Fréttablaðið - 29.06.2013, Qupperneq 28
KYNNING − AUGLÝSINGFerðir LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 20134
Þetta hefur farið ótrú-lega vel af stað, eigin-lega langt fram úr
væntingum,“ segir Roald
Eyvindsson, ritstjóri vefsíð-
unnar Gayiceland.is sem er
sérsniðin að hinsegin fólki
og var hleypt af stokkunum
fyrir ári.
Að sögn Roalds var Gay-
iceland.is upphaflega hugs-
uð sem fréttaveita fyrir erlenda
ferðamenn og ensku mælandi út-
lendinga búsetta á Íslandi og tók
efni vefsíðunnar mið af því. „Við
greindum frá atburðum líðandi
stundar, áföngum í mannrétt-
indabaráttu hinsegin fólks á Ís-
landi og alls kyns viðburðum því
tengdum. Þegar fram liðu stundir
fór þessi nálgun að verða einsleit
þannig að við færðum út kvíarnar
og bættum við lífsstílstengd-
um efnum,“ segir Roald, en
þá fyrst fóru hjólin að snú-
ast, því umferðin um síðuna
stórjókst.
Gayiceland.is er því sam-
bland af fréttaveitu og lífs-
stílssíðu. Efninu er skipt
niður í flokka, svo sem við-
burði, næturlíf, mannrétt-
indi, mat og menningu og
listir, auk þess sem farið er
vítt og breitt yfir sjónar sviðið.
Þar má nálgast mynd-
bönd og ljós myndir úr
gay pride-göngunni og
finna viðtöl, til dæmis
við Önnu Pálu Sverris-
dóttur, formann Sam-
takanna ’78, og hljóm-
sveitarmeðlimi Retro
Stefson.
„Við höfðum sam-
band við strákana í
Retro Stefson eftir frumsýningu
myndbands við lagið She Said og
vildum vita hvernig þeir hefðu
fílað sig í draggi. Þeir tóku því vel
og úr varð stórskemmtilegt viðtal,“
segir Roald.
Á skipi með samkynhneigðum
Roald segir Gayiceland.is ekki ein-
göngu vera fréttaveitu og ferða-
handbók heldur veiti hún líka
áhugaverða innsýn í íslenska
þjóðar sál. „Svo ég vitni áfram
í viðtalið við Retro Stefson, þá
endur speglar sú jákvæða afstaða
sem þar kemur fram í garð sam-
kynhneigðra vel hug þjóðarinnar
allrar. Á skömmum tíma hafa Ís-
lendingar skipað sér í sveit með
framsæknustu þjóðum heims á
sviði mannréttinda. Réttarstaða
hinsegin fólks er á heildina litið
góð á Íslandi, sem gerir landið að
mjög ákjósanlegum áfangastað í
augum margra. Falleg náttúra er
ekki það eina sem laðar fólkið að,
heldur vissan um að geta verið
maður sjálfur án þess að mæta
fjandskap.”
Roald segist hafa séð hversu
rík sú þörf er víða erlendis þegar
hann fór í siglingu fyrir samkyn-
hneigða í fyrra. „Ég hafði takmark-
aðan áhuga í upphafi en
lét til leiðast. Þegar upp
var staðið er þetta eitt af
ævintýralegri ferðalögum
sem ég hef farið í,“ segir
hann en viður kennir að
í byrjun ferðar hafi verið
svolítið yf irþyrmandi
að vera umk ringdur
öllum þessum fjölda
karla á lenda skýlum.
„Þarna var maður stadd-
ur ásamt þrjú þúsund
hommum og lesbíum um borð
í stærðarinnar skemmtiferða-
skipi sem sigldi frá Los Angeles til
Mexíkó. Boðið var upp á ljúffeng-
an mat í öll mál, f lott skemmti-
atriði, skoðunarferðir í landi og
mörg þematengd partí á dag sem
fólk mætti uppá búið í,“ lýsir Roald
og minnist þess að Asíubúarnir
hafi skemmt sér sérstaklega vel.
„Einn tjáði mér að ástæðan væri
hversu bágborin staða hinsegin
fólks væri heima fyrir. Sumir gátu
í fyrsta sinn á ævinni sleppt fram
af sér beislinu. Á skipinu var ég því
rækilega minntur á hvers vegna
hinsegin fólk ferðast í auknum
mæli til Íslands.”
Fjölbreytt hinsegin ferðasíða
Gayiceland.is er sambland af fréttaveitu og lífsstílssíðu sem er sérsniðin að hinsegin fólki. Ritstjórinn er Roald Eyvindsson, en hann
hugsaði síðuna upphaflega sem fréttaveitu fyrir erlenda ferðamenn á Íslandi. Í dag er þar að finna fjölbreyttar upplýsingar og viðtöl.
Roald Viðar
Eyvindsson
Hinsegin fólk kemur til Íslands til að geta áhyggjulaust verið það sjálft. NORDICPHOTOS/GETTY
Uglan Café er kósý kaffihús
í Fnjóskadal sem opið er á
sumrin. Kaffihúsið er rekið í
Skógum, sem var barnaskóli
sveitarinnar á árunum 1916
til 1972. Í Skógum var einnig
samkomustaður, símstöð og
póstafgreiðsla sveitarinnar
og þar var einnig ferjustaður
áður en Fnjóská var brúuð.
Skógar standa steinsnar frá þeim stað
þar sem áætlað er að munni Vaðlaheiðarganga verði.
Kaffihúsið er staðsett í gömlu kennslustofunni og þá geta
gestir gluggað í gamlar bækur, meðal annars kennslubækur
frá liðnum tíma í bókastofunni. Þar er einnig hægt að kaupa
notaðar bækur og í bókastofunni er gallerý þar sem listamenn
sýna verk sín.
Á boðstólunum eru heimabakaðar veitingar úr hráefni úr
héraðinu og geta gestir valið um te soðin af staðbundnum
jurtum, svo sem blóðbergi og vallhumli.
Uglan Café er í 25 mínútna akstursfjarlægð frá Akureyri og
þaðan er stutt í náttúruperlur Norðurlands eins og Vaglaskóg og
Goðafoss.
Kaffihús í gömlum skóla
Uglan Café er kósý sveitakaffihús í Fnjóskadal. MYND/UGLAN CAFÉ
Suður England og Wales 15. – 21.08.
Sjö daga f erð um S uður-England og Wales.
Ein af v insælustu ferðunum okkar
Ekið um borgir o g þorp í hjarta Englands, komið við m.a. í Oxford, B ristol,
Bath og í Brecon þ jóðgarðinu S. koðunarferðir alla d aga.
Allur aðgangseyrir og hálft fæði innifalið.
Leitið n ánari upplýsinga hjá utanlandsdeild okkar.
Ferðaskrifstofa Guðmundar Jónassonar
Borgartún 34, 105 Reykjavík S, : 511 1515 • outgoing@gjtravel.is • www.ferdir.is
Póstdreifing | Vatnagörðum 22 | 104 Reykjavík | Sími 585 8300 | www.postdreif-
Við sjáum um örugga dreifingu á fjölpósti
Við náum til fjöldans
B
ra
nd
en
bu
rg
Póstdreifing dreifir fjölpósti sex daga vikunnar til heimila
á stærsta markaðssvæði landsins. Mælingar sýna að 60%
landsmanna skoða fjölpóst og er hann því áhrifarík leið
til að koma skilaboðum um vöru eða þjónustu beint inn
á heimilin. Örugglega til þín.
Nánari upplýsingar veitir söludeild í síma 585 8300.