóra áratugi, skuli sæta
nálgunarbanni.
Manninum var sleppt úr gæslu-
varðhaldi í byrjun apríl en rann-
sókn lögreglu stendur enn yfir.
Í úrskurði Hæstaréttar segir að
manninum sé bannað að nálgast
konuna eða setja sig í samband við
hana með nokkrum hætti.
Bannið gildir á meðan rannsókn
lögreglu stendur yfir en þó ekki
lengur en sex mánuði. - hó
Grunaður um kynferðisníð:
Bóndi settur í
nálgunarbann
PÓLLAND Hægt er að kaupa
nýfætt barn fyrir jafngildi tæp-
lega 80 þúsunda íslenskra króna í
Póllandi með afborgunum. Í frétt
Kristilega dagblaðsins í Dan-
mörku segir að pólska tímaritið
Newsweek hafi haft samband við
marga sem bjóða börn til sölu á
netinu.
Í sumum tilfellum er ekki verið
að leyna sölunni en í öðrum aug-
lýsa mæður eftir vel stæðum for-
eldrum sem vilja ættleiða barn.
Fullyrt er að mæðurnar vilji í
raun selja börnin.
Samkvæmt pólskum lögum er
ekki refsivert að kaupa barn í
þeim tilgangi að ala það upp. - ibs
Lögleg viðskipti í Póllandi:
Nýfædd börn
til sölu á netinu