Fréttablaðið - 31.05.2013, Blaðsíða 22
31. maí 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 22
SJÓNVARP Fjallað er um Lag-
arfljótsorminn og Þingvalla-
urriðann í lokaþætti hinnar vin-
sælu þáttaseríu River Monsters
á sjónvarpsstöðinni Animal
Planet.
Jeremy Wade og aðstoðar-
menn hans í Rivers Monsters
komu til Íslands í júlí í fyrra. Í
sama þætti leitar Wade að Loch
Ness-skrímslinu í Skotlandi og
tekur einnig hús á Norðmönn-
um.
Fyrir austan naut Wade
aðstoðar Skúla Björns Gunn-
arssonar, forstöðumanns Skriðu-
klausturs, sem segir Wade hafa
reynt að veiða Lagarfljótsorm-
inn á stöng. Það hafi ekki tekist.
„En hann var greinilega búinn
að kynnast ýmsu úr djúpunum,“
segir Skúli.
Áhugi á Lagarfljótsorminum
snarjókst eftir frægt mynd-
band bóndans Hjartar Kjerúlfs.
Þar sjást torkennileg fyrirbæri
hreyfast í fljótinu.
Myndskeið Hjartar, sem Wade
spjallaði einmitt við, var skoðað
um fimm milljón sinnum á You-
tube. Að sögn Óðins Gunnars
Óðinssonar, menningarfulltrúa
Fljótsdalshéraðs, komu tvær
bandarískar sjónvarpsstöðvar
hingað í kjölfarið og fjallað var
um Orminn á rússneskri sjón-
Animal Planet vildi veiða
Lagarfljótsorminn á stöng
Ísland fær mikla landkynningu í lokaþætti River Monsters á Animal Planet þar sem rennt er fyrir Loch Ness-
skrímslið og Lagarfljótsorminn. Þáttagerðarmennirnir urðu algerlega kjaftstopp yfir tærleika Þingvallavatns.
JEREMY WADE OG JÓHANNES STURLAUGSSON Urriðinn í Þingvallavatni leitar í
djúpið í lok júlí og var ekki til viðtals um stangveiði. River Monster-gengið skoðaði í
staðinn þessa tignarlegu fiska með aðstoð Jóhannesar Sturlaugssonar fiskifræðings.
MYND/LAXFISKAR EHF.
ÚR MYNDBANDI HJARTAR KJERÚLFS.
varpsstöð.
Björn Ingimarsson, bæjar-
stjóri Fljótsdalshéraðs, er ekki
undrandi á því að Lagarfljót-
sormurinn sé ófundinn.
„Þetta er sniðug skepna sem
hefur vit á að sýna sig ekki
nema þegar henni hentar,“ segir
Björn, sem aðspurður kveður
aðeins suma erlenda ferðamenn
vita af hinum dularfulla Ormi.
„Kannski hafa menn ekki
verið nógu duglegir að vekja
athygli á sögunni og það er ein-
mitt það sem verið er að vinna
með núna,“ upplýsir Björn. „Það
verður lögð áhersla á tilvist
Ormsins og ævintýrinu í kring
um hann.“
Wade og félagar komu við á
urrriðaslóðum í Þingvallavatni.
Þar nutu þeir aðstoðar Jóhann-
esar Sturlaugssonar fiskifræð-
ings, sem kom þeim í samband
við urriða af stærri gerðinni, þó
að þeir alstærstu hafi ekki fund-
ist, enda þátturinn tekinn upp í
júlílok þegar hvað erfiðast er að
nálgast urriðana.
„Þegar við sigldum á vatn-
inu voru þeir andaktugir yfir
tærleika þess. Þeir voru eigin-
lega algerlega kjaftstopp,“ segir
Jóhannes, sem telur sýninguna á
Animal Planet óhemju dýrmæta
landkynningu.
gar@frettabladid.is
DANMÖRK 44 ára gamall maður
frá Vejle í Danmörku hefur verið
dæmdur í sextíu daga skilorðs-
bundið fangelsi fyrir að hafa lýst
yfir stuðningi við fjöldamorðingj-
ann Anders Breivik.
Hann var einnig dæmdur fyrir
að sýna fölsuð skilríki sem virtust
sýna fram á að hann hefði tekið
þátt í ódæðunum í Útey sumar-
ið 2011 með Breivik. Um kvöldið
eftir hryðjuverkaárásina sendi
maðurinn smáskilaboð úr tölvu
sinni með stuðningsyfirlýsingu.
Hann reyndi einnig að láta líta út
fyrir að skilaboðin hefðu verið
send rétt upp úr hádegi daginn
sem ódæðið var framið. Það er að
segja rétt áður en Breivik lét til
skarar skríða.
Maðurinn var líka dæmdur
fyrir brot á vopnalöggjöf. Lög-
reglan fann mynd á Facebook-síðu
hans þar sem hann birtist með
riffil eins og danski herinn notar.
Dómurinn var kveðinn upp í Kold-
ing í Danmörku. -jhh
Studdi ódæði í smsi:
Dæmdur fyrir
stuðning við
ódæði Breiviks
ANDERS BEHRING BREIVIK Var
dæmdur í 21 árs fangelsi fyrir ódæðin í
Útey og hryðjuverk í Ósló sumarið 2011
en alls létust 77 manns í þeim.
Þetta er sniðug skepna
sem hefur vit á að sýna
sig ekki nema þegar henni
hentar.“
Björn Ingmarsson
bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs.