Fréttablaðið - 29.06.2013, Qupperneq 70
29. júní 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 38
BAKÞANKAR
Hildar
Sverrisdóttur
Gamla brýnið Al Pacino snæddi
kvöldmat á veitingastaðnum Brite
Spot í Los Angeles með vini sínum,
leikaranum Christopher Walken.
Kvöldverðinum lauk með því að
Pacino braut snjallsíma sinn á kló-
settgólfi veitingastaðarins.
„Snjallsími, það var þá heldur,“
heyrði heimildarmaður Enquirer
Pacino æpa á meðan hann traðkaði
á símanum. „Hann hafði verið að
reyna að nota Siri-forritið á sím-
anum en fékk alltaf rangar upp-
lýsingar,“ sagði heimildarmaður-
inn. Er leikararnir sneru aftur til
borðs síns heyrðist Walken hvísla
til þjónustustúlku: „Og fólk telur
mig ruglaðan.“
Braut snjallsíma
Al Pacino braut síma sinn inni á veitingastað.
ÓSÁTTUR Al Pacino var ekki ánægður
með snjallsíma sinn. NORDICPHOTOS/GETTY
Eva Mendes er sögð hafa tjáð
kærasta sínum, leikaranum Ryan
Gosling, að hún vilji trúlofast
áður en hún verður fertug. Leik-
konan fagnaði 39 ára afmæli sínu
þann 5. mars.
„Eva sagði Ryan að hún vildi
vera trúlofuð áður en
hún verður fertug.
Ryan var aftur á
móti þegar búinn að
ákveða að hann ætl-
aði að biðja hennar.
Hann ætlar sjálfur
að hanna hring-
inn í samvinnu
við gullsmiðinn
Neil Lane,“ hafði
Star Magazine
eftir heimildar-
manni.
Vill trúlofast
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
BYGGT Á
SANNSÖ GULEGUM
ATBURÐUM
WHITE HOUSE DOWN KL. 1 (TILBOÐ) 5.10 - 8 - 10.50 14
WHITE HOUSE DOWN LÚXUS KL. 2.20 - 5.10 - 8 - 10.50 14
THE PURGE KL. 6 - 8 - 10 16
THE INTERNSHIP KL. 3.15 - 5.25 - 8 - 10.35 7
AFTER EARTH KL. 8 12
FAST & THE FURIOUS 6 KL. 10.15 12
EPIC 2D ÍSL.TAL KL. 1 (TILBOÐ) KL. 3.15 - 5.45 L
EPIC 3D ÍSL.TAL KL. 1 (TILBOÐ) KL. 3.45 L
THE CROODS 2D KL. 1 (TILBOÐ) KL. 3.10 L
WHITE HOUSE DOWN KL. 6 - 9 14
THE PURGE KL. 6 - 8 - 10 16 / THE ICEMAN KL. 10.15 16
THE INTERNSHIP KL 3 . (TILBOÐ) 9- 7
AFTER EARTH KL. 8 12
EPIC 3D ÍSL TAL KL 3 30. . . (TILBOÐ) - 5 45. L
EPIC 2D ÍSL.TAL KL. 3.30 (TILBOÐ) L
THE GREAT GATSBY KL. 6 12
THE CROODS 2D ÍSL.TAL KL. 3.30 (TILBOÐ) L
WHITE HOUSE DOWN KL. 8 - 10 14 / THE PURGE KL. 8 - 10.30 16
THE ICEMAN KL . 5 40. 16 / THE INTERNSHIP KL . 5 40. 7
EPIC 2D / 3D KL. 3.40 (TILBOÐ) L
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
AKUREYRI
MERKTAR MEÐ GRÆNU OG APPELSÍNUGULU Í BÍÓAUGLÝSINGUM
SAMBÍÓA KR. 1000 Á GRÆNT OG KR. 750 Á APPELSÍNUGULT
SPARBÍÓ
EMPIRE
H.S.S. - MBL
DAGSKRÁIN ER Á WWW.BIOPARADIS.IS OG MIDI.IS
sá sam o.iþ r agyr ðð é bt g u iim
MERKTAR MEÐ GRÆNU OG APPELSÍNUGULU Í BÍÓAUGLÝSINGUM
SAMBÍÓA KR. 1000 Á GRÆNT OG KR. 750 Á APPELSÍNUGULT
SPARBÍÓ
MISSIÐ EKKI AF ÞESSARI“
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI - SÝND Í 2D OG 3D
WHITE HOUSE DOWN 2 - 5 - 8 - 10
THE PURGE 8 - 10.40
THE ICEMAN 8 - 10.20
THE INTERNSHIP 2 - 5
EPIC 2D 5
EPIC 3D 2
Tilboð í bíó. Gildir á allar sýningar merktar með rauðu.
EIN NÓTT Á ÁRI
ALLIR GLÆPIR ERU LÖGLEGIR
5%
KL. 13 SMÁRABÍÓ
KL.15 HÁSKÓLABÍÓ MEÐÍSLENSKU
TALI
2D3D
KL. 15.30 HÁSKÓLABÍÓ Í 2D OG 3D
KL. 15.30 HÁSKÓLABÍÓ Í 2D
KL. 13 SMÁRABÍÓ Í 2DKL. 13 SMÁRA
BÍÓ Í 2D OG 3D
MEÐ
ÍSLENSKU
TALI
2D
Þegar heitt er í hamsi er skiljanlegt að fólk vilji koma sínu á framfæri á bein-
skeyttan hátt. Í þeim anda líkir forsætis-
ráðherra gagnrýni á sig við loftárásir.
Hann er ekki sá eini sem grípur til samlík-
inga við stríðsverk til að fjalla um pólitísk
bitbein.
ÖNNUR þekkt dæmi eru þegar Andri
Snær Magnason kallaði bók sína Drauma-
landið „loftárásir á ríkjandi hugmynda-
fræði“ og eins þegar gripið er til orðs-
ins hryðjuverk um aðgerðir sem fólk
óttast að eyðileggi náttúruna. Það veldur
sjaldnast uppnámi en hins vegar komst
sami Andri Snær í klandur fyrir að nota
orðin „klikkaður“ og „þroska heftur“
í umræðu um umhverfismál. Allt
minnir þetta okkur á að það skiptir
máli hvernig við notum tungumálið;
að umræðan er sannkallað jarð-
sprengjusvæði, svo gripið sé til
stríðslíkingar.
ÞÓTT íslenskir baráttumenn (enn
ein hernaðarlíkingin) taki sér slíkt
líkingamál í munn þýðir það eflaust
ekki að þeir vilji gera lítið úr alvöru
slíkra voðaverka. Skýringuna
má eflaust frekar rekja til þess að
afleiðingar þessara tilteknu stríðsverka
hafa ekki með beinum hætti skekið íslenskt
samfélag. Íslenskur stjórnmálamaður
myndi nefnilega örugglega síður líkja
sambærilegu pólitísku áfalli við til dæmis
snjóflóð.
EF við ætlum að beina spjótum okkar
(önnur) að orðfæri annarra, er þá ekki eins
gott að vera viss um að við myndum aldrei
sjálf nota jafnóviðeigandi líkingamál?
Hvernig væri að stríðslíkingum yrði sagt
stríð (aha) á hendur?
Til dæmis væri þá hægt að eyða púðri
(jebb) í að finna friðsælli orð.
Í staðinn fyrir loftárásir getur gagnrýni
til dæmis rignt og hún jafnvel orðið að
steypiskúr. Annað ágætt orð yfir steypi-
skúr er hryðja og því væri líka hægt að
lenda í hryðju. Hryðja er reyndar líka orð
yfir hrákadall, svo ef vilji væri til að færa
í stílinn eftir efninu væri hægt að segja
óðamála að nú hafi maður aldeilis lent í
hryðju úr hryðju. Eða bara halda okkur við
klassískt líkingamál af ógnum til sjós. Ef
það er of þjóðmenningarlegt væri hægt að
búa til eitthvað nútímalegt og lýsa yfir að
önfrendaður sé læklaus maður. Allt góðir
kostir ef við viljum slíðra (!) sverðin.
Steypiskúr úr hrákadalli