Fréttablaðið - 31.05.2013, Síða 4

Fréttablaðið - 31.05.2013, Síða 4
31. maí 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 4 AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigrún Kristinsdóttir sigrunp@365.is, Sigurjón Viðar Friðriksson sigurjon@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Steinunn Sandra Guðmundsdóttir ssg@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is SVONA ERUM VIÐ LEIÐRÉTT Ranglega var greint frá því að leikritið Óvitarnir væri byggt á skáldsögu eftir Guðrúnu Helgadóttir í frétt blaðsins um leikritið í gær. Óvitarnir voru upphaflega skrifaðir sem leikrit og komu síðar út í bókaformi. Beðist er velvirðingar á þessu. BEIN ÚTSENDING FRÁ FÍB OG ATLANTSOLÍU SPARAKSTURSKEPPNI Fylgstu með á fib.is milli 9 og 14 í dag. REYKJAVÍK AKUREYRI Soff ía Sveinsdóttirveðurfréttamaður Veðurspá Sunnudagur Fremur hægur vindur. TÍÐINDALÍTIL HELGI Í dag má búast við rigningu eða skúrum sunnan og vestan til, á morgun eru horfur á stöku skúrum en á sunnudaginn verður úrkomulítið að mestu. Hiti breytist lítið en kólnar heldur norðan- og austanlands á sunnudaginn. 8° 7 m/s 7° 15 m/s 9° 11 m/s 10° 15 m/s Á morgun Hæg breytileg átt. Gildistími korta er um hádegi 10° 7° 9° 6° 7° Alicante Aþena Basel 24° 28° 22° Berlín Billund Frankfurt 24° 20° 20° Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn 9° 21° 21° Las Palmas London Mallorca 21° 20° 22° New York Orlando Ósló 30° 30° 24° París San Francisco Stokkhólmur 18° 20° 21° 9° 8 m/s 9° 9 m/s 10° 7 m/s 11° 6 m/s 10° 7 m/s 12° 8 m/s 4° 9 m/s 10° 6° 8° 8° 10° VEIÐI Sala á veiðileyfum fyrir komandi sumar hefur dregist saman um 30 prósent miðað við árið í fyrra samkvæmt nýrri markaðsúttekt sem unnin var fyrir Landssamband stanga- veiðifélaga (LS). „Ögurstund er runnin upp á stangaveiði- markaðnum á Ísland,“ segir í yfirlýsingu LS og tekið er fram að nauðsynlegt sé að setjast niður með landeigendum til að bjarga því sem bjargað verður. „Kreppan er núna fyrst að koma fram á þessum markaði og á sama tíma er Evrópa í sárum. Ofan á þetta allt bættist mesta hrun sem orðið hefur í íslenskri laxveiði síðasta sumar. Veiðileyfi á Íslandi eru einfaldlega orðin of dýr í samanburði við hágæðalax- veiðileyfi í heiminum.“ Stangaveiðifélag Reykjavíkur bendir á að veiðileyfi hafi á síðustu 15 til 20 árum hækk- að 100% umfram vísitölu og hafi því tvöfald- ast að raungildi. „Landssamband stangaveiðifélaga vissi að ástandið var alvarlegt en þessi úttekt sýnir og sannar að staðan er verri en við óttuðumst og ljóst að menn hafa hreinlega áhyggjur af vörumerkinu Íslandi í laxveiðinni,“ er haft eftir Viktori Guðmundssyni, formanni LS, í yfirlýsingunni. „Stjórn LS telur að bregðast þurfi strax við en að sama skapi er mikilvægt að allir hagsmunaaðilar komi að því borði og ræði málin með þeim hætti að lágmarka skað- ann sem fyrirsjáanlegur er“. Samkvæmt yfirlýsingunni er á bilinu 10 til 20 prósenta samdráttur á sölu veiðileyfa á besta tíma og tekið er fram að það sé jafn- framt dýrasti tíminn og því séu fjárhagsleg áhrif þessa mikil. Erlendir veiðimenn hafa gjarnan keypt stóran hluta dýru leyfanna og óttast LS algjört hrun í sölu veiðileyfa til útlendinga. „Íslenskir stangaveiðimenn halda einnig að sér höndum og þar mælist samdrátturinn allt að 40% samanborið við sama tíma í fyrra.“ trausti@frettabladid.is Veiðileyfasalar óttast algjört hrun í sölu laxveiðileyfa Ögurstund er runnin upp á stangaveiðimarkaðnum að mati Landssambands stangaveiðifélaga. Veiðileyfasalar segja aðgerða þörf. Allsherjar samráð stangast á við lög segir formaður Landssambands veiðifélaga. NORÐURÁ Veiði- menn ganga yfir Norðurá fyrir ofan Laxfoss. