Fréttablaðið - 29.06.2013, Qupperneq 78
29. júní 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 46
„Hundrað prósent. Ég held
að sumt fólk taki mig ekki
alvarlega vegna þess. Þegar
ég byrjaði í bransanum var
ég sjónvarpsstjarna frekar en
fyrirsæta, og það var ekki það
sem mig langaði að vera.“
SAGÐI KENDALL JENNER YNGRI
HÁLFSYSTIR KARDASHIAN-
SYSTRANNA EN HÚN STEFNIR Á
FYRIRSÆTUFERIL OG ÍHUGAR AÐ
SEGJA SKILIÐ VIÐ RAUNVERULEIKA-
ÞÁTTINN KEEPING UP WITH THE
KARDASHIANS.
OPNA HÓTEL Í ÖLFUSI
María Ragna Lúðvígsdóttir, kona
Björgvins G. Sigurðssonar, fyrrverandi
ráðherra, hyggst opna hótel ásamt
Árna Birni Ómarssyni, fyrrverandi
verkefnastjóra Rafkaupa. Um er að
ræða hótel með 21 herbergi og pláss
fyrir um 50 manns, en áætlað er að
hótelið verði opnað í næstu viku.
Áður var hótelið Hlíð með rekstur
í sama húsi en því
var lokað árið
2011. Helga er
tölvunarfræð-
ingur en verður
nú hótelstjóri
á gisti-
húsinu.
- le
KLÁRUÐU BJÓRBYRGÐIR
Gestir á útgáfutónleikum Botnleðju í
Austurbæ gripu í tómt er þeir ætluðu að
fá sér bjór á barnum eftir að upphitunar-
hljómsveitin Vök hafði lokið sér af. Í
staðinn þurftu þeir að láta sér
nægja hvítvín eða rauðvín.
Athygli vakti þegar sjón-
varpsmennirnir Andri Freyr
Viðarsson og Helgi Seljan
sungu bakraddir með Botn-
leðju í lokalaginu Slóði. Á
meðal áhorfenda þetta
kvöld voru Hrefna
Sætran, Arnþrúður
Dögg Sigurðardóttir
og Árni Sveinsson
kvikmyndagerðar-
maður. - fb
„Þú ert að hringja í mig á anna-
samasta degi ársins,“ segir Tómas
Young, skipuleggjandi tónlistar-
hátíðarinnar All Tomorrow´s
Parties sem hófst á Ásbrú í gær-
kvöldi. „Það er allt á fullu og
stjörnurnar að skila sér í hús. Tilda
Swinton og Jim Jarmusch eru í
Keflavík og líkar það vel og Nick
Cave og félagar eru rétt ókomnir,
þannig að það er nóg að gera hérna.
En ég er með gott teymi í kringum
mig sem sækir liðið og sendist með
það og passar upp á að allt gangi
vel.“
Auk tónleikanna í kvöld verður
kvikmyndadagskrá þar sem sýndar
verða fjórar myndir sem Tilda
Swinton og Jim Jarmusch völdu
sérstaklega fyrir hátíðina. Einnig
verður haldinn Popp punktur í
Offíseraklúbbnum sem verður
breytt í klúbb þar sem plötusnúðar
þeyta skífum og klúbbastemningin
verður í algleymingi.
T ó m a s e r
starfsmaður Útón
en er í nokkurra
mánaða launa-
lausu fríi til að
helga sig hátíð-
inni, sem er
honum hjartans
mál. „Ég skrif-
aði masters -
ritgerðina mína um útflutning á
íslenskri tónlist og BS-ritgerðin
mín var um íslenska tónlist sem
landkynningu. Var svo umboðs-
maður Hjálma í eitt ár og hef verið
opinber tengiliður Hróarskelduhá-
tíðarinnar síðan ég var átján ára.
Líf mitt hefur meira og minna allt
snúist um tónlist síðan ég var átta,
níu ára.“ Og spilarðu sjálfur? „Já,
ég lærði á trommur í fimm ár og
spilaði í hljómsveit sem hét Rými
fyrir mörgum árum. Mig hefur
eigin lega aldrei langað að fást við
neitt annað.“
Og ætlarðu að hafa ATP árlegan
viðburð héðan í frá? „Já, vonandi.
