Fréttablaðið - 31.05.2013, Blaðsíða 92

Fréttablaðið - 31.05.2013, Blaðsíða 92
31. maí 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 56 BAKÞANKAR Magnúsar Þorláks Lúðvíkssonar Þetta er ekki rétt, þú hefur ekki hugs-að mjög vandlega um þetta,“ hugsaði ég með mér á dögunum þegar félagi minn lýsti ákveðinni afstöðu í rökræðum okkar á milli. Ég var viss um að ég hefði hann því ég las einu sinni bók þar sem var sett fram mjög sterk röksemdafærsla (hún í það minnsta sannfærði mig) um það af hverju afstaða félaga míns var röng. Ég leyfði honum að klára en hóf síðan af mikilli sannfæringu að útskýra af hverju hann hefði rangt fyrir sér. Ég var rétt byrjað- ur þegar ég fraus enda mundi ég ekkert hvað stóð í helvítis bókinni. EINS og dagur fylgir nótt þá er hver lesandi dæmdur til þess að gleyma með tíð og tíma megninu af því sem hann les. Í tilfelli skáldsagna er það plottið og svo kannski tvær til þrjár sterkustu mynd- irnar sem vara í minninu. Í til- felli fræðibóka eru það einstaka áhugaverðar hugmyndir, eftir- minnilegustu anekdóturnar og svo oft niðurstöðurnar sem verða eftir. Yfirleitt ekki nóg til þess að hægt sé að endursegja hugmyndirnar í bókinni af nákvæmni nema rétt eftir lestur. ÞETTA skapar vandamál. Ekki bara get- urðu komið út eins og fífl í rökræðum heldur verða kokkteilboð félagsleg jarð- sprengjusvæði. Þú lendir á spjalli við ókunnugan menningarvita við mini-pyls- urnar og fyrr en varir er hann byrjaður að tala um Hundrað ára einsemd. Þú verandi hégómlegur getur ekki stillt þig um að minnast á að þú hafir líka lesið skáldsög- una. Menningarvitinn brosir, enda ekki á hverjum degi sem hann fær tækifæri til að ræða kólumbískt töfraraunsæi, og spyr hvað þér hafi fundist um persónusköpunina í bókinni. „Hún var mjög … iiih … forvitni- leg,“ svararðu enda búinn að gleyma svo til öllu sem fór fram í bókinni fimm og hálfu ári eftir lestur. SÍÐASTA áratuginn hef ég lesið kannski 150 bækur samanlagt. Ég er hins vegar efins um að ég gæti haldið uppi vitrænum samræðum um helminginn af þeim. Af hverju er maður þá að þessu? Er lausn- in kannski sú að lesa færri bækur en lesa hverja bók oft? Ætti maður kannski bara að sætta sig við minnisleysið og njóta lest- ursins, líta raunsætt á töfraraunsæið? Mér finnst reyndar eins og ég hafi lesið svörin við þessum spurningum einhvern tímann en ég bara man þau ekki alveg lengur. Raunsætt um töfraraunsæi 21 Fyrsta plata Rage Against the Machine kom út fyrir 21 ári, eða árið 1992. ERNEST OG CELESTÍNA (4) 18:00 KARATE STRÁKURINN (L) 20:00 ÍSLENSKAR STUTTMYNDIR (L) 18:00 WADJDA (11) 20:00 SIGHTSEERS (16) 18:00, 20:00, 22:30 JAGTEN (12) 22:00 DÁVALDURINN (16) 22:00 ERNEST OG CELESTÍNAS I G H T S E E R S KARATE STRÁKURINN WADJDA MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas NEMAR, ÖRYRKJAR, ELDRI BORGARAR: 25% AFSLÁTTUR GEGN FRAMVÍSUN SKÍRTEINIS! BÍÓ PARADÍS KLÚBBURINN: bioparadis.is/klubburinn EPIC 3D 3.40 EPIC 2D 4 HANGOVER lll 5.50, 8, 10.10 FAST & FURIOUS 7, 8, 10, 10.40 THE CROODS 3D 3.40 OBLIVION 5.30 Tilboð í bíó. Gildir á allar sýningar merktar með rauðu. EIN STÆRSTA SPENNUMYND SUMARSINSVINSÆLASTI GRÍN- ÞRÍLEIKUR ALLRA TÍMA! T.K. - Kvikmyndir.is New York Daily News H.V.A. - FBL T.V. - BíóvefurinnH.K. - Monitor 5% ÞRIÐJUDAGSTILBOÐIN GILDA EKKI Í BORGARBÍÓ SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5% ALL ROADS LEAD TO THIS EIN STÆRSTA SPENNUMYND SUMARSINS! MISSIÐ EKKI AF ÞESSARI STÓRKOSTLEGU TEIKNIMYND FRÁ HÖFUNDUM ICE AGE 5% BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS EPIC 2D ÍSL.TAL KL. 3.30 - 5.45 L EPIC 3D ÍSL.TAL KL. 3.30 - 5.45 L EPIC 3D ENSKT TAL ÓTEXTAÐ KL. 5.45 - 8 L FAST & FURIOUS 6 KL. 5 - 8 - 10.45 12 FAST & FURIOUS 6 LÚXUS KL. 5 - 8 - 10.45 12 STAR TREK 3D KL. 8 - 10.45 12 STAR TREK KL. 8 - 10.45 12 EVIL DEAD KL. 10.15 18 THE CROODS 2D ÍSL.TAL KL. 3.30 L EPIC 3D ÍSL.TAL KL. 5.45 L FAST & FURIOUS 6 KL. 6 - 9 12 THE GREAT GATSBY 3D ÓTEXTAÐ KL. 9 12 THE GREAT GATSBY KL. 6 - 9 12 PLACE BEYOND THE PINES KL. 6 - 9 12 EPIC 3D KL. 6 / EPIC 2D KL. 6 L FAST & THE FURIOUS 6 KL. 8 - 10.20 12 OBLIVION KL. 8 16 MAMA KL. 10.20 16 EGILSHÖLLÁLFABAKKA KRINGLUNNI KEFLAVÍK AKUREYRI MERKTAR MEÐ GRÆNU OG APPELSÍNUGULU Í BÍÓAUGLÝSINGUM SAMBÍÓA KR. 1000 Á GRÆNT OG KR. 750 Á APPELSÍNUGULT SPARBÍÓ EMPIRE FILM T.V. - BÍÓVEFURINN THE GUARDIAN H.K. - MONITOR T.V. - BÍÓVEFURINN NEW YORK DAILY NEWS Tónleikar til heiðurs Rage Against The Machine verða haldnir á Græna Hattinum á Akureyri í kvöld. Á laug- ardaginn verða þeir svo í Reykjavík á Gamla Gauknum. Einnig verða ókeyp- is tónleikar í Tónabúðinni á Akureyri klukkan 17 í dag. 21 ár er liðið síðan fyrsta plata sveit- arinnar kom út og setti hún mark sitt á rokksöguna með pólitísku rappi og rokki. Þessir heiðurstónleikar voru frum- fluttir 18. janúar fyrir fullu húsi. Í hljómsveitinni eru Egill „Tiny“ Thor- arensen, Franz Gunnarsson, Arnar Gíslason og Guðni Finnsson. „Maður er búinn að vera með þessi lög í blóðinu frá fyrstu plötu. Tiny ólst upp við þetta líka. Þetta var það fyrsta sem hann gleypti við þegar hann byrjaði að rappa,“ segir Franz. Hann segir tónleikana mjög krefjandi fyrir hann sem gítarleikara, enda er Tom Morello úr Rage Against the Machine mikill töframað- ur. „Hann er ekki þessi hefð- bundni gítarleikari. Þegar allir voru að herma eftir Van Halen og Stevie Vai var hann frekar að stúdera plötu- snúða,“ segir Franz, sem nýtur aðstoð- ar Whammy-pedala á tónleikunum. „Með því undratæki nær maður þessu sándi sem hann hefur búið til.“ -fb Undratæki á Rage-tónleikum Tónleikar til heiðurs Rage Against the Machine á föstudag og laugardag. TIL HEIÐURS RAGE Egill „Tiny“ Thorarensen bregður sér í hlutverk söngvarans Zack de la Rocha á tónleikunum. F Rif er að undirbúa sína fyrstu plötu sem ætti að koma út snemma á næsta ári. Lagið Sól í sinni er nýjasta afurðin frá hljómsveitinni og hefur það hljómað á Rás 2 síðustu vikur. Rif hefur verið starfandi í rúmlega ár. Hún spratt upp úr endurkomu hljómsveitarinnar Náttfari sem gaf út plötuna Töf árið 2011. Andri Ásgrímsson gítarleik- ari og Haraldur Þorsteinsson bassaleikari skipa Rif ásamt góðum gestum eins og Arnari og Nóa úr Leaves og söngkon- unni Bryndísi Helgadóttur. Tónlistin er þjóðlagaskotið popp/rokk með íslenskum text- um eftir Andra og Harald sem og Stein Steinarr og fleiri. Rif undirbýr fyrstu plötuna Fyrsta plata Rif kemur út snemma á næsta ári ANDRI ÁSGRÍMSSON Andri og félagar í hljómsveitinni rif undirbúa nýja plötu. Hönnunarteymið Dolce og Gabb- ana eyðir nú tímanum fyrir rétti í Mílanó. Þeir Stefano Gabbana og Domenico Dolce eru ákærðir fyrir skattsvik og krefst saksókn- ari tveggja og hálfs árs fangelsis. Mun fyrirtækið hafa sleppt því að gefa upp um 15 milljarða íslenskra króna til skatts síðan árið 2004 en þeir neita allri sök. Dómur í mál- inu er væntanlegur síðar í sumar. Dolce og Gabbana gáfu út sína fyrstu kvenfatalínu árið 1985 og síðan þá hafa þeir byggt upp tísku- veldi sem er eftirsótt út um allan heim. Kærðir fyrir skattsvik NEITA Dolce og Gabbana ásamt Katy Perry. NORDICPHOTOS/AFP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.