Fréttablaðið - 31.05.2013, Side 80
31. maí 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 44
➜ Atli Rafn Sigurðsson er tilnefndur sem leikari ársins í aðalhlutverki í Englum alheimsins. Þorleifur
Arnarsson er tilnefndur fyrir leikstjórn og Sólveig Arnarsdóttir fyrir leik í aukahlutverki.
Leiksýningin Englar alheimsins í leikgerð Þorleifs Arnar Arn-arssonar og Símons Birgissonar hlýtur níu tilnefningar til
Grímuverðlaunanna í ár. Til-
nefningarnar voru kunngjörðar
við athöfn á Stóra sviði Þjóð-
leikhússins í gær, sama sviði og
Englar alheimsins eru sýndir á
um þessar mundir.
Fast á hæla Englanna komu
tvær sýningar Borgarleik-
hússins, Gullregn eftir Ragnar
Bragason og Mary Poppins í
leikstjórn Bergs Þórs Ingólfs-
sonar. Verkin þrjú eru öll til-
nefnd sem sýning ársins, auk
Macbeth, sem fær alls sjö til-
nefningar, og Blam!, sem fær
alls sex tilnefningar.
Englar alheimsins og Gull-
regn eru auk þess tilnefnd í
flokknum leikrit ársins ásamt
Jónsmessunótt eftir Hávar
Sigurjónsson, Karma fyrir
fugla, eftir Kari Ósk Grétudótt-
ur og Kristínu Eiríksdóttur og
Grande eftir Tyrfing Tyrfings-
son.
Alls komu 63 verk til greina
til Grímuverðlauna í ár, þar
af þrettán dansverk og sjö
útvarpsverk en tilnefningar eru
83 talsins í átján flokkum.
Athygli vekur að þrátt fyrir
að Macbeth fái sjö tilnefningar,
þar á meðal sem sýning ársins,
er Björn Thors ekki tilnefndur
fyrir leik sinn í titilhlutverk-
inu, rullu sem verkið stendur og
fellur með.
Listafólk og uppfærslur
Þjóðleikhússins hljóta 26 til-
nefningar, auk þess sem þrjár
tilnefningar falla í skaut sam-
starfsverkefna sjálfstæðra
leikhópa og Þjóðleikhússins.
Listafólk og uppfærslur Borgar-
leikhússins hljóta 21 tilnefningu.
Að auki fær Blam!, samstarfs-
sýning Neander-leikhússins í
Danmörku og Borgarleikhúss-
ins sex tilnefningar og fjórar til-
nefningar falla í hlut samstarfs-
verkefna sjálfstæðra leikhópa.
Listafólk og uppfærslur
Íslenska dansflokksins hljóta
átta tilnefningar, Íslensku
óperunnar fimm tilnefningar,
Leikfélags Akureyrar eina til-
nefningu og þrjár uppfærslur
Útvarpsleikhússins eru tilnefnd-
ar.
Grímuverðlaunin verða veitt
við hátíðlega athöfn í Þjóðleik-
húsinu 12. júní næstkomandi.
Meðfylgjandi eru tilnefningar
í helstu flokkum. Tilnefningar í
öllum flokkum má finna á Vísi.
SÝNING ÁRSINS
Englar alheimsins
Blam!
Mary Poppins
Macbeth
Gullregn
LEIKRIT ÁRSINS
Englar alheimsins
Gullregn
Karma fyrir fugla
Grande
LEIKSTJÓRI ÁRSINS
Þorleifur Örn
Arnarsson fyrir Engla
alheimsins
Egill Heiðar Anton
Pálsson fyrir Leigu-
morðingjann
Bergur Þór Ingólfsson
fyrir Mary Poppins
Kristín Jóhannes-
dóttir fyrir Rautt
Ragnar Bragason
fyrir Gullregn
LEIKARI ÁRSINS
í aðalhlutverki
Atli Rafn Sigurðarson
fyrir Engla alheimsins
Jóhann Sigurðarson
fyrir Rautt
Ólafur Darri Ólafsson
fyrir Mýs og menn
Benedikt
Erlingsson
fyrir Orms-
tungu
Kristján
Ingimars-
son fyrir
Blam!
LEIKKONA ÁRSINS
í aðalhlutverki
Margrét Vilhjálms-
dóttir fyrir Macbeth
Jóhanna Vigdís
Arnardóttir fyrir Mary
Poppins
Sigrún Edda Björns-
dóttir fyrir Gullregn
Kristbjörg Kjeld
fyrir Jónsmessunótt
Þórunn Arna
Kristjánsdóttir fyrir
Karma fyrir fugla
LEIKARI ÁRSINS
í aukahlutverki
Hilmar Guðjónsson
fyrir Rautt
Hallgrímur Ólafsson
fyrir Gullregn
Hilmir Snær Guðna-
son fyrir Macbeth
Eggert Þorleifsson
fyrir Tveggja
þjónn
Pálmi
Gests-
son fyrir
Fyrirheitna
landið
LEIKKONA ÁRSINS
í aukahlutverki
Halldóra Geirharðs-
dóttir fyrir Gullregn
Brynhildur Guðjóns-
dóttir fyrir Gullregn
Halldóra Geirharðs-
dóttir fyrir Orms-
tungu
Maríanna Clara
Lúthersdóttir fyrir
Jónsmessunótt
Sólveig Arnarsdóttir
fyrir Engla alheimsins
LEIKMYND ÁRSINS
Börkur Jónsson fyrir
Bastarða
Petr Hloušek fyrir
Mary Poppins
Vytautas Narbutas
fyrir Engla alheimsins
Finnur Arnar Arnar-
son fyrir Fyrirheitna
landið
Kristian Knudsen
fyrir Blam!
TILNEFNINGAR TIL EDDUVERÐLAUNA
Í NOKKRUM FLOKKUM
Englar alheimsins með níu tilnefningar
Tilnefningar til Grímuverðlaunanna voru kunngjörðar í gær. Leiksýningin Englar alheimsins fékk fl estar tilnefningar, alls níu, en
Gullregn og Mary Poppins fylgdu fast á hæla hennar með átta tilnefningar hvor.
Bergsteinn Sigurðsson
bergsteinn@frettabladid.is