Við sjáum til hvernig Íslendingar
taka í þetta. Ef þetta heppnast vel
stefni ég að því að halda hátíðina
aftur á næsta ári.“
fridrikab@frettabladid.is
Lífi ð snýst eiginlega
allt um tónlist
Tónlistarhátíðin All Tomorrow´s Parties hófst í Kefl avík í gærkvöldi og heldur
áfram í kvöld. Tómas Young, skipuleggjandi hátíðarinnar, er algjörlega í essinu
sínu. Hann hefur aldrei langað til að starfa við annað en tónlist.
● Nick Cave & The Bad Seeds
● Chelsea Light Moving
● Deerhoof
● Squrl
● Dead Skeletons
● Hjaltalín
● Valgeir Sigurðsson
● Amiina
● Puzzle Muteson
ÞEIR SEM KOMA
FRAM Á ATP Í KVÖLD
TÓMAS YOUNG
THURSTON
MOORE Í
SONIC YOUTH
TILDA SWINTON ER
Á MEÐAL GESTA.
NICK CAVE
ER AÐAL-
NÚMERIÐ
JIM JAR-
MUSCH ER
MEÐLIMUR Í
SQURL
HÖGNI
EGILSSON ÚR
HJALTALÍN.
„Við höfum rætt þetta í sam-
tökunum og okkur finnst þetta
skelfilegt uppátæki,“ segir Sigrún
Daníelsdóttir, sálfræðingur
og formaður Samtakanna um
líkams virðingu. Skjár 1 tilkynnti
það fyrr í vikunni að sýningar á
íslenskri útgáfu raunveruleika-
þáttarins The Biggest Loser
hæfust í haust og að byrjað væri
að taka við umsóknum.
Ansi skiptar skoðanir spruttu
fram á íslenskum vefmiðlum í
kjölfarið. Þátturinn snýr að fólki í
yfirþyngd sem keppist innbyrðis
að því að missa sem flest kíló
og mun sá sem stendur uppi
sem sigur vegari hljóta veglega
peninga upphæð að launum. Sigrún
segir að þættir nir séu þekktir
fyrir rosalega hörku. „Fólk er
látið ganga fram af sér hvað varð-
ar æfinga álag og öfgamegrun. Það
er líka gert út á niðurlægingu,
fólk er skammað og því refsað.
Þegar allt kapp er lagt á að missa
sem flest kíló verða heilsa og vel-
ferð oft út undan,“ segir Sigrún.
Ríflega 600 manns höfðu sent inn
umsókn í þáttinn í gær. Þó hefur
borið á því að margir hafi sent inn
umsóknir í gríni, líkt og gerðist
með Ungfrú Ísland á dögunum.
Ekki náðist í Ingu Lind Karls-
dóttur, umsjónarmann þáttarins,
við vinnslu fréttarinnar. - ka
Skiptar skoðanir á
The Biggest Loser
Skjár 1 hefur sýningar á þættinum The Biggest Loser
í haust. Skiptar skoðanir eru um ágæti þáttarins.
EKKI GÓÐ LEIÐ Sigrún Daníelsdóttir, formaður Samtakanna um líkamsvirðingu,
segir heilsu og velferð oft verða út undan í þáttum eins og The Biggest Loser.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
STJÖRNUR SÁU
JEFF BECK
Fjöldi þekktra Íslendinga mætti á
tónleika ensku gítarhetjunnar Jeff
Beck í Háskólabíói á fimmtudags-
kvöld. Á meðal gesta
voru Stuðmenn-
irnir Jakob Frímann
Magnússon og Egill
Ólafsson, útvarps-
konan Andrea
Jónsdóttir,
Gunnar Bjarni
Ragnarsson úr
Jet Black Joe
og Hollywood-
leikkonan
Anita Briem.
- fb
Fólk er látið ganga
fram af sér hvað varðar
æfingaálag og öfga-
megrun. Það er líka gert
út á niðurlægingu, fólk er
skammað og því refsað.
H Ú S G AG N A H Ö L L I N O P I Ð
O G O P I Ð E I T T S Í M A N Ú M E R
ÚTSALA
SUMAR-
| |
| |
| |
|
| | |
UREYRI | REYKJAVÍK | AKU
REYRI | REYKJAVÍK | AKUR
EYRI |
– fyrir lifandi heimili –
AFSLÁTTUR
%50
ALLT AÐ