Fréttablaðið - 31.05.2013, Qupperneq 18
31. maí 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 18
Áhugi smábátasjómanna á makríl-
veiðum er langt umfram það sem
búist var við. Alls hafa 239 útgerð-
araðilar sótt um leyfi til slíkra
veiða, en þær stunduðu aðeins 17
bátar á síðustu vertíð. Aflaheim-
ildir til veiðanna eru hins vegar
svo fátæklegar að hver bátur fær
úr litlu að moða.
Mikill áhugi
Þegar umsóknarfrestur til að
sækja um makrílveiðar rann út 6.
maí síðastliðinn höfðu Fiskistofu
borist 239 umsóknir um færaveið-
ar. Af umsækjendum eru 98 skip
ekki með haffæri sem gildir 1. júlí,
en þann dag má hefja makrílveið-
ar með línu og handfærum. Ekki
verða gefin út leyfi til þeirra fyrr
en það skilyrði er uppfyllt. Þá eru
23 af þeim skipum sem sóttu um
nú þegar með strandveiðileyfi og
því er ekki unnt að gefa út leyfi til
þeirra fyrr en 1. september.
Örn Pálsson, framkvæmdastjóri
Landssambands smábátaeigenda
(LS), segir að um hreina spreng-
ingu sé að ræða en nokkur óvissa
sé um hversu margir muni skila
sér til veiðanna. Þó sé ljóst að um
gríðarlega fjölgun frá því í fyrra sé
að ræða, þegar 17 bátar stunduðu
veiðarnar.
„En samkvæmt reglugerð eru
3.200 tonn ætluð til veiðanna, sem
er náttúrulega ekki upp í nös á
ketti. Við hvöttum Steingrím J.
Sigfússon atvinnuvegaráðherra
til að ætla verulegt magn til færa-
báta, enda makríll frá þeim mun
verðmætari en hjá vörpuskipum,“
segir Örn.
Markmið LS er að 20 þúsund tonn
af makríl komi í hlut færabáta, en
afli þeirra 17 báta sem stunduðu
veiðarnar í fyrra var samtals 1.100
tonn. Örn segir að LS muni hvetja
Sigurð Inga Jóhannsson sjávarút-
vegsráðherra til að auka myndar-
lega við veiðiheimildirnar frá því
sem nú er. Um þetta ályktaði aðal-
fundur LS og hvatti til þess að mak-
rílpottur fyrir smábáta, báta undir
15 brúttótonnum, yrði aukinn í 18%
af heildarafla í makríl að erlendri
fyrirmynd, til dæmis í Noregi.
Þegar frekar er rýnt í reglugerð
um stjórn makrílveiða íslenskra
fiskiskipa árið 2013 sést að þessum
3.200 tonnum skal skipt þannig að
veiða megi 1.300 tonn í júlí og 1.900
lestir það sem eftir lifir árs. Heild-
ar aflaheimildir íslenskra skipa eru
hins vegar um 123.000 tonn.
Tækifærin til staðar
Óttar Már Ingvason sjávarútvegs-
fræðingur segir tækifærin í nýt-
ingu makríls með krókaveiðum
mikil. Hann segir það hafa haml-
að veiðum til þessa að uppsjávar-
vinnslur hafi ekki verið tilbúnar
að greiða eðlilegt verð fyrir króka-
veiddan makríl, heldur hafi hann
verið verðlagður á sama hátt og
makríll til bræðslu og frystingar úr
uppsjávarveiðiskipum. Verðmynd-
unin hafi orðið til þess að áhugi á
makrílveiðum hafi verið mjög tak-
markaður meðal smábátaútgerðar-
innar.
„Þróunin hefur verið sú að þær
fiskvinnslur sem eru háðar hráefn-
iskaupum á frjálsum markaði fóru
að sýna krókaveiddum makríl auk-
inn áhuga og á síðustu vertíð voru
þær að borga 2,5 til 3 sinnum hærra
verð fyrir krókaveiddan makríl,“
segir Óttar og segir ástæðuna vera
þá að krókaveiddur makríll sé mun
verðmætara og betra hráefni en sá
sem er veiddur með stórtækari
veiðarfærum.
„Á síðustu vertíð sýndu menn
og sönnuðu að krókaveiðar á mak-
ríl eru mjög raunhæfur kostur á
miðum umhverfis Ísland,“ segir
Óttar. „Í dag er það staðreynd að
nokkuð stór hluti smábátaútgerðar-
innar lítur á makrílveiðar sem eitt
helsta sóknarfærið í sinni útgerð,
eins og tölurnar sýna.“
Störfin heim
Óðinn Gestsson, framkvæmda-
stjóri Íslandssögu á Suðureyri,
skrifaði grein á fréttavefinn Bæjar-
ins besta í byrjun febrúar þar sem
hann reifar rök fyrir því að króka-
veiða makríl í frekari mæli. Þar
bendir hann á að einn helsti vandi
í íslenskri fiskvinnslu sé skortur á
hráefni til vinnslu. Óðinn telur að
með því að beina hluta veiðiheim-
ilda í makríl á smábáta megi áætla
að fiskvinnslur sem glími við skort
á hráefni, og það um allt land, njóti
góðs af því. „Með því mætti auka
verkefni hjá því fólki sem þar starf-
ar. Þá gætu sprottið upp einhverjir
sem vildu búa til vörur sem gæfu
meiri verðmæti, ef það sýndist hag-
kvæmt. Við myndum í einhverjum
tilfellum búa til fullunnar vörur.
Mest af þeim makríl sem er fer í
blokk og er lausfrystur fer til fram-
haldsvinnslu erlendis hjá einhverj-
um vinnslum sem búa til störf þar
sem þau eru staðsett. Þetta gæfi að
minnsta kosti tækifæri á aukinni
fullvinnslu,“ skrifar Óðinn.
Svavar
Hávarðsson
svavar@frettabladid.is
Krókasjómenn flykkjast á makríl
Þegar hafa 239 útgerðir sótt um leyfi til Fiskistofu til að færaveiða makríl í sumar. Um sprengingu er að ræða þar sem aðeins 17 bátar
stunduðu veiðarnar í fyrra. Áætlaður kvóti til veiðanna er 3.200 tonn, sem er um 17.000 tonnum undir því sem sjómenn telja nægjanlegt.
HÖFNIN Á ARNARSTAPA Óvissa er um hversu margir bátar munu sækja á krókaveiðar á makríl en fjölgunin verður alltaf marg-
föld frá fyrra ári. Fjölmargir útgerðaraðilar hafa líklega sótt um makrílveiðileyfi til að halda þeim möguleika opnum að hefja
veiðar en eru óákveðnir. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
■ Veiðarnar eru hagkvæmar og umhverfisvænar því útgerðarkostnaður er
tiltölulega lágur.
■ Enginn meðafli eða seiðadráp er við veiðarnar.
■ Krókabátarnir geta athafnað sig á grunnsævi þar sem rányrkja makríls-
ins er hvað skaðlegust fyrir ungviði helstu nytjastofna.
■ Stórauknir möguleikar fyrir fiskvinnslur sem eru háðar frjálsum markaði
við öflun hráefnis.
■ Aðgangur margra sjávarútvegsbyggða að hráefni frá sjávarútvegs-
byggðum hefur verið mjög heftur. Má þar nefna Vesturland, Vestfirði og
Norðurland, jafnvel þótt sum árin hafi stór hluti aflans verið veiddur úti
fyrir miðum þessara landsfjórðunga. Með aukinni krókaveiði á makríl
mun aðgengi fiskverkenda á þessum svæðum aukast með jákvæðum
áhrifum á atvinnustig og búsetu einstakra byggðarlaga.
Fjölþætt samfélagsleg áhrif krókaveiði
AFLAHEIMILDIR OG VEIÐI Í
MAKRÍL 2012– 2013130.000
125.000
120.000
115.000
110.000
105.000
100.000
22.000
21.000
20.000
19.000
18.000
17.000
10.000
9000
8000
7000
4000
3000
2000
1000
0
123.000
20.000
3.200
1.100
➜ Um 5,1 milljón tonna af makríl
mældist í sex vikna rannsóknarleiðangri Íslend-
inga, Færeyinga og Norðmanna í fyrra sumar
og þar af 1,5 milljónir tonna innan
íslenskrar efnahagslögsögu. Það eru um 29%
af heildarmagninu á rannsóknasvæðinu.
➜ Makrílkvóti Íslands fyrir árið 2013 hefur
verið ákveðinn 15% minni en á síðasta ári
í samræmi við veiðiráðgjöf Alþjóða hafrann-
sóknarráðsins (ICES). Kvótinn í ár nemur alls
123.182 tonnum.
➜ Áætlað er að árið 2012 hafi heildarveiði
Evrópusambandsins, Noregs, Íslands, Færeyja
og Rússlands á makríl verið 920 þúsund
tonn og nam veiðihlutur Íslands um 16%.
Veiði
17 báta
í fyrra-
sumar
Afl aheimildir 2013
Lágmark
í krókaveiði
2013 (LS)
Kvóti til
krókaveiða
í sumar
En sam-
kvæmt reglu-
gerð eru 3.200
tonn ætluð
til veiðanna,
sem er nátt-
úrulega ekki
upp í nös á ketti
Örn Pálsson
framkvæmdastjóri LS
www.netto.is
| Mjódd · Salavegur · Hverafold · Akureyri · Höfn · Grindavík · Reykjanesbær · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss |
HERBAMARE FÆST Í NETTÓ
Kræsingar & kostakjör
Herbamare er blanda
lífrænna jurta og grænmetis
með hreinu sjávarsalti.
Einstök bragðgæði Herbamare
draga fram góða bragðið í hverjum
rétti á náttúrulegan hátt.
Alls hafa 239 útgerðaraðilar sótt
um leyfi til makrílveiða.
17 bátar stunduðu slíkar
veiðar á síðustu vertíð.