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA „Ég get ekki litið á þessu yfirlýsingu öðruvísi en að þetta sé ákall um að menn setjist niður á breiðum grundvelli og reyni að ná einhverju samkomulagi um lækkun veiðileyfa,“ segir Óðinn Sigþórsson, formaður Landssambands Veiði- félaga. „Þetta er ekki eins einfalt og verið er að gefa í skyn. Menn verða að átta sig á því að veiðileyfamarkaðurinn lýtur ákveðnum lögmálum sem Samkeppnis- eftirlitið gerir mjög ríkar kröfur um að séu í heiðri hafðar og eitthvað allsherjar samráð á þessum markaði er eitthvað sem þeir sem þekkja til löggjafarinnar myndu aldrei láta sér detta í hug. Ég verð að segja alveg eins og er að ég er dálítið undrandi yfir þessu. Þetta, ásamt mörgu öðru sem komið hefur úr þessum ranni síðan í haust, er til þess fallið að hafa áhrif á markaðinn og þá til þess verra. Þessi umræða skemmir fyrir öllum og mér finnst ekki rétt að fara fram með þessum hætti. Ef menn eru í erfiðleikum þá er rétti vettvangurinn að ræða við þá aðila sem þeir hafa gert samninga við. Þessi mál, eins og önnur viðskipti, eiga að vera á milli leigusalans og leigutakans.“ Samráð um verðlagningu er ólöglegt ÓÐINN SIGÞÓRSSON LÖGREGLUMÁL Matthías Máni Erlingsson, sem strauk af Litla- Hrauni um miðjan desember í fyrra, hefur verið ákærður af lögreglu- stjóranum á Selfossi fyrir hegningarlaga- brot á meðan á flóttanum stóð. Matthías Máni er ákærður fyrir að hafa meðal annars stolið vopnum og farartækjum. Hann er einnig ákærður fyrir að hafa brotist inn í sumarbústaði og stolið fatnaði, mat og vistum. Mál Matthíasar var tekið fyrir í Héraðsdómi Suðurlands í morgun. Hann fékk frest til fimmtudagsins 6. júní. Matthías Máni situr inni á Litla-Hrauni fyrir tilraun til manndráps. - ósk Stal vopnum og vistum: Matthías Máni ákærður á ný MATTHÍAS MÁNI 30.000 álfar frá SÁÁ seldust í ár. Um 32.000 álfar seldust í fyrra. Sökum verðhækkunar eru tekjur meiri í ár, eða um 40 milljónir. Í fyrra voru tekjurnar um 35 milljónir. Frá því að sala álfsins hófst árið 1990 hafa um 470 milljónir safnast í SÁÁ. Heimild: SÁÁ SAMFÉLAGSMÁL Meta þarf fötluð börn að verðleikum og meðtaka þau sem mikilvæga þátttakendur í samfélaginu frekar en að einblína á takmarkanir þeirra og sjá þau sem þiggjendur. Breytt viðhorf eru til hagsbóta fyrir alla. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, um stöðu barna í heiminum. Í fréttatilkynningu frá UNICEF á Íslandi kemur fram að á heimsvísu hafi fötluð börn margfalt minna aðgengi að menntun en önnur börn. Jafnframt segir að Ísland hafi ekki enn fullgilt samning Samein- uðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks þótt vinna við fullgildinguna standi yfir í innanríkisráðuneytinu. Í skýrslu UNICEF er undirstrikað að nær 130 ríki hafi fullgilt samn- inginn og þau sem eftir standa eru hvött til að gera það sama hið fyrsta. Enn fremur að ráðast þurfi í aðgerð- ir til að eyða fordómum og veita fjöl- skyldum þann stuðning sem þarf til að fötluð börn fái notið fullra mann- réttinda. Samkvæmt skýrslu UNICEF er tæplega fjórum sinnum líklegra að fötluð börn í 17 efnameiri ríkjum heims verði fyrir ofbeldi en önnur börn. Börn með þroskahömlun eru auk þess tæplega fimm sinnum lík- legri til að verða fyrir kynferðislegu ofbeldi en önnur. Í skýrslu sem UNICEF á Íslandi gaf út árið 2011 kemur fram að heyrnarlaus börn eru þrisvar sinn- um líklegri til að verða fyrir kyn- ferðislegu ofbeldi hér á landi en önnur börn. - hó Í nýrri skýrslu UNICEF um stöðu barna er lögð áhersla á að fötluð börn skuli meta að verðleikum: Fötluð börn eru oft utanveltu og gleymd FÆR UM MARGT UNICEF undirstrikar að allir nytu góðs af ef horft væri til þess hvers fötluð börn eru megnug. LÖGREGLUFRÉTTIR Fékk hjartaáfall á hafi úti Farþegi á norsku farþegaskipi var sóttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar síð- degis í gær og fluttur á Landspítalann í Fossvogi. Viðkomandi hafði fengið hjartaáfall, en skipið var þá staðsett um 47 sjómílur suður af Ingólfshöfða. Eldur í íbúðarhúsi Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu réði niðurlögum elds sem kom upp í íbúð á annarri hæð í húsi við Möðrufell í gærkvöldi. Reykkafarar voru sendir inn í íbúðina, sem reyndist mannlaus.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.