Fréttablaðið - 29.06.2013, Page 4
29. júní 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 4
MATUR
OG DRYKKUR ER
18% DÝRARI
á Íslandi en sem nemur
meðaltali í ríkjum ESB.
20%
kaupa oft ast
hamborgara.
1818
Svo gæti farið
að upplýsinga-
númerið 118
verði breytt í
1818 á næsta ári.
42,5%
Íslendinga kaupa
oft ast pizzu þegar
þeir ætla að fá sér
skyndibita.
ÁHÖFNIN Á HÚNA,
hljómsveit Mugisons, Jónasar
Sigurðssonar og fl eiri mun
halda sextán tónleika um allt
land í sumar.
16
Rétt tæplega 2.300 þátt-
takendur frá 70 löndum eru
skráðir á ársþing Evrópu-
samtaka tannréttingsérfræð-
inga sem fór fram í Hörpu.
2.300
ALLS 88
HLAUPAR-
AR hlupu upp
og niður Esjuna
í Mt. Esja Ultra-
hlaupinu.
Íslendingar úts
krif-
ast 30,7 ára að
með-
altali úr grunn
námi
í háskóla, rífl eg
a
fj órum árum s
einna
en gengur og g
erist í
OECD-ríkjunum
.
ALLS 1.859 einstaklingar brautskráðust frá Háskóla Íslands síðasta laugardag.
22.06.2013 ➜ 28.06.2013
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn
Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigrún Kristinsdóttir sigrunp@365.is, Sigurjón Viðar Friðriksson sigurjon@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir
elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Steinunn Sandra Guðmundsdóttir ssg@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • sími 580 3900 • www.fastus.is • opið mán - fös 8.30 - 17.00
FA
S
TU
S
_E
_1
5.
05
.1
3
Vönduð ítölsk hönnun á útistólum
sem henta vel við íslenskar aðstæður.
Veðurþolnir og sterkir úr hágæðaplasti,
en engu að síður léttir og staflanlegir.
Litir: Grár - mosagrænn
Glæsilegir ítalskir útistólar
FÉLAGSMÁL „Við hjónin búum í
Fjóluhvammi, og erum alveg
miður okkar yfir þessu,“ segir
Berglind Elfarsdóttir, sem er
ósátt við afstöðu nokkurra íbúa
götunnar til starfsemi drengja-
heimilis í götunni.
Þessi afstaða Berglindar birtist
í athugasemd hennar við frétt
Fréttablaðsins á miðvikudag um
að íbúar í Fjóluhvammi í Hafnar-
firði kvörtuðu undan því að Vina-
kot ehf. ræki þar í götunni heimili
fyrir drengi í vanda.
Ekki hefur náðst tal af Berg-
lindi. Í áðurgreindri athugasemd
sinni segir hún fleiri í götunni
en þau hjónin vera miður sín yfir
afstöðu þeirra sem kvörtuðu.
Kvörtunin er sett fram á grund-
velli þess að rekstur drengjaheim-
ilisins sé atvinnustarfsemi og eigi
því ekki heima í íbúðargötu.
„Það hefur ekki nokkur maður
rætt þessi mál við okkur, og þessi
börn eru velkomin í götuna okkar
vegna,“ skrifar Berglind, sem
kveðst vona að heimilið verði
flokkað eins og önnur búsetu-
úrræði fyrir þá sem á þurfi að
halda, svo sem sambýli fyrir
fatlaða og fleira.
„Skammist ykkar þið sem
berið ábyrgð á að draga götuna
okkar og hennar íbúa inn í ykkar
persónulegu skoðanir,“ skrifar
Berglind Elfarsdóttir við fréttina
á Facebook.
Móðir stúlku sem býr á öðru
heimili Vinakots í Hafnarfirði
segir í athugasemd við sömu frétt
að það sé frábært að heyra að ekki
séu allir íbúar við Fjóluhvamm á
þessari skoðunn.
„Mér þætti hræðilegt ef dóttir
mín myndi lenda á götunni aftur.
Án Vinakots veit ég ekki hvar hún
hefði endað,“ skrifar móðirin.
