Fréttablaðið - 29.06.2013, Side 40
ReMake Electric var stofnað í júní 2009.
ReMake er skapandi fyrirtæki í örum vexti sem
hannar, framleiðir og selur orkueftirlitskerfið
eTactica, sem er heildarlausn fyrir fyrirtæki til
þess að mæla, hafa eftirlit með og greina orkunotkun.
Með öflugu stjórnendateymi og mjög hæfum rafmagns-og hugbúnaðar-
sérfræðingum hefur ReMake hannað nýja lausn af rafmagnsmælum og er
orðið markaðsleiðandi í orkueftirlitslausnum.
Sölustjóri á Íslandi
ReMake Electric óskar að ráða sölustjóra á Íslandi
Lýsing:
Lykilhlutverk sölustjóra felur í sér að ná inn nýjum
viðskiptavinum, samskipti við núverandi viðskiptavini ásamt
að vinna með endursöluaðilum og rafvirkjum.
Starfið er kjörið fyrir einstakling með minnst 3ja ára reynslu
af sölu rafmagnsbúnaðar t.d. rafmagnstækja, orkustjórnun-
arkerfa, sjálfstýringarkerfa eða sambærilegra vara.
Við munum einnig taka til skoðunar umsóknir frá óreyndum,
en áhugaverðum einstaklingum.
Starfssvið:
• Öflun nýrra viðskiptavina, samningaviðræður og
lokun sölusamninga.
• Eftirfylgni við endursöluaðila.
• Skuldbinding að sölumarkmiðum.
• Gerð sölu- og aðgerðaáætlana.
• Samkeppnisgreining.
• Skýrslugerð til stjórenda um sölu og aðgerðir.
Hæfniskröfur:
• Menntun sem nýtist í starfi. Kostur að hafa skilning
á rafmagni.
• Reynsla af sölu rafmagnsbúnaðar eða rafmagnslausna.
• Þekking á framleiðendum og dreifingaraðilum rafmagns
búnaðar.
• Árangursdrifni, áræðni og dugnaður.
• Hæfni í mannlegum samskiptum og til að vinna í hóp.
• Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
Vinsamlega sendið ferilskrá á ensku fyrir 8. júlí n.k. til:
Francois Froment
Director of Business Development
francois@remake-electric.com
Tölvunarfræðingur, kerfisfræðingur
Þjóðskjalasafn Íslands auglýsir laust til umsóknar starf sér-
fræðings á skjalasviði við langtímavörslu rafrænna gagna.
Starfið felst einkum í ráðgjöf um rafræna skjalavörslu
við opinbera aðila og viðtöku rafrænna gagna frá þeim.
Helstu verkefni eru; ráðgjöf um rafræna skjalavörslu,
leiðbeiningar um afhendingu á vörsluútgáfum rafrænna
gagna til Þjóðskjalasafns, viðtaka, prófun og varðveisla
rafrænna gagna.
Hæfnikröfur
• Gerð er krafa um próf í tölvunar- eða kerfisfræði
eða aðra hliðstæða menntun. Menntun í eða þekking á
skjalfræði er æskileg.
• Fjölbreytt reynsla á sviði tölvumála. Reynsla af starfi við
skjalavörslu, notkun skjalasafna eða vinna í skjalasafni
er æskileg.
• Góð kunnátta á miðlum og stöðlum er varða vörslu og
flutning rafrænna gagna og kunnátta í algengum
notendaforritum.
• Góð kunnátta í íslensku, ensku og einu Norðurlandamáli
er áskilin.
Leitað er að fjölhæfum og áhugasömum starfsmanni, með
frumkvæði í starfi, vönduð vinnubrögð og lipra framkomu.
Frekari upplýsingar um starfið að finna á www.skjalasafn.is
undir laus störf og á www.starfatorg.is
Umsóknarfrestur er til og með 08.07.2013Lögfræðingar
Borgarlögmaður óskar eftir að ráða tvo lögfræðinga til starfa hjá embættinu. Í boði er krefjandi og fjölbreytt starf í
starfsumhverfi þar sem reynir á góða alhliða þekkingu á flestum réttarsviðum lögfræðinnar. Áhersla er lögð á símenntun og
miðlun þekkingar milli starfsmanna. Embætti borgarlögmanns er í Ráðhúsi Reykjavíkur og þar eru stöðugildi átta lögmanna og
lögfræðinga.
Borgarlögmaður
Helstu verkefni:
Lögfræðilegar álitsgerðir og ráðgjöf til borgarstjórnar,
borgarráðs, borgarstjóra, stofnana og fyrirtækja Reykjavíkur-
borgar
• Undirbúningur dómsmála og málflutningur
• Meðferð stjórnsýslukæra
• Samningagerð
• Fyrirsvar vegna skaðabótakrafna sem beint er gegn
Reykjavíkurborg
• Uppgjör slysabóta á grundvelli kjarasamninga
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Embættispróf eða meistaragráða í lögfræði
• Málflutningsréttindi æskileg
• Góð færni til framsetningar máls í ræðu og riti
• Skipuleg og fagleg vinnubrögð
• Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
• Lipurð og færni í samskiptum
Laun eru samkvæmt kjarasamningi
Reykjavíkurborgar við Stéttarfélag lögfræðinga.
Nánari upplýsingar veitir Kristbjörg Stephensen, borgarlögmaður, í síma 411 4100
eða í gegnum tölvupóstfangið kristbjorg.stephensen@reykjavik.is
Umsóknarfrestur er til 12. júlí n.k. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknir ásamt fylgiskjölum skulu berast í gegnum vef Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is
Vilt þú vinna spennandi
verkefni með okkur?
Hlíðasmári 3 | 201 Kópavogur | Sími: 458 4000 | airatlanta.com
Air Atlanta Icelandic is looking for quality employee
Qualifications:Main Task:
Crewing (12 hour shifts)
12th of July 2013