Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.06.2013, Qupperneq 54

Fréttablaðið - 29.06.2013, Qupperneq 54
KYNNING − AUGLÝSINGFerðir LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 20136 Guðlaugur er að fara í annað skiptið með Íslend inga til Eþíópíu en Jóhanna Kristjónsdóttir hafði farið áður með hópa þangað í skipulagðar ferðir. Guðlaug ur talar mál innfæddra og þekkir þennan menningar heim vel. „Það var 21 í ferðinni í fyrra og ég býst við svipuðum fjölda núna,“ segir Guð- laugur, en það eru Bændaferðir sem selja ferðina og enn eru nokkur sæti laus. „Þetta er langt ferðalag, f logið er frá London til höfuðborgar- innar Addis Ababa, en það er átta klukkustunda flug. Síðan er flogið innanlands til norðurhluta lands- ins, en þar eru skoðaðir mjög áhugaverðir staðir. Má þar nefna upphaf Nílar í Tanavatni. Þar eru miklir og frægir fossar, Bláa Níl, en þar förum við í gönguferðir og komumst í návígi við þessa miklu fossa. Einnig siglum við út í eyju í vatninu og heimsækjum klaustur og sjáum gamlar eþíópískar skreyt- ingar í fornri kirkju. Þessi kirkja er merkileg, þar sem hún hefur mörg einkenni af gyðingdómi,“ segir Guðlaugur. Til heljar „Frá Tanavatni er farið með flugi á stað sem heitir Lalibela, en það er lítið fjallaþorp í 2.800 metra hæð. Þorpið lætur ekki mikið yfir sér en þegar nær dregur sér maður myndkirkjur höggnar inn í fjallið. Þær eru ellefu talsins og ótrú- lega fallega gerðar og hafa varð- veist frá árinu 1200. Við fáum góða leiðsögn um þetta svæði. Meðal annars er farið í gegnum myrkvuð göng þar sem bannað er að kveikja ljós, en þau kallast göng heljar. Þau eiga að tákna að leið manna geti legið til heljar en síðan koma menn út hinum megin og í aðra kirkju sem þar er. Á þessum stað er einstakt útsýni yfir allar sveitir í kring. Ógleymanlegt er að koma á þennan stað, sérstaklega að horfa á sólarlagið. Líkamsskreyttir ættbálkar Frá Lalibela er f logið aftur til höfuð borgarinnar og hún skoðuð en seinni hluti ferðarinnar er nokkuð ólíkur fyrri hlutanum. Ferðin stendur í tvær vikur, en fyrri vikan er söguleg þar sem skoðaðar eru fornar minjar. Í seinni hlutanum heimsækjum við nokkra ólíka ættbálka sem þarna búa. Sumir þessara ættbálka eru Með innfæddum í Eþíópíu Guðlaugur Gunnarsson starfaði sem kristniboði í Eþíópíu í fimmtán ár. Í október fer hann sem fararstjóri með Íslendinga til þessa einstaka menningarheims þar sem hægt er að kynnast ólíkum ættbálkum og skoða fornminjar. Fararstjórinn, Guðlaugur Gunnarsson, að koma út úr einum af göngunum í Lalibela, þar sem eru margar kirkjur frá því um 1200, allar úthöggnar úr klettum fjallsins í heilu lagi. Markaður meðal Hamer-fólksins er heimsóttur. Skinnklæðnaður er áberandi og sérstök hárgreiðsla kvenna sem setja smjör og rautt kalk í hár sitt. Þær fá aldrei að þvo sér um hárið eftir að þær giftast. Danssýning hjá Dorsemönnum er áhrifamikil og nota þeir vopn og hefð- bundinn skinnklæðnað og litríkan vefnað í dansinum. EÞÍÓPÍA er leyndardómsfullt land í Austur-Afríku sem hefur að geyma ævaforna menningu allt frá tímum Axum ríkisins sem var stórveldi í Afríku fyrir 3000 árum. Gamla keisaraættin rakti ættir sínar til Salómons konungs í Jerúsalem, sem biblían segir frá. Hér var vagga mannlífs á jörð því elstu minjar um menn, beinagrindin af Lúsíu, fundust við uppgröft suður af höfuðborginni Addis Ababa. Fáir Íslendingar gera sér grein fyrir að þetta land hefur að geyma ótrúlega áhugaverða menningu og mannlíf frumbyggja sem á sér engan sinn líka í heiminum. Í land- inu búa yfir 80 mismunandi þjóðflokkar, hvert með sitt tungumál og ólíka menningu, sérstöku siði og venjur. Íbúafjöldinn er alls um 85 milljónir. fámennir og hver með sína eigin siði, venjur og tungumál. Ættbálkarnir hafa auk þess mis- munandi líkams skreytingar sem eru einkennandi fyrir þá. Þarna má sjá ýmislegt sem er ólíkt því sem við eigum að venjast, enda komumst við í návígi við fólkið, fáum að kíkja í heimsókn í kofa þess. Það er stórkostleg upplif- un og þeir sem fóru í fyrra voru afskaplega ánægðir með alla ferðina,“ segir Guðlaugur. „Við komum einnig við á stöðum þar sem Íslendingar hafa verið með kristniboðs- eða hjálparstarf, meðal annars í Konsó sem margir kannast við.“ Hann segir að fólk á öllum aldri hafi áhuga á þessari ferð, allt frá þrítugsaldri til rúmlega sjötugs. „Þetta er ekki mjög áreynslu mikil ferð þótt einhverjar göngur séu. Mynd Íslendinga af þessu landi er fátækt og hungur en í rauninni er þetta ákaflega fjölbreytt land. Þegar ekki hafa verið þurrkar og uppskerubrestur er landið frjó- samt og með fjölbreytilegu mann- lífi.“ Köfunarvörur! GSM: 612 5441 • valdi@kofunarvorur.is Köfunarvörur • Fatnaður Leigubúnaður • Viðgerðaþjónusta Köfunarvesti frá Ocenic, Hollis og Aeris. Loftpressur Útvegum loftpressur frá 80-560 l. Mynd: 100 l/min. 300 bar pressu. Lungu Köfunarlungu frá Hollis. Loftkútar Frá 1 l. til 18 l. 232 bar. Vatnsheld vasaljós Mikið úrval af fylgihlutum til sport- og atvinnuköfunar, sjósunds- og kajakfólks. Köfunarkennara má finna á heimasíðunni kofunarvorur.is Köfunargallar frá Hollis, Oceanic og Santi diving.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.