Eins og fram hefur komið er
staða drengjaheimilisins með til-
liti til skipulagsmála til skoðunar
hjá lögmanni á bæjarskrifstofum
Hafnarfjarðar. Forstöðukonur
Vinakots hafa boðið nágrönnunum
á kynningarfund á mánudag og
segjast vonast eftir að málið
leysist í sátt. gar@frettabladid.is
Kona í Fjóluhvammi
fordæmir nágranna
Athugasemdir íbúa í Fjóluhvammi í Hafnarfirði við starfsemi heimilis þar fyrir
unglinga í vanda falla ekki öllum íbúum í geð. Móðir stúlku á öðru heimili Vina-
kots segir frábært að ekki séu allir íbúar í Fjóluhvammi andvígir heimilinu þar.
FRÉTTABLAÐIÐ Á MIÐVIKUDAG Fjölmargir sendu athugasemdir inn á Vísi við
frétt um að íbúar í Fjóluhvammi teldu rekstur drengjaheimilis ekki eiga heima í
götunni. Ekki taka allir íbúarnir undir þessar kvartanir.
EGYPTALAND, AP Stuðningsmenn Mohammeds Morsi forseta efndu í
gær til útifunda í tilefni þess að eitt ár er liðið frá því að hann tók við
embættinu.
Andstæðingar hans flykktust hins vegar einnig út á götur, alls tugir
þúsunda, og kom víða til átaka með þeim afleiðingum að einn maður
lét lífið og tugir slösuðust.
Andstæðingar Morsis hafa boðað fjöldamótmæli á sunnudaginn. - gb
Bæði stuðningsmenn og andstæðingar héldu út á götur:
Tugir þúsunda vilja Morsi burt
ÓSÁTTIR Andstæðingar MorsiS vilja aðra byltingu. NORDICPHOTOS/AFP
EFNAHAGSMÁL Fjölskyldur á aldr-
inum 35 til 49 ára skulduðu mest
allra aldurshópa í lok árs 2011,
samkvæmt skýrslu Hagstofunnar.
Skuldir aldurshópsins námu
809,3 milljörðum króna (43 pró-
sentum heildarskulda) og höfðu
dregist saman um 7,6 prósent.
„Um 19 prósent fjölskyldna
skulduðu ekkert í árslok 2011. Af
skuldsettum fjölskyldum skuldaði
helmingur sex milljónir króna eða
minna og 90 prósent minna en 31,4
milljónir króna,“ segir Hagstofan.
Greining Íslandsbanka bendir á
að samkvæmt skýrslunni hafi eig-
infjárstaða 67 prósenta fjölskyldna
verið jákvæð í lok árs 2011. - óká
35 til 49 ára skulda mest:
Skuldir drógust
saman milli ára
VIÐSKIPTI Hagar högnuðust
um 837 milljónir króna á
fyrsta ársfjórðungi ársins. Til
samanburðar var 628 milljóna
króna hagnaður á fyrsta árs-
fjórðungi 2012.
Vörusala Haga á ársfjórðungn-
um nam 18,4 milljörðum króna
og jókst um ríflega milljarð milli
ára. Rekstrarhagnaður var 1.168
milljónir en var 953 milljónir
króna á sama tímabili í fyrra.
Í fréttatilkynningu frá Högum
segir að rekstur félagsins á árs-
fjórðungnum hafi verið umfram
áætlanir. Þá séu horfur í rekstri
félagsins í takt við árangur þess
á síðastliðnu ári. - mþl
Árshlutauppgjör Haga:
Hagnaður
Haga að aukast
Soff ía Sveinsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
Mánudagur
Breytileg átt, 3-8 m/s.
FREMUR SVALT Helgarveðrið verður tíðindalítið, vindur tiltölulega hægur og horfur
á stöku skúrum í flestum landshlutum, síst suðaustanlands. Það er heldur svalt í veðri
miðað við árstíma og heldur svalara norðan til en sunnanlands.
8°
3
m/s
9°
7
m/s
12°
6
m/s
9°
5
m/s
Á morgun
3-8 m/s og stöku skúrir síðdegis.
Gildistími korta er um hádegi
13°
9°
12°
7°
7°
Alicante
Aþena
Basel
26°
31°
25°
Berlín
Billund
Frankfurt
20°
17°
20°
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
14°
17°
17°
Las Palmas
London
Mallorca
26°
21°
26°
New York
Orlando
Ósló
28°
31°
16°
París
San Francisco
Stokkhólmur
22°
24°
18°
9°
3
m/s
10°
7
m/s
11°
5
m/s
9°
6
m/s
8°
6
m/s
9°
5
m/s
4°
3
m/s
11°
8°
13°
9°
10°
FÉLAGSMÁL „Við myndum aldrei
taka inn neinn sem væri ógn við
umhverfi sitt,“ segir Jóhanna
Fleckenstein, forstöðukona í
Vinakoti, um kvörtun íbúa í
Fjóluhvammi í Hafnarfirði sem
eru ósáttir við að í einu einbýlis-
húsa götunnar sé rekið heimili
fyrir unglinga í vanda.
Íbúarnir segja að um sé að
ræða atvinnustarfsemi sem
eigi ekki heima í íbúðahverfi.
Einn íbúi í götunni sem ekki
vill láta nafns getið segir málið
eiga sér forsögu. Í húsinu hafi
um árabil verið rekin frönsk
ferða skrifstofa sem leigt hafi
húsnæðið. Því hafi fylgt ónæði.
Íbúinn segir málið einfaldlega
snúast um þá spurningu hvort
menn geti leigt húsið sitt undir
fyrirtæki í íbúðabyggð. Það hafi
ekkert með leigjendurna að gera
sem slíka, þeir séu ágætis fólk.
Skipulagsfulltrúi bæjarins er
sammála nágrönnunum en full-
trúar í skipulagsráði telja málið
ekki skýrt og frestuðu í gær
afgreiðslu þess þar til álit lög-
manns lægi fyrir.
Vinakot opnaði heimili fyrir
drengi í Fjóluhvammi fyrir
tveimur mánuðum og fyrir
stúlkur annars staðar í Hafnar-
firði í desember. Jóhanna
forstöðukona í Fjóluhvammi
undir strikar að leyfi séu fyrir
starfseminni bæði frá slökkvi-
liði og heilbrigðisfulltrúa. Ekki
sé um vistheimili að ræða heldur
búsetuúrræði og því hafi engar
sérstakar breytingar verið gerð-
ar á húsnæðinu. Aðeins einn til
tveir séu þar til heimilis í einu
og starfsmenn oftast tveir eða
þrír. Í Fjóluhvammi sé nú aðeins
einn unglingspiltur.
„Mér skilst að það sem aðal-
lega hafi truflað nágrannana sé
að lögreglan hefur verið kölluð
hingað fjórum sinnum á þessum
tveimur mánuðum. Ég held að
þau hafi aldrei orðið fyrir neinni
annarri upplifun sem tengist
drengnum,“ segir Jóhanna, sem
kveður Vinakot ætla að bjóða
nágrönnunum á kynningarfund.
„Þetta er bara heimili fyrir
börn sem eru með flókinn vanda
og eiga ekki í mörg hús að venda.
Við viljum reyna að ná sátt og
vinna þetta með nágrönnunum
en ef það fer að halla á hag
barnsins verðum við að finna
aðra lausn,“ segir Jóhanna.
gar@frettabladid.is
Nágrannar vilja unglinga-
heimili úr einbýlishúsagötu
Nágrannar Vinakots, heimilis fyrir unglinga í vanda, í Fjóluhvammi í Hafnarfirði telja slíka starfsemi ekki
leyfilega í götunni. Skipulagsfulltrúi tekur undir þetta. Aðeins einn drengur býr nú á heimilinu.
Fyrirtækið Vinakot ehf. er úrræði ætlað börnum á aldrinum tólf til átján
ára sem glíma við fjölþættan hegðunarvanda og þurfa til dæmis búsetu,
meðferð, stuðning og ráðgjöf til að ná tökum á lífi sínu.
Markhópurinn er börn og ungmenni sem af ýmsum ástæðum hafa ekki
náð að fóta sig þrátt fyrir ítrekuð inngrip.
Heimild: Heimasíða Vinakots
Vinakot fyrir börn
FJÓLUHVAMMUR Nágrannar eru ósáttir við rekstur unglingaheimilis í einbýlishúsi
sem Vinakot leigir í götunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Mér skilst að
það sem aðallega hafi
truflað nágrannana sé að
lögreglan hefur verið
kölluð hingað fjórum
sinnum á þessum tveimur
mánuðum.
Jóhanna Fleckenstein,
forstöðukona Vinakots
í Fjóluhvammi
Skammist ykkar
þið sem berið ábyrgð á
að draga götuna okkar og
hennar íbúa inn í ykkar
persónulegu skoðanir.
Berglind Elfarsdóttir í Fjóluhvammi.