Fréttablaðið - 31.05.2013, Side 50
FRÉTTABLAÐIÐ Dásamlegir djúsar. Fríða María Harðardóttir. Förðun og flottheit. Spjörunum úr og matur.
6 • LÍFIÐ 31. MAÍ 2013
UNGFRÚ DETOX (267 kcal)
4 g prótein, 68 g kolvetni, 0,96 g
fita
Mjög frískandi og góður detox-
drykkur sem kemur kerfinu af
stað eftir mikið sukk.
1 sítróna
1 appelsína
80 g frosinn mangó (2 dl)
1 banani
1 tsk. akasíuhunang eða önnur
sæta, t.d. 2 döðlur eða agave
Örlítið af cayenne-pipar
Örlítið af rifnu fersku engifer
Grænt te. Ég nota extrakt-duft í
1 g pokum en það er líka hægt að
sjóða vatn, setja tepoka í og kæla
síðan.
Vatn eftir þörfum, alls ekki ís-
kalt.
Allt sett saman í blandarann og
blandað vel.
Sítrónur eru algjör ofurfæða.
Þær eru stútfullar af C-vítamíni
auk þess sem þær innihalda A-
vítamín, bíóflavóníða, níasín og
þíamín. Sítrónur innihalda meira
kalíum en epli og vínber. Kalíum
er t.d. mjög gott fyrir hjartað.
Sítrónur geta hjálpað til við alls
konar vandamál en þrátt fyrir að
vera súr ávöxtur gera þær lík-
amann basískan og eru því t.d.
mjög hollar fyrir meltingarfærin,
magann og blóðið. Þær eru einn-
ig bakteríudrepandi og brennslu-
aukandi, en C- vítamínið eykur
framleiðslu líkamans á karnit-
íni, sem er amínósýra sem eykur
fitubrennslu. Sítrónur eiga að
geta komið í veg fyrir gallsteina-
myndun. Flestir gallsteinar
myndast vegna þess að of mikið
af kólesteróli safnast upp í lík-
amanum þannig að lifrin og gall-
blaðran ráða ekki við það, en
sítrónan hjálpar til við að koma
jafnvægi á þetta ferli. Þær eiga
einnig að koma í veg fyrir þvag-
færasýkingar, háan blóðþrýst-
ing, æðahnúta, hóstaköst, exem,
vöðvabólgu, hægðatregðu og
marga aðra kvilla.
FRÁBÆR OG FRÍSKANDI
(173 kcal)
1,8 g prótein, 42 g kolvetni, 0,5
g fita
Æðislegur á heitum sumardögum
og frábært að frysta sem frost-
pinna fyrir krakkana. Um að gera
að stækka uppskriftina.
2 dl frosin jarðarber (u.þ.b. 80 g)
200 g vatnsmelóna
200 ml granateplasafi (ég nota
safann frá The Berry Company)
Engifer eftir smekk
Klakar.
Allt nema klakarnir sett í bland-
arann og blandað vel. Klökunum
bætt saman við og þeir blandaðir
aðeins svo að þeir verði eins og
krap.
ENGIFERDRYKKUR (175 kcal)
2 g prótein, 41,5 g kolvetni, 0,4
g fita
Mjög bragðgóður og frískandi
drykkur sem hentar mjög vel sem
millimál.
1 frosinn þroskaður banani, má
vera ófrosinn
2 dl frosin jarðarber (u.þ.b. 80 g)
1 msk. akasíuhunang eða annað
hunang
10 g rifin engiferrót, u.þ.b. 2 cm.
2-3 dl vatn
Öllu blandað saman nema vatn-
inu, sem er bætt smátt og smátt
saman við. Hrært þar til það er
silkimjúkt og fallegt.
JARÐARBERJA OG BLÁBERJA
(340 kcal)
26,4 g prótein, 55 g kolvetni, 2,3
g fita
Mæli með þessum, rosalega
bragðgóður og ferskur og krakk-
arnir elska hann.
200 g jarðarberja- og bláberja-
skyr frá KEA
100 g frosin jarðarber (u.þ.b. 3 dl)
2 döðlur, gott að leggja aðeins í
bleyti ef þær eru harðar.
100 ml léttmjólk
Allt sett í blandarann og hrært
vel.
SUMARLEGUR OG SÆTUR
(318 kcal)
4,3 g prótein, 56 g kolvetni, 9,7
g fita
Þessi er æðislegur bæði fyrir
fullorðna og krakka. Um að gera
að gera bara stóra uppskrift á
heitum sumardögum og setja í
stóra könnu með fullt af klaka.
Hann klárast á augabragði. Er
stútfullur af góðri næringu.
150 g gulrætur
1 lítið avókadó (u.þ.b. 60 g)
½ banani
1 dl frosið mangó
1 dl frosin jarðarber
2 dl appelsínusafi
Vatn og klakar eftir þörfum
Gulræturnar brytjaðar eða
rifnar, fer eftir því hversu kraft-
mikill blandarinn er. Það er síðan
best að setja þær út í blandarann
ásamt safanum og leyfa þeim að
blandast meðan annað hráefni er
tekið til. Restinni er síðan bætt
saman við.
HEILSA SUMARLEGIR
OG HOLLIR SAFAR
Hildur Halldórsdóttir heldur utan um
síðuna Heilsudrykkir Hildar á Facebook.
Þar gefur hún einfaldar uppskriftir að
heilsusöfum sem henta í byrjun dags, en
hugmyndin varð til þegar hún var orðin
þreytt á tilbreytingarlausri fæðu á meðan
hún var í fæðingarorlofi . Söfunum fylgir
næringarinnihald, en Hildur segir safa
geta innhaldið margar hitaeiningar og því sé mikilvægt að
vera meðvitaður um safagerðina. Hér má sjá uppskriftir að
nokkrum sumarlegum og bragðgóðum söfum.
Íslensk hönnun
Sölustaðir:
Epal, Hörpunni | Meba Kringlunni og Smáralind | Michelsen úrsmiðir, Laugavegi 15 | Kraum
Aðalstræti 10 Gullsmiður Dýrfinna Torfadóttir, Akranesi | Halldór Ólafsson, Glerártorgi Akureyri
Klassík, Egilsstöðum | Karl R. Guðmundsson, Selfossi | Palóma föt og skart, Grindavík Sædís
gullsmiðja, Geirsgötu 5 | Úr og Gull, Strandgötu 13-15 | Húsgagnaval, Hornafirði | Gull- og
silfurverslun Steingríms Benediktssonar, Vestmannaeyjum | Epal Design, Flugstöð Leifs
Eiríkssonar | Fjóla gullsmiður, Reykjanesbæ | Paloma föt og skart, Grindavík
asajewellery.com