Fréttablaðið - 29.06.2013, Side 31
| FÓLK | 3TRÉSMÍÐI
Nýir eigendur komu að rekstri timburverk-stæðis Húsasmiðjunnar á síðasta ári. Verk-stæðið var selt tveimur fyrrverandi starfs-
mönnum þess, Guðmundi Óla Helgasyni og Árna G.
Sveinssyni. Nafni timburverkstæðisins var breytt
á sama tíma og heitir nú Fjölin. Sem fyrr snýr starf-
semi verkstæðisins að ýmiss konar sérvinnslu fyrir
fjölbreyttan hóp viðskiptavina þess. Guðmundur
segir þá breytingu vera helsta að í stað þess að
vinna eingöngu úr efniviði frá Húsasmiðjunni vinni
starfsmenn Fjalarinnar efni frá öllum aðilum. „Við
erum fyrst og fremst í ýmissi sérvinnslu og sér-
vinnum þá til dæmis klæðningar, panel, gerefti, gólf-
lista, sólbekki, gólflista og ýmislegt fleira. Auk þess
höfum við eina starfandi þurrkofninn á landinu eftir
því sem ég best veit. Viðskiptavinir geta því núna
komið beint til okkar með efnið og við sjáum um
alla vinnslu fyrir þá.“
BÚA YFIR STÓRU TANNASAFNI
Sérstaða Fjalarinnar snýr að því að smíða tennur.
„Við vinnum mikið í tengslum við friðuð hús og
sem dæmi þá störfum við mikið fyrir Húsafriðunar-
nefnd. Ef viðskiptavinur kemur til dæmis með
gamlan lista úr slíku húsi þá smíðum við tennur
þannig að hægt sé að gera þetta nákvæmlega eins.
Enda er ekki hægt að fara út í búð í dag og kaupa
eitthvað sem var smíðað fyrir sjötíu árum. Við
verðum að hafa þetta eins og það var. Í dag búum
við yfir stóru tannasafni og eigum oft þá tönn sem
viðskiptavinurinn óskar eftir. Tönnin er í raun
fræsitönnin sem við notum til að hefla spýtuna. Sé
hún ekki til þá útbúum við hana með því mynstri
sem viðskiptavinurinn óskar eftir.“
FJÖLIN ÞJÓNAR ÖLLUM
Fjölin þjónar þó ekki bara þeim sem halda við
gömlum húsum. „Viðskiptavinir okkar koma úr
öllum áttum, hvort sem það eru fyrirtæki, stofnanir
eða einstaklingar. Við vinnum til dæmis fyrir
Reykjavíkurborg, Eimskip og ýmsa aðra aðila. Í
dag getum við í raun unnið efnið hvaðan sem það
er komið. Við pökkum einnig spæni í bagga fyrir
hestamenn sem hefur verið mjög eftirsóttur.“
Í dag starfa fimm starfsmenn hjá Fjölinni sem
eru allir reynslumiklir starfsmenn í þessari atvinnu-
grein.
Fjölin er til húsa á gamla Húsasmiðjusvæðinu við
Sundin, í Súðarvogi 3-5, 104 Reykjavík. Nánari upp-
lýsingar má finna á www.fjolin.is.
TIMBURVERKSTÆÐIÐ FJÖLIN
ÞJÓNAR ÖLLUM VIÐSKIPTAVINUM
FJÖLIN KYNNIR Gamla timburverkstæði Húsasmiðjunnar skipti um nafn og eigendur á síðasta ári. Í dag heitir það Fjölin og sem
fyrr er sérsvið timburverkstæðisins ýmiss konar sérvinnsla fyrir ólíkan hóp viðskiptavina.
NÝIR EIGENDUR
Guðmundur Óli Helgason
og Árni G. Sveinsson eru
nýir eigendur Fjalarinnar.
NÓG AÐ GERA Marek vinnur við bandsög. MYND/ARNÞÓR
VINSÆLT HJÁ
HESTAMÖNNUM
Spónabaggar frá Fjölinni eru
vinsælir hjá hestamönnum.
FALLEGT
TIMBUR
Sýnishorn af
timbri frá Fjölinni.
VANUR MAÐUR
Logi, starfsmaður
Fjalarinnar, raðar timbri á
kílvélafæriband.