Fréttablaðið - 29.06.2013, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 29.06.2013, Blaðsíða 10
29. júní 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 10 LANDIÐ 1 2 3 KÍNA Kínversk stjórnvöld hafa látið þriðjung allra Tíbeta, um tvær milljónir manna, flytja í nýtt eða endurbætt húsnæði á árunum 2006 til 2012. Auk þess hafa hundruð þúsunda hirðingja á austanverðri hásléttunni þurft að flytjast í varanlega búsetu. Fyrir lok næsta árs þurfa meira en milljón manns í viðbót að flytja í ný byggðarlög, sem skipulögð hafa verið í tengslum við skipu- lagsátak kínverskra stjórnvalda. Mannréttindasamtökin Human Rights Watch skýra frá þessu í nýrri skýrslu, þar sem kín- versk stjórnvöld eru hvatt til þess að stöðva þegar í strax alla fólks flutninga þangað til óháð sérfræðinga nefnd hefur farið yfir bæði stefnu og framkvæmd þess- arar stórfelldu samfélagstilraunar. Kínversk stjórnvöld segja að herferðin, sem nefnist „Byggjum nýja sósíalíska byggð“, snúist um að útvega Tíbetum betra húsnæði og bæta mannlífið. Í skýrslunni er hins vegar fullyrt að lítið tillit hafi verið tekið til réttinda íbúanna. Kínversk stjórnvöld fullyrða enn fremur að allir þeir sem hafa flutt hafi gert það af fúsum og frjálsum vilja og tekið sé fullt tillit til óska tíbetskra bænda og hirðingja. Í skýrslunni, sem er byggð meðal annars á fjölmörgum við- tölum og frásögnum, kemur hins vegar fram að Tíbetar hafi í raun ekki haft mikil áhrif á þessi áform stjórnvalda og framkvæmd þeirra. Þá hafa samtökin grandskoðað gervihnattaljósmyndir af svæð- unum, þar sem hægt er að rekja breytingarnar sem orðið hafa frá eldri byggðum yfir í nýbygginga- svæði og heilu þorpin og bæina sem reist hafa verið á síðustu árum. Tíbetar hafa ekki margar leiðir til að mótmæla framkvæmdum stjórnvalda eða öðrum mannrétt- indabrotum sem þeir hafa verið beittir. Síðustu misserin hafa meira en hundrað Tíbetar gripið til þess ráðs að kveikja í sjálfum sér til að vekja athygli á ofríki kínverskra stjórnvalda. gudsteinn@frettabladid.is Milljónum gert að flytja Síðan 2006 hafa tvær milljónir Tíbeta, meira en þriðjungur þjóðarinnar, þurft að flytja vegna stór- felldra byggingarframkvæmda kínverskra stjórnvalda. TÍBETI Í KÍNA Á annað hundrað Tíbetar hafa kveikt í sér á síðustu árum til að mót- mæla ofríki Kínastjórnar. NORDICPHOTOS/AFP Alls eru Tíbetar í Kína um 6,2 milljónir. Þar af búa 2,7 millj- ónir í sjálfstjórnarhéraðinu Tíbet, sem er á vestanverðri tíbetsku hásléttunni. Um 3,5 milljónir búa á austanverðri hásléttunni, utan sjálfstjórnarhéraðsins. Sex milljón manna þjóð 3 NORÐURLAND Tugir kindahræja hafa verið að koma undan snjó á Norðurlandi og er búist við því að hundruð hræja til viðbótar muni koma í ljós á næstunni. Frá þessu sagði í kvöldfréttum RÚV í gær. Talið er að allt að tíu þúsund ær hafi fennt í kaf í átakaveðrinu sem gekk yfir síðasta haust, og aðeins hluti fjárins bjargaðist. Enn eru djúpir skaflar nyrðra og er þess að vænta að tugir eða hundruð fjár eigi enn eftir að koma í leitirnar. Í frétt RÚV segir að hræin séu urðuð jafnóðum og þau finnist en ekki sé að sjá að dýrbítar hafi komist í þau. Tugir kindahræja koma undan sköflum 1LANGANES Sveitarfélögin Langanesbyggð og Vopna- fjarðarhreppur hafa gengið til sam- starfs við Bremenports í Þýskalandi um rannsóknir og prófanir vegna mögulegrar uppbyggingar athafna- og hafnarsvæðis í Finnafirði. Margt bendir til þess að þar sé ákjósanleg staðsetning fyrir umskipunar- og þjónustuhöfn. Bremenports, sem þróar og byggir hafnir, kynnir sér nú verkefnið. Um gríðarlega stórt fjárfestingarverkefni er að ræða sem krefst fjölbreytilegrar rann- sóknarvinnu sem verður unnin af íslenskum og erlendum sérfræð- ingum næstu árin. -ne Sveitarfélög í samstarfi 2 ÞORLÁKSHÖFN Fyrirtækið Náttúra fiskirækt í Þorlákshöfn hyggst sexfalda framleiðslu sína á bleikju þannig að hún verði 1.200 tonn á ári. Að því er kemur fram í umfjöllun skipulags- og umhverfis- nefndar Ölfuss uppfyllir bleikjueldi Náttúru fiskiræktar allar kröfur um hreinsun á fráveitu. „Er þess gætt að hreinsun á fráveitunni verði sem mest og best áður en hún fer til sjávar. Ekki hafa komið kvartanir frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands um mengun frá stöðinni við ströndina,“ segir skipulagsnefndin. - gar Sexfalt fleiri bleikjur á ári PIPAR\TBW A • SÍA • 132026 Ban Ki-moon, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, heldur opinn fyrirlestur í Hátíðasal Háskóla Íslands, þriðjudaginn 2. júlí nk. kl. 15.00. Í fyrirlestrinum fjallar Ban Ki-moon um baráttuna gegn fátækt og hlutverk Sameinuðu þjóðanna við að stuðla að alþjóðafriði og öryggi. Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra flytur ávarp. Fundarstjóri verður Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands. Viðburðurinn er haldinn á vegum Háskóla Íslands, utanríkis- ráðuneytisins og Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi og fer fram á ensku. Mr. Ban Ki-moon, Secretary-General of the UN, will give a public lecture at the University of Iceland, Main Hall at the University’s Main Building, on Tuesday 2 July at 15:00. The Secretary-General will discuss progress in fighting world poverty and the UN´s role in building and maintaining peace and security. Mr. Gunnar Bragi Sveinsson, Minister for Foreign Affairs, will make opening remarks. Ms. Kristín Ingólfsdóttir, Rector of the University of Iceland, will moderate the discussion. The meeting is hosted jointly by the University of Iceland, the Ministry of Foreign Affairs and The United Nations Association of Iceland. It takes place in English. Ban Ki-moon hefur verið aðal- framkvæmda stjóri Sameinuðu þjóðanna frá 1. janúar 2007. Hann er fæddur í Suður-Kóreu 13. júní 1944. Hann er með BA-gráðu í alþjóða- sam skipt um frá Seoul-háskóla og meistara gráðu í stjórn sýslu fræð um frá Kennedy stjórn sýslu skól an um við Harvard-háskóla. Ban Ki-moon starfaði í suðurkóresku utan ríkis þjón ust unni í 37 ár, síðustu þrjú árin sem ráð herra utan ríkis mála og utan ríkis við skipta. Mr. Ban Ki-moon took office as Secretary-General of the United Nations on 1 January 2007. He was born in the Republic of Korea on 13 June 1944. He holds a bachelor’s degree in international relations from Seoul National University and a master’s degree in public administration from the Kennedy School of Government at Harvard University. Mr. Ban Ki-moon served 37 years in various capacities with the Ministry of Foreign Affairs and Trade of the Republic of Korea and was at the time of his election as Secretary-General his country´s Minister of Foreign Affairs and Trade. Ísland og Sameinuðu þjóðirnar: Sjálfbær framtíð fyrir alla Iceland and the United Nations: Building a sustainable future for all Save the Children á Íslandi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.