Fréttablaðið - 29.06.2013, Side 30

Fréttablaðið - 29.06.2013, Side 30
FÓLK|TRÉSMÍÐI FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473 | Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 | Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 Sænska fyrirtækið Clas Ohlson hefur sett á markaðinn lúxus fuglahús sem ætti að laða að tískusinnaða fugla. Húsið er búið fallegum, nútímalegum húsgögnum, vel skipulögðu eldhúsi, sundlaug og garðhúsgögnum. Þetta fallega fuglahús hefur vakið athygli en fyrirtæki Clas Ohlson er í Svíþjóð, Noregi, Finnlandi og á Bretlandi. Skoða má ýmsar sniðugar garðhugmyndir á Facebook-síðu fyrirtækisins. Fuglahús geta verið afar falleg og lífgað upp á náttúruna. Þau þurfa ekki að búa yfir svona miklum lúxus því yfirleitt er auðvelt að smíða slíkt hús og mála síðan í fallegum litum til að laða fuglana að. Ef gott æti er í húsunum má búast við söng- elskum gestum. Fuglahús eru ekki síður mikilvæg um vetur þegar erfiðara reynist fyrir fuglana að sækja sér í gogginn. Misjafnt er hversu mikið fólk leggur í fuglahúsin. Sum eru á tveimur hæðum með gluggatjöldum. Aðrir búa til heilar blokkir fyrir fuglana. LÚXUS FYRIR FUGLANA Fuglahús með öllum þægindum hefur vakið athygli. Húsið er fullbúið með nútímalegum húsgögnum jafnt innandyra sem utan. LÚXUS Glæsileg fuglahús í garðinum fyrir þá fiðruðu. Sum eru með meiri lúxus en önnur, eins og sjá má á mynd- inni til vinstri. Í því er sundlaug og garðhús- gögn. Aðalvík er byggingaverktaki og við tökum að okkur öll verkefni sem snúa að byggingarstarfsemi, allt frá nýbyggingum til breytinga og viðhalds ásamt þjónustu við fyrirtæki og einstaklinga,“ segir Jóhannes T. Halldórs- son, framkvæmdastjóri Aðalvíkur ehf. Hann bætir við að stór þáttur í rekstrinum sé tilboðs- og verktakastarfsemi þar sem Aðalvík er aðalverktaki með allar iðngreinar undir sinni stjórn. „Við leggjum áherslu á vönduð vinnubrögð, gerð verk- áætlana og verkskil, ásamt trúnaði við verkkaupa,“ segir Jóhannes. Þá sé einnig lagt mikið upp úr gerð verksamninga, áætlanagerð og verkfundum verktaka og verkkaupa. „Við skiljum að skilvirk vinnubrögð spara fjármagn,“ segir hann með áherslu. Aðalvík ehf. var stofnað árið 1998, fyrir fimmtán árum. „Í upphafi voru starfsmenn um tíu talsins. Jafnt og þétt hefur starfsmönnum fjölgað og nú starfa rúmlega tuttugu manns hjá fyrirtækinu,“ segir hann og bendir á að Aðalvík hafi staðið nokkuð vel af sér tímann í kringum hrunið. „Það hefur verið jafn og þéttur vöxtur í starfseminni og í sumar er nóg að gera. Hins vegar sér maður aldrei nema nokkra mánuði fram í tímann í þessum bransa,“ segir Jóhannes glettinn. VÖNDUÐ INNRÉTTINGASMÍÐI Árið 2000 festi Aðalvík kaup á trésmíðaverkstæði að Hjallahrauni 7 í Hafnarfirði. Þar er starfrækt umtalsverð innréttinga smíði ásamt ýmiss konar smíðavinnu sem tengist öðrum vinnustöðum Aðalvíkur allt frá nýbyggingum til við- halds og breytingavinnu. „Við smíðum innréttingar eftir hug- myndum og teikningum viðskiptavina okkar og tökum að okkur bæði stór og smá verk,“ segir Jóhannes. Verkstæðið er búið fullkomnustu tækjum og búnaði. Þar starfa fimm til sex menn og eru þar fagmenn á ferð. „Við tökum að okkur töluvert af innréttingasmíði, eldhús, baðinnréttingar, hurðir og allt þar á milli,“ upplýsir Jóhannes bendir á að Aðalvík hafi í gegnum tíðina smíðað hurðir og innréttingar í fjölmörg einbýli og fyrirtæki. Hann er inntur eftir þeim verkefnum sem Aðalvík hefur undir höndum um þessar mundir. „Við erum til dæmis að vinna að breytingum á Menntaskólanum í Kópavogi og að endurbótum á Landakotsskóla auk þess sem við þjónustum Hús verslunarinnar, álverið í Straumsvík og húsnæði Össurar.“ ÁHERSLA Á VÖNDUÐ VINNUBRÖGÐ AÐALVÍK KYNNIR Byggingaverktakafyrirtækið Aðalvík sinnir alhliða byggingarstarfsemi, allt frá nýbyggingum til breytinga og viðhalds. Á trésmíðaverkstæði Aðalvíkur er starfrækt umtalsverð innréttingasmíði sem unnin er eftir hugmyndum viðskiptavina. Á VERKSTÆÐINU Jóhannes Halldórs- son, framkvæmdastjóri Aðalvíkur ehf., á smíða- verkstæði fyrirtækisins í Hjallahrauni 7. MYND/VALLI KLETTAGARÐAR 23 Eitt af þeim fjölmörgu húsum sem Aðalvík ehf. hefur byggt. Nánari upplýsingar um Aðalvík má fá á skrifstofunni að Ármúla 15, í síma 567-1461 eða á verkstæðinu í síma 555-2348. *P re nt m ið la kö nn un C ap ac en t o kt ób er –d es em be r 2 01 2 – hö fu ðb or ga rs væ ði 2 5- 54 á ra Innskot í Fréttablaðið skilar árangri! MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* Fréttablaðið er mest lesna dagblaðið með glæsilegt forskot á keppinautana. Meðallestur Fréttablaðsins í aldurshópnum 25-54 ára er 73% á höfuðborgarsvæðinu.* Við bendum auglýsendum á að notfæra sér forskotið þegar þeir velja dreifingarleið fyrir fjölpóst sinn. Við dreifum sex daga vikunnar til heimila á stærsta markaðssvæði landsins. Hafðu fjölpóstinn þinn inni í Fréttablaðinu. Það er áhrifarík leið til að koma skilaboðum um vöru eða þjónustu beint inn á heimilin. Kannaðu dreifileiðir og verð í síma 512 5448 eða í tölvupóstfangi fjolpostur@frettabladid.is HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN Í FRÉTTABLAÐINU

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.