Fréttablaðið - 29.06.2013, Page 43

Fréttablaðið - 29.06.2013, Page 43
Lausar stöður við Lágafellsskóla og Varmárskóla í Mosfellsbæ haustið 2013 Lágafellsskóli: • Skólaritari 60 – 100% starfshlutfall. Um framtíðarráðningu er að ræða. • Aðstoðarmatráður í mötuneyti starfsmanna. Vinnutími 07:30 – 15:30. • Skólaliðar Vinnutími 07:50 – 14:00. Möguleiki á sveigjanlegu starfshlutfalli. • Skólaliði í nemendamötuneyti. Afleysing frá 15.ágúst – 6. nóvember. Vinnutími 08:00 – 14:00. Upplýsingar um störfin í Lágafellsskóla veitir Jóhanna Magnúsdóttir skólastjóri í síma 8968230. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og starfsreynslu sendist á netfangið johannam@lagafellsskoli.is Varmárskóli: • Deildarstjóri verkefna. Um er að ræða tímabundna afleysingu í stjórnun skólaárið 2013-2014. • Dönskukennari (heil staða). Um er að ræða dönsku í 7.-10.bekk og er ráðið tímabundið í eitt ár vegna leyfis kennara. • Stuðningsfulltrúar 70% starfshlutfall sem er hægt að hækka í 100% ef vinnu í frístundaseli er bætt við. • Stöður í frístundseli Varmárskóla. Um er að ræða 40-50% stöður, vinnutími frá 13-16/17. Laun eru greidd í samræmi við kjarasamning Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Mosfellsbæjar. Upplýsingar um störfin veita skólastýrur Varmárskóla, Þórhildur Elfarsdóttir s. 863- 3297 og Þóranna Rósa Ólafsdóttir s. 899-8465 Umsóknir með ferilsskrá sendist á netfangið: thorhildur@varmarskoli.is. Umsóknarfrestur um öll ofangreind störf er til og með 10. júlí 2013. Laun eru greidd í samræmi við kjarasamning Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélög. Nánari upplýsingar um störfin, menntunar- og hæfnikröfur er að finna á http://www.mos.is/Lausstorf/. Fólk af báðum kynjum er hvatt til að sækja um. Deildarstjóri og leikskólakennari á Ós Barnaheimilið Ós er foreldrarekinn leikskóli sem starfar í anda Hjallastefnunnar. Á leikskólanum eru þrjár deildir með alls 34 börnum. Nú leitum við annars vegar að deildarstjóra í elsta kjarna (fyrir börn fædd 2008) og leikskólakennara/starfsmanni. Hæfnikröfur: • Leikskólakennaramenntun eða önnur sambærileg menntun • Brennandi áhugi á að starfa með börnum • Reynsla af uppeldis-og kennslustörfum með börnum æskileg • Áhugi og vilji til að þróa starfið í samstarfi við samstarfsfólk og foreldra Nánari upplýsingar veitir Gyða leikskólastjóri eftir kl. 12. Áhugasamir sendið umsókn á os1@simnet.is fyrir mánudaginn 8. júlí. 2013. ERTU VERSLUNARSTJÓRI? Við leitum að verslunarstjóra fyrir einn af stöðunum okkar á höfuðborgarsvæðinu Verslunarstjóri er ábyrgur fyrir rekstri staðarins. Hann sér m.a. um þjálfun og ráðningu starfsfólks, samskipti við birgja, uppgjör og skýrslugerð ásamt því að afgreiða og þjónusta viðskiptavini. Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af afgreiðslu- og þjónustustörfum. Við gerum kröfu um þjónustulund, samviskusemi og jákvæðni. Umsókn ásamt ferilskrá skal senda á starf@subway.is Umsóknarfrestur er til og með 10. júlí nk. H VÍ TA H Ú SI Ð / SÍ A - 13 -1 76 8 Óskum eftir kjötiðnaðarmanni og fólki með reynslu og áhuga á eldamennsku. Áhugasamir sendi umsókn ásamt mynd á kjotkompani@kjotkompani.is Kennsluráðgjafi Laust er til umsóknar starf kennsluráðgjafa á Þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts. Um er að ræða 80% starf. Velferðarsvið Helstu verkefni og ábyrgð: • Ráðgjöf við grunnskóla um kennsluhætti, þróun og skipulag skólastarfs. • Ráðgjöf vegna einstakra barna með þroskafrávik og barna sem eru í námslegum og/eða félagslegum vanda. • Ráðgjöf og aðstoð við gerð starfsáætlana í grunnskólum. • Umsjón með ýmiskonar samstarfsverkefnum. • Þátttaka í þverfaglegum teymum á þjónustumiðstöðinni. • Samvinna við samstarfsaðila og hagsmunasamtök. Hæfniskröfur: • Kennaramenntun og framhaldsnám sem nýtist í starfi. • Þekking og reynsla á starfi grunnskóla. • Lipurð í mannlegum samskiptum. • Skipulagshæfileikar. • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti. • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum. • Áhugi á þróun þverfaglegs starfs innan þjónustu- miðstöðvarinnar. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags. Nánari upplýsingar um starfið veitir Þorgeir Magnússon deildarstjóri í síma 411 1200 / 664 7756 eða með því að senda fyrirspurnir á thorgeir.magnusson@reykjavik.is Umsækjendur eru vinsamlega beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/storf Umsóknarfrestur er til 15. júlí n.k. Vakin er athygli á stefnu Reykjavikurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.