Fréttablaðið - 29.06.2013, Page 2
29. júní 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 2
ALÞINGI Freyja Haraldsdóttir, vara-
þingmaður Bjartrar framtíðar, mun
ekki geta flutt jómfrúræðu sína úr
pontu Alþingis líkt og aðrir nýir
þingmenn. Freyja er í sérútbúnum
hjólastól og kemst ekki að pontunni
þar sem ekki er gert ráð fyrir fólki
með fötlun í Alþingishúsinu.
Freyja tók sæti á þingi í gær í
fjarveru Guðmundar Steingríms-
sonar. Hún segir að dagurinn hafi
verið henni lærdómsríkur.
„Maður er að læra hvernig
hlutirnir ganga fyrir sig og það er
margt að læra,“ segir Freyja.
Um aðgengi fyrir fatlaða á
Alþingi segir hún að gamla bygg-
ingin hafi augljóslega ekki verið
byggð með fatlaða í huga. Þar séu
háir þröskuldar sem geti gert fólki
í hjólastól erfitt fyrir.
Þar sem Freyja mun ekki geta
staðið við púltið og ávarpað þingsal-
inn þarf að koma hljóðnema fyrir
á borði hennar, sem og myndavél.
„Pontan er ekki aðgengileg,“ segir
Freyja.
Fá fordæmi eru fyrir því að þing-
maður ávarpi salinn úr eigin sæti,
þó það þekkist vissulega.
Freyja segir málið endurspegla
stöðu fatlaðra í samfélaginu.
„Að vissu leyti finnst mér sorg-
legt að það þurfi að gera þessar
breytingar,“ segir Freyja.
Spurð hvenær hún hyggist flytja
fyrstu ræðu sína, segist Freyja von-
ast til þess að geta flutt jómfrúr-
ræðuna næsta mánudag. - vg / mlþ
Aðgengi fyrir fatlaða á þingi er slæmt þar sem ekki gert ráð fyrir sérþörfum:
Flytur jómfrúrræðu úr sæti sínu
„PONTAN ER EKKI AÐGENGILEG“
Freyja Haraldsdóttir, varaþingkona
Bjartrar framtíðar, kemst ekki að pontu
Alþingis vegna slæms aðgengis fyrir
fatlaða í þinghúsinu.
BETUR ER SEFAÐ ILLT EN UPP VAKIÐ 12
Þorsteinn Pálsson um kosningaloforð.
MIKILVÆGUM ÁFANGA NÁÐ MEÐ SAM-
STÖÐU UM LAGNINGU SÆSTRENGS 17
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, um vinnu ráðgjafa-
hóps um lagningu sæstrengs til Evrópu.
MEIRA UM BROTTHVARF 17
Hrönn Baldursdóttir náms- og starfsráðgjafi um skólastarf.
ÓPLÆGÐUR AKUR FYRIR AUSTAN 18
Vala Garðarsdóttir fornleifafræðingur hefur komið sér fyrir á Höfn í Hornafi rði og sér ótal
tækifæri í héraðinu.
LEIÐIN UPP Á VIÐ 20
Þórdís Filipsdóttir fann leiðina að sjálfsuppbyggingu með hjálp Vigdísar Finnbogadóttur.
HVALREKI FYRIR NORÐAN 22
Rúmlega 20 þúsund gestir heimsóttu
Hvalasafnið á Húsavík, sem er orðin
sannkölluð hvalahöfuðborg Evrópu.
BURT MEÐ STIMPILINN 24
Ungmennin í Projekt Polska eru orðin
þreytt á staðalímyndum um Pólverja á
Íslandi.
FÁAR KONUR Á KREDIT-
LISTUM 26
Stella í orlofi er eina íslenska kvikmyndin
frá níunda áratugnum með kvenpersónu í
aðalhlutverki.
KRAKKASÍÐA 28
KROSSGÁTA 30
GÍTARHETJA Í HÁSKÓLABÍÓ 36
Fjölmennt var á tónleika gítarleikarans Jeff
Beck á fi mmtudag.
VILL AÐEINS FÁST VIÐ
TÓNLIST 46
Tómas Young hefur verið viðloðandi íslensku
tónlistarsenuna í áraraðir.
VARAR VIÐ
MEGRUNARKEPPNI 46
Sigrún Daníelsdóttir sálfræðingur segir að í
megrunarkeppnum á borð við Biggest Loser
verði velferðin oft útundan.
DÓMSMÁL Dómari í stóru amfeta-
mínmáli furðar sig á því að einn
höfuðpaurana í málinu, sem nú er
látinn, hafi ekki verið yfirheyrður
af lögreglu. Á því hafi engin við-
hlítandi skýring fengist.
Dómur var kveðinn upp í málinu
í gær. Það snýst um innflutning á
tæplega 20 kílóum af amfetamíni
og 1,7 lítrum af amfetamínbasa til
Íslands í tveimur póstsendingum
frá Danmörku í janúar.
Þyngsta dóminn fékk Símon Páll
Jónsson, sem er fundinn sekur um
að hafa lagt á ráðin um innflutning
20 kílóanna og tekið þátt í smygl-
inu á vökvanum. Hann var dæmd-
ur í sex ára fangelsi.
Þrír menn, bræðurnir Jón Bald-
ur og Jónas Fannar Valdimarssyn-
ir og Litháinn Dainius Kvedaras,
fá allir þriggja og hálfs árs
fangels isdóma. Heyra mátti á við-
brögðum Jóns Baldurs við dóms-
uppkvaðninguna í gær að hann var
himinlifandi með niðurstöðuna.
Bræðurnir eru báðir sakfelldir
fyrir að skipuleggja innflutning-
inn á duftinu, þótt Jón Baldur hafi
fullyrt að hann hafi ekki vitað að
um svo mikið magn væri að ræða –
hann hafi einungis ætlað að flytja
inn þrjú kíló – og það hafi verið
tekið trúanlegt. Jónas var dæmdur
fyrir innflutninginn á vökvanum,
eins og Dainius.
Tveir ungir menn, sem ferjuðu
efnin á milli staða hér á Íslandi,
eru jafnframt dæmdir til skilorðs-
bundinnar fangelsisvistar í tíu og
tólf mánuði. Þá var annar Lithái
alfarið sýknaður.
Fyrir dómi báru sumir ákærðu
að einn höfuðpauranna hefði
væri Ársæll Snorrason, dæmdur
fíkniefnasmyglari sem lést fyrir
nokkrum vikum. Þeir höfðu ekki
þorað því við skýrslutökur áður en
hann lést.
Í dómnum er því lýst að Jónas
Fannar hafi nefnt Ársæl utan
skýrslutöku hjá lögreglu og lög-
regla hafi í kjölfarið skoðað málið
og komist að því að Ársæll hafi
verið í Danmörku á sama tíma og
hinir ákærðu skipulögðu smyglið.
„Þrátt fyrir þetta var ekki tekin
af honum lögregluskýrsla og sætir
það furðu þegar jafnalvarlegar
ásakanir koma fram og hér um
ræðir,“ segir í dómnum. „Engin
viðhlítandi skýring hefur fengist
á þessu.“ stigur@frettabladid.is
Furðu sætir að Ársæll
hafi ekki verið tekinn
Símon Páll Jónsson var dæmdur í sex ára fangelsi fyrir smygl á tuttugu kílóum af
amfetamíni og tæpum tveimur lítrum af amfetamínbasa til landsins. Þrír aðrir fá
þriggja og hálfs árs dóma. Dómari undrast að annar höfuðpaur hafi sloppið.
DÆMDIR Símon Páll Jónsson, til vinstri, hlaut sex ára fangelsisdóm fyrir skipulagningu smyglsins. Jónas Fannar Valdimarsson, til
hægri, hlaut þrjú og hálft ár. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
ÁSDÍS Á HM EN EKKI ANÍTA 40
Aníta Hinriksdóttir, hin stórefnilega hlaupakona úr ÍR, gaf frá
sér sæti sitt á HM í Moskvu og mun spjótkastarinn Ásdís
Hjálmsdóttir taka þátt í hennar stað.
STJARNAN ÁN STJARNANNA 41
Heil umferð í Pepsi-deild karla fer fram á morgun. Það
dregur til tíðinda í bæði topp- og botnbaráttu.
María Rut Kristinsdóttir, formaður
Stúdentaráðs, hefur í vikunni verið
mjög gagnrýnin á hugmyndir stjórnar
LÍN um niðurskurð og hertar kröfur um
námsframvindu. Menntamálaráðherra
segir að allir sem séu í námi af alvöru
ættu að ráða við breytingarnar.
Karl Garðarsson er einn þriggja
karla sem sátu í sendinefnd Íslands á
Evrópuráðsþinginu, sem hlaut ákúrur
fyrir að vera aðeins skipuð körlum.
Brynjar Níelsson, kollegi hans, gerði
gys að öllu saman og velti fyrir sér hver
þeirra ætti að klæðast kjól.
FIMM Í FRÉTTUM KRÖFUR UM KYNJAHLUTFÖLL OG KÚRISMA
Jóhanna Fleckenstein hjá Vinakoti vonar að
óánægja íbúa í Fjólugrund með unglingaheim-
ilið verði ekki til þess að starfsemi heimilisins
verði raskað.
➜ Sjónvarpsmaðurinn Sindri Sindrason sagði frá því í viðtali við Fréttablaðið
að hann og maður hans hefðu verið fyrsta samkynhneigða parið á Íslandi til
að ættleiða barn. Ummæli hans um staðgöngumæðrun vöktu nokkra úlfúð.
Sverrir Bollason, sem er í forsvari
fyrir lánsveðshópinn svokallaða,
telur að ef stjórnvöld ráðist ekki
í aðgerðir til að koma til móts
við hópinn jafngildi það svikum
við gefin loforð. Ekkert liggur
fyrir um aðgerðir.
BJARNI ÁRMANNS Á SKILORÐ 6
Fyrrverandi forstjóri Glitnis fær sex mánaða skilorðsdóm fyrir skattsvik.
EKKI RÉTTAÐ Í ÁLITAMÁLUM 6
Evrópuráðsþingið vill að stjórnmálamenn verði verndaðir fyrir ákærum vegna pólitískra
ákvarðana sem þeir tóku í embætti. Tilefnið er meðal annars Landsdómsréttarhöldin
gegn Geir Haarde.
MILLJÓNUM GERT AÐ FLÝJA 10
Síðan 2006 hafa tvær milljónir Tíbeta þurft
að fl ytja vegna framkvæmda stjórnvalda.
„SKAMMIST YKKAR ÞIÐ
SEM BERIÐ ÁBYRGÐ Á AÐ
DRAGA GÖTUNA OKKAR OG
HENNAR ÍBÚA INN Í YKKAR
PERSÓNULEGU SKOÐANIR.“ 4
Berglind Elvarsdóttir íbúi í Fjóluhvammi.
SPORT 40➜41
FRÉTTIR 2➜10
SKOÐUN 12➜17
HELGIN 18➜30
MENNING 34➜46
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
13
11
91
9
Glæsilegt úrval og góð
aðstaða til að velja
fullkomna hringa
fyrir stóra daginn.
Skoða, máta, velja,
setja upp … hringana
jonogoskar.is Sími 5524910 Laugavegi 61 Kringlan Smáralind