Fréttablaðið - 29.06.2013, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 29.06.2013, Blaðsíða 38
ATVINNA Kraftur stuðningsfélag fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur auglýsir laust til umsóknar starf framkvæmdastjóra félagins. Tilgangur félagsins er að aðstoða ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein en einnig aðstandendur þeirra m.a. með því að miðla upplýsingum til að auðvelda þeim að takast á við veikindin. Um er að ræða 50-80% starf. Starfslýsing framkvæmdarstjóra Krafts Í starfinu felst einkum: • Daglegur rekstur félagsins auk þess að koma fram út á við fyrir hönd félagsins. • Umsjón og skipulagning á dagskrá og viðburðum félagsins. • Samvinnu og þjónustu við sálfræðing stuðningsnets Krafts. • Ábyrgð á fjármálum félagsins og öflun tekna í samráði við stjórn. • Að efla tengsl við samstarfsaðila. • Þátttöku í í kynningar- og markaðsmálum. • Umsjón með heimasíðu og samfélagsmiðlum félagsins auk útgáfu fréttabréfs félagsins í samstarfi við ritstjóra. • Að vinna að og skapa verkefni sem ýta undir sýnileika félagsins. • Almennri upplýsingagjöf um félagið og ráðgjöf til þeirra sem til félagsins leita. • Annast önnur þau störf sem honum kunna að verða falin af stjórn félagsins. Hæfniskröfur: • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði félags-,og/ eða heilbrigðisvísinda, markaðs-og viðskipafræða. • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum, þ.m.t. rík þjónustulund. • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum. • Geta til að koma fram á opinberum vettvangi þ.m.t. færni í töluðu og rituðu máli á íslensku og ensku. • Þekking og reynsla á viðfangsefni félagsins er kostur. Umsóknir skal senda: formadur@kraftur.org Umsóknarfrestur er til 14. Júlí 2013 Nánari upplýsingar um starfið veitir Hlín Rafnsdóttir í síma 8698944 eða hlinrafns@gmail.com Laun eru skv. kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags háskólamanna og fjármálaráðherra. Umsóknarfrestur er til og með 14. júlí n.k. Miðað er við að starfsmaður hefji störf á tímabilinu 1. september til 1. október 2013. Umsókn ásamt ítarlegri ferilskrá, merkt „MANNAUÐSSTJÓRI“, skal senda Starfsmannaþjónustu Sjúkratrygginga Íslands, rafrænt á starf@sjukra.is eða í pósti á Rauðarárstíg 10, 105 Reykjavík. Karlar, jafnt sem konur, eru hvattir til þess að sækja um starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsóknir gilda í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests. Nánari upplýsingar um starfið veitir Ragnar M. Gunnarsson, sviðsstjóri fjármála- og rekstrarsviðs. Upplýsingar um stofnunina má finna á vefsíðu hennar, www.sjukra.is Helstu verkefni: mannauðsstefnu í mannauðsmálum Menntun og hæfniskröfur: mannauðstjórnunar bæði sjálfstætt og í hópi Mannauðsstjóri www.sjukra.is Mannauðsstjóri heyrir undir sviðsstjóra fjármála- og rekstrarsviðs stofnunarinnar. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf. Sjúkratryggingar Íslands óska eftir að ráða mannauðsstjóra í fullt starf. GRÍMSNES- OG GRAFNINGSHREPPUR Skólastjóri við Kerhólsskóla Staða skólastjóra við sameinaðan leik- og grunnskóla í Grímsnes- og Grafningshreppi, Kerhólsskóla er laus til umsóknar. Leitað er að einstaklingi sem hefur skýra sýn í skólamálum, er metnaðarfullur, skapandi og áhugasamur um nærsamfélagið. Í janúar 2011 voru leikskólinn Kátaborg og grunnskólinn Ljósaborg sameinaðir í Kerhólsskóla og eru um 60 nemendur í Kerhólsskóla frá 12 mánaða aldri til og með 8. bekk. Í byggingu er nýtt húsnæði sem hýsa á bæði leik- og grunnskóladeild og verður starfsemi skólans flutt í húsnæðið á árinu 2014. Í Kerhólsskóla er lögð áhersla á einstaklingsmiðað nám þar sem þarfir einstaklingsins eru hafðar að leiðarljósi. List- og verkgreinar og önnur skapandi vinna er stór hluti af skólastarfinu. Að auki er Kerhólsskóli Grænfánaskóli og mikil áhersla er lögð á umhverfismennt og útinám. Með nýjum lögum og námskrám fyrir leik- og grunnskóla hafa skapast tækifæri til þess að hafa heildarsýn yfir skólamál sveitarfélagsins á einni hendi. Með sameiginlegum leik- og grunnskóla er leitast við að efla faglegt starf, skapa samfellu í menntun og skólastarfi og byggja upp skólabrag með þeim hætti að það verði eftirsóknarvert að búa og ala upp börn í Grímsnes- og Grafningshreppi. Starfssvið • Stjórn og ábyrgð á daglegri starfsemi og rekstri. • Fagleg forysta. • Ráðningar og stjórnun starfsfólks. • Stuðla að framþróun i skólastarfi. • Leiða samstarf starfsmanna, nemenda, heimila og skólasamfélagsins í heild. Menntunar- og hæfniskröfur • Umsækjandi skal hafa hafa leyfisbréf til kennslu á grunn- og/eða leikskólastigi, viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynslu á þessum skólastigum sbr. 10 og 12. grein laga nr. 87/2008. • Reynsla af stjórnun, rekstri skóla og þróunarstarfi er æskileg. • Metnaður, hugmyndaauðgi, skipulagshæfni og leiðtogahæfileikar. • Hæfni í mannlegum samskiptum. • Reynsla af starfi í skólum. • Sveigjanleiki og víðsýni í starfi og samskiptum. • Frumkvæði og styrkur í ákvarðanatöku. • Skipulagshæfni og góð yfirsýn. • Hreint sakavottorð. • Æskilegt er að skólastjóri hafi búsetu í sveitarfélaginu. Staðan er laus frá 1. ágúst 2013 en æskilegt er að viðkomandi geti komið að skólastarfinu sem fyrst. Launakjör eru samkvæmt samningi LN og KÍ. Umsóknir þurfa að vera skriflegar og þeim þarf að fylgja greinargott yfirlit yfir nám og störf, leyfisbréf til kennslu og meðmæli. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknarfrestur er til 12. júlí n.k. Umsóknir skulu sendar til: Grímsnes- og Grafningshreppur, Stjórnsýsluhúsinu Borg, 801 Selfoss, merkt: Skólastjórastarf Upplýsingar um Grímsnes- og Grafningshrepp og Kerhólsskóla má sjá www.gogg.is og www.kerholsskoli.is Frekari upplýsingar um starfið veitir Ingibjörg Harðardóttir sveitarstjóri, gogg@gogg.is eða í síma 486-4400